Innlent

Hótaði að skera börnin á háls

Karlmaður um tvítugt hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í sjö mánaða fangelsi, þar af fjóra á skilorði, fyrir fjölda brota. Hann var meðal annars dæmdur fyrir að hrækja á lögreglumann, hóta honum og öðrum lögreglumönnum lífláti og að skera börn þeirra á háls.

Annar tvítugur maður var dæmdur í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að hóta þremur lögreglumönnum lífláti við sama tækifæri.

Fyrrnefndi maðurinn var einnig dæmdur fyrir vörslu á nokkru magni af amfetamíni og kannabisefnum.- jss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×