Helmingur sneri aftur í ofbeldissambúðina 24. september 2010 05:00 Starfsfólk hjá almennum heilbrigðisstofnunum gerir enga sérstaka leit að konum sem búa við ofbeldi í nánum samböndum.
Um það bil helmingur kvenna, sem dvöldu í Kvennaathvarfinu á síðasta ári vegna ofbeldis í nánum samböndum, fór aftur heim í óbreyttar aðstæður. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri rannsókn á þjónustu félagasamtaka sem aðstoða konur sem beittar hafa verið ofbeldi af hendi karla í nánum samböndum. Guðrún Helga Sederholm vann skýrsluna fyrir félags- og tryggingamálaráðuneytið. Leitað var til ellefu félagasamtaka vegna þátttöku í rannsókninni. Þau eru öll í Reykjavík en þrjú utan höfuðborgarsvæðisins. Könnunin leiðir í ljós að þjónusta við konur í ofbeldissamböndum er mest á höfuðborgarsvæðinu. Kvennaathvarf er aðeins í Reykjavík og þar eru helstu félagasamtök sem hafa að meginmarkmiði að veita konum, sem búa við ofbeldi í nánum samböndum, aðstoð. „Nálgunarbanni er sjaldan beitt en eru sterk skilaboð til karlsins um að láta konuna í friði,“ segir í niðurstöðum könnunarinnar. Þá kemur fram að fatlaðar, aldraðar og erlendar konur séu afskiptar hvað þjónustu varðar og sérstaða erlendra kvenna sé mikil. „Túlkaþjónusta er lítil sem engin, meðal annars vegna fjárskorts. Fræðslan byggist á íslenskum þekkingargrunni og bréf frá Félagsþjónustu eru á íslensku. Margar erlendar konur tala aðeins sitt móðurmál og sumar eru ólæsar. Fræðslan nær því oft ekki til þeirra með þeim aðferðum sem nú er beitt. Fordóma verður vart á vinnustöðum þeirra og margar búa við frelsissviptingu og einangrun á eigin heimili,“ segir í niðurstöðunni. Barnaverndaryfirvöldum er alltaf tilkynnt um mál barna þegar það á við og þeim tilkynnt ef mæður sem dvalið hafa í Kvennaathvarfi fara aftur í óbreyttar aðstæður. Samhliða ofangreindri könnun kannaði Ingólfur V. Gíslason árvekni og viðbrögð starfsfólks á heilbrigðisstofnunum gagnvart ofbeldi karla gegn konum í nánum samböndum. „Staðan er þannig hérlendis að hjá almennum heilbrigðisstofnunum er engin sérstök leit gerð að konum sem búa við ofbeldi,“ segir í síðarnefndu könnuninni. „Í flestum tilfellum er það einfaldlega viðkomandi starfsmanns að ákveða framhald máls ef upp kemur að kona búi við ofbeldi,“ segir þar og enn fremur að almennt muni starfsmenn ekki nema eftir örfáum slíkum málum, jafnvel eftir áratuga starf. jss@frettabladid.is
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólin þar sem slysin og óhöppin hafa orðið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sjá meira