Stöðvaði stéttargerð með aðkomusteypu 24. september 2010 05:30 Grundarfjörður Deildar meiningar um það hvort nota ætti innan- eða utanbæjarsteypu í gangstétt við byggingu sem meðal annars hýsir bæjarskrifstofurnar í Grundarfirði urðu til þess að bæjarstjórinn stöðvaði verkið.Fréttablaðið/GVA
Björn Steinar Pálmason bæjarstjóri stöðvaði í fyrradag steypuvinnu við endurnýjun á gangstéttum utan við bygginguna þar sem bæjarstjórnarskrifstofurnar í Grundarfirði eru til húsa. „Ég var ekki að versla við réttu mennina, það var aðalástæðan,“ segir Þorkell Gunnar Þorkelsson, verktakinn sem varð fyrir því að framkvæmdir voru stöðvaðar í miðjum klíðum. Að sögn Þorkels fór fyrir brjóstið á Birni Steinari bæjarstjóra að steypan sem verið var að nota var keypt á Rifi en ekki í Grundarfirði. „Ég var nú bara að versla við minn viðskiptaaðila sem ég skipti almennt við. Hann er á Rifi sem er stutt hér frá,“ útskýrir Þorkell sem aðspurður kveður enga skilmála um steypukaup í Grundarfirði hafa fylgt með því verki sem hann tók að sér. Bæjarskrifstofurnar eru á Grundarstíg 30. Bærinn á um þriðjung hússins á móti Arion banka auk þess sem Þjónustustofan ehf. á tæp 6 prósent í húsinu. Verkið er unnið fyrir hönd allra þessara aðila sameiginlega. Þorkell segir að steypan sem þurfi í gangstéttina sé aðeins nokkrir rúmmetrar. Þorkell gekk á fund Björns Steinars bæjarstjóra eftir hádegi í gær. Björn Steinar segir málið hafa verið leyst á þeim fundi. „Þetta er bara búið. Sá sem er með verkið bara klárar verkið og útvegar meðal annars steypu,“ segir bæjarstjórinn um framhald málsins. Björn Steinar vill ekki skýra hvers vegna hann hafi stöðvað framkvæmdina á miðvikudag. „Menn sáu hlutina bara aðeins ólíkt og ég hef ekkert meira um það að segja,“ segir bæjarstjórinn sem aðspurður hafnar því að hann hafi nokkur persónuleg tengsl við steypustöðina sem starfar í Grundarfirði. „Þetta snýst ekkert um það. Ég á enga ættingja hér eða tengist þessu á annan hátt.“ Að sögn Björns Steinars er verktakanum nú frjálst að nota þá steypu sem hann kýs til að ljúka verkinu. Aðeins þurfi um það bil einn steypubíl í verkið. „Það eru nú öll ósköpin. þetta er bara smámál.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólin þar sem slysin og óhöppin hafa orðið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sjá meira