Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lokakaflinn að klárast Síðasti kafli Suðurstrandarvegar, milli Þorlákshafnar og Grindavíkur, hefur verið boðinn út og sér nú loks fyrir endann á verkefni, sem kallað hefur verið margsvikna kosningaloforðið 22.9.2010 19:43
Pilturinn kominn með fósturfjölskyldu Búið er að finna drengnum, sem var laumufarþegi í Norrænu, fósturfjölskyldu. Forstöðumaður hælissviðs Útlendingastofnunar segir hann með yngstu börnum sem hingað hafa komið einsömul og leitað hælis. Nokkur hundruð vegalaus börn leita til Noregs ár hvert 22.9.2010 18:52
Þrír Íslendingar með gervifætur í haldi í Ísrael Þrír Íslendingar og einn Suður-Afríkumaður eru í haldi í Ísrael en þeir voru stöðvaðir á flugvellinum í Tel Aviv í dag. Þeim hefur ekki enn verið hleypt inn í landið. Þetta kom fram í sex fréttum RÚV. Þeir munu vera á leið með gervifætur á Gasa-svæðið. 22.9.2010 18:00
Medvedev vill til Íslands Dmitry Medvedev forseti hefur áhuga á að heimsækja Ísland, meðal annars til að kynna sér árangur Íslendinga við að nýta hreina orku. Þetta kom fram á fundi Medvedevs með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands í dag. 22.9.2010 16:53
Mjög viðkvæmt verkefni framundan Ekki liggur fyrir hvort 2,8 milljarða gat í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir næsta ár verður brúað með niðurskurði í rekstri borgarinnar eða auknum álögum á borgarbúa, segir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, í samtali við Vísi. 22.9.2010 16:45
Allsherjarnefnd gefur Atlanefndinni umsögn Allsherjarnefnd mun fá þingsályktunartillögur um ákærur gegn ráðherrunum fjórum til umsagnar. Samkvæmt heimildum Vísis verður fyrsti fundur í nefndinni klukkan fjögur í dag. 22.9.2010 15:47
Jóhanna lagði áherslu á réttindi kvenna og barna Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra lagði áherslu á réttindi kvenna og barna í ræðu sinni á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna um þúsaldarmarkmiðin svokölluðu í dag. Í ræðunni sagði Jóhanna meðal annars að jafnrétti kynjanna væri einn lykillinn að markmiðunum. Tryggja yrði börnum viðunandi menntun, aðbúnað og skilyrði til vaxtar. 22.9.2010 16:05
Sökuð um ólöglega hundaræktun á Akranesi „Hann er algjörlega geðveikur þessi hundaeftirlitsmaður. Hann leggur mann í einelti,“ segir Margrét Tómasdóttir, formaður hundaræktunarfélagsins Íshunda, en hún gerði athugasemdir við störf hundaeftirlitsmanns á Akranesi á dögunum. 22.9.2010 15:59
Ráðið frá sjósundi vegna hættu á saurgerlamengun Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur ráðleggur sjósundsfólki að fara ekki í sund í Nauthólsvík dagana 27.- 29. september. Ástæðan er möguleg saurgerlamengun vegna viðgerða á dælustöð fráveitukerfisins við Hafnarbraut í Kópavogi. 22.9.2010 15:59
Tvöföldun Suðurlandsvegar hafin Ögmundur Jónasson samgönguráðherra tók fyrstu skóflustunguna að tvöföldun Suðurlandsvegar við hátíðlega athöfn klukkan þrjú í dag. Eins og fram kom á Vísi fyrr í dag var um að ræða kaflann Fossvellir - Draugahlíðar. Auk Ögmundar var Hreinn Haraldsson vegamálastjóri viðstaddur við þetta tækifæri. 22.9.2010 15:31
Stefán Sölvi fjórði sterkasti maður heims Sterkasti maður Íslands, aflraunamaðurinn Stefán Sölvi Pétursson, hafnaði í fjórða sæti í keppninni Sterkasti maður heims 2010. Keppnin var haldin í borginni Sun City í Suður-Afríku. 22.9.2010 14:33
Önnur mál ekki til umræðu á Alþingi Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fór í dag fram á það að umræður um brýn hagsmunamál þjóðarinnar færu fram á þingi á meðan þingmannanefnd Atla Gíslasonar fjallar um ákærur gegn fyrrverandi ráðherrum. Í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum kemur fram að beiðninni hafi verið hafnað. 22.9.2010 14:11
Georg Bjarnfreðarson sverti ímynd hjólreiða Jón Gnarr borgarstjóri hefur beðist afsökunar á þeim ímyndarskaða sem hjólreiðar kunna að hafa orðið fyrir þegar Jón ákvað að láta Georg Bjarnfreðarson fara leiða sinna á reiðhjóli. 22.9.2010 14:07
Reykjavíkurborg þarf að loka 2,8 milljarða gati Um 2,8 milljarða króna þarf til að loka fjárlagagati í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir næsta ár. Þetta kemur fram í bókun Besta flokksins og Samfylkingarinnar á borgarstjórnarfundi í gær. 22.9.2010 13:10
Ræða Jóhönnu hafin í í New York - bein útsending Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra ávarpar í dag leiðtogaráðstefnu um þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem haldin er í New York. 22.9.2010 13:07
Reykjanesbær reynir að semja um risalán Tveir starfsmenn þýsk-írska bankans Depfa, eru hér á landi til þess að semja við Reykjanesbæ um greiðslu á tæplega tveggja milljarða króna skuld bæjarins. Starfsmennirnir komu hingað til lands í síðustu viku. 22.9.2010 13:01
Laumufarþeginn í umsjá barnaverndar Drengurinn sem kom sem laumufarþegi með Norrænu í gær var í nótt í umsjá stuðningfjölskyldu á vegum barnavendar Reykjanesbæjar. 22.9.2010 12:10
Einn enn í lífshættu Einn kínverjanna sex, sem lentu í bílslysi á Biskupstungnabraut í gærmorgun, er enn í lífshættu. Lögregla rannsakar nú hvort bíllinn hafi verið skráður löglega, miðað við afnot, og hvort hinir slösuðu hafi ekki verið í bílbeltum. 22.9.2010 12:05
Samgönguráðherra tekur sér skóflu í hönd Framkvæmdir við breikkun Suðurlandsvegar, Fossvellir - Draugahlíðar, hefjast með hátíðlegri athöfn í dag. Ögmundur Jónasson samgönguráðherra og Hreinn Haraldsson vegamálastjóri verða viðstaddir við þetta tækifæri og segir í tilkynningu frá Vegagerðinni að líklegt sé að Ögmundur muni grípa sér skóflu í hönd. Athöfnin mun fara fram klukkan þrjú nokkuð fyrir vestan Litlu kaffistofuna og norðan við vegamót við Bolaöldu. 22.9.2010 11:56
Hnúfubakur festist í þorskaneti Stór hnúfubakur flæktist í veiðarfærum netaveiðibátsins Hafborgarinnar í Skagafirði í gær. Ómögulegt var að losa hnúfubakinn þar til búið var að aflífa hann. 22.9.2010 11:44
Skipstjóri dæmdur fyrir að sigla undirmönnuðu skipi Karlmaður hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands fyrir að hafa siglt skipi sínu undirmönnuðu. Ekki var yfirvélstjóri um borð í skipinu þegar að það sigldi úr höfn þann 12. nóvember í fyrra. Ákærði játaði brot sitt en taldi að skipið hefði verið í góðum höndum þrátt fyrir þetta, vegna reynslu þeirra manna sem voru í áhöfn. 22.9.2010 11:39
Meintar amfetamínkonur neita sök Tvær konur, sem eru ákærðar fyrir að hafa smyglað inn til landsins 20,9 kílóum af amfetamínsúlafati, neituðu báðar sök í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. 22.9.2010 11:33
Ákærurnar fara til umfjöllunar í þingmannanefnd Þingsályktunartillögum um ákærur gegn fjórum ráðherrum sem störfuðu í aðdraganda bankahrunsins verður vísað til þingmannanefndar Atla Gíslasonar . Þetta var samþykkt með 38 atkvæðum gegn 16 á Alþingi í morgun. 22.9.2010 10:52
Lést í fjórhjólaslysi á Grænlandi Íslenskur karlmaður lést á Grændlandi í gærkvöldi. Maðurinn var starfsmaður Ístaks en fyrirtækið er að byggja virkjun á svæðinu Pakitsoq sem er 60 kílómetrum frá bænum Ilulissat á vesturströnd Grænlands. 22.9.2010 10:45
Vantraust ef tillögurnar fara í allsherjarnefnd Árni Þór Sigurðsson, þingflokksformaður Vinstri grænna, telur að ef þingsályktunartillögum um ákærur gegn fyrrverandi ráðherrum fyrir brot á ráðherraábyrgð verði ekki vísað til þingmannanefndar Atla Gíslasonar feli það í sér vantraust á störf nefndarinnar. 22.9.2010 10:43
Atli: Ráðherrunum átti ekki að bregða Atli Gíslason, formaður þingmannanefndar um niðurstöður Rannsóknarskýrslu Alþingis, segir að þeim fjórum ráðherrum sem lagt er til að verði ákærðir fyrir brot á lögum um ráðherraábyrgð hefði ekki átt að koma á óvart að nefndin væri að skoða þann möguleika. Hann segir að þeir hafi fengið bréf frá nefndinni þar sem kom fram að verið væri að skoða ráðherraábyrgð og vísað sérstaklega í kafla skýrslunnar sem fjalla um þau atriði. 22.9.2010 10:00
Felldu tillögu um sannleiksnefnd Meirihluti bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ felldu tillögu minnihlutans um að koma á fót þriggja manna nefnd sem átti að taka út stjórnkerfi og stjórnýslu Reykjanesbæjar. Fyrirmynd nefndarinnar hefði þá verið rannsóknarnefnd Alþingis. 22.9.2010 09:59
Sextán manns sóttu um skólameistarastöðu í Hafnarfirði Sextán manns, fjórar konur og tólf karlar, sóttu um stöðu skólameistara Iðnskólans í Hafnarfirði. Umsóknarfrestur um stöðuna rann út föstudaginn 17. september síðastliðinn. 22.9.2010 09:56
Svipt sjálfræði vegna alvarlegrar átröskunar Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að að ung kona verði svipt sjálfræði í tólf mánuði á meðan hún fær meðferð við átröskun. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar fór fram á sjálfræðissviptinguna en sjúkdómur konunnar er kominn á mjög alvarlegt stig og er það mat meðferðaraðila að án meðferðar sé hún í lífshættu. 22.9.2010 08:59
Mannekla í fiskvinnslu þrátt fyrir atvinnuleysi Skortur er á starfsfólki í fiskvinnslu í Grundarfirði þrátt fyrir að yfir tuttugu manns á svæðinu séu á atvinnuleysisskrá. Guðmundur Smári Guðmundsson, framkvæmdastjóri útgerðarfyrirtækisins Guðmundur Runólfsson hf., segir í samtali við Skessuhorn að hann fái ekki fólk til að fylla lausar stöður. Vegna þess hefur fyrirtækið neyðst til að draga úr veiðum og setja fisk á markað og í gáma í stað þess að vinna hann á staðnum. 22.9.2010 08:35
Atkvæðagreiðsla á Alþingi í dag Greidd verða atkvæði um það á Alþingi í dag hvort vísa beri málinu um ákærur á hendur fjórum fyrrverandi ráðherrum til allsherjarnefndar. 22.9.2010 07:58
Undirbúa samningsviðræður um makrílveiðarnar Samningamenn Íslands og Evrópusambandsins sem hittust til undirbúningsviðræðna um makrílveiðar Íslendinga í gærmorgun, tjá sig ekki um gang viðræðnanna fyrr en að þeim loknum, síðar í dag. 22.9.2010 07:46
Ökumenn varaðir við lúmskri hálku í borginni Ökumenn hafa orðið varir við lúmska hálku á einstaka stöðum á höfuðborgarsvæðinu og hafa menn lent í því að missa stjórn á ökutækjum. 22.9.2010 07:43
Vísbendingar um að bílbeltin hafi ekki verið spennt Vísbendingar eru um að mennirnir, sem slösuðust alvarlega þegar bíll valt á Biskupstungnabraut í gærmorgun, hafi ekki verið með bílbeltin spennt og rannsakar lögregla það nánar. 22.9.2010 07:29
Minna ekið, drukkið og reykt en spáð var Ríkissjóður var rekinn með 75,6 milljarða króna halla á fyrstu sjö mánuðum ársins. Greidd gjöld námu 318 milljörðum og innheimtar tekjur 261 milljarði. Þar munar 57 milljörðum. Að teknu tilliti til áhrifa rekstrartengdra eigna og skulda ríkisins, sem voru neikvæð um átján milljarða, fæst hin eiginlega staða, svonefnt handbært fé frá rekstri, sem nemur þessum 75,6 milljörðum. 22.9.2010 07:00
Milljarða einkasjúkrahús út í sandinn Útlit er fyrir að ekkert verði af stofnun og rekstri einkasjúkrahúss sem áformað var í Reykjavík. Litháíska verktakafyrirtækið Adakris hugðist taka þátt í verkefninu en er hætt við að sögn Sigríðar Þorsteinsdóttur, forsprakka undirbúningsfélags spítalans. 22.9.2010 06:45
Lokafrestur rann út í ágúst „Ég er á kafi í að ganga frá skýrslunni. Við erum að ljúka henni,“ segir Maríanna Jónasdóttir, fulltrúi Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra og formaður starfshóps á vegum fjármálaráðuneytisins. 22.9.2010 06:30
Eftirlýstur innan Schengen vegna skattsvika Íslenskur karlmaður er eftirlýstur á Schengen-svæðinu vegna gruns um þátttöku hans í fjársvikamálinu, þar sem sviknar voru út um 270 milljónir króna í formi endurgreidds virðisaukaskatts. Hvorki finnst tangur né tetur af þessum fjármunum, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Ljóst er að þeir höfðu verið lagðir inn á reikning en teknir út í reiðufé, smáum upphæðum í senn, þannig að ekki er um neinar millifærsluslóðir að ræða. 22.9.2010 06:00
Samtrygging velti fjármálakerfinu Menningarbundnar hugmyndir og orðræða um kyn, karlmennsku og kvenleika léku stórt hlutverk í atburðarásinni sem leiddi til hruns íslenska bankakerfisins að mati dr. Þorgerðar Einarsdóttur og dr. Gyðu Margrétar Pétursdóttur sem unnu kynjafræðilega greiningu á skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis að beiðni þingmannanefndarinnar. Þorgerður og Gyða Margrét kynntu rannsókn sína á fjölsóttum fyrirlestri í Háskóla Íslands í gær. 22.9.2010 06:00
Þyrla sótti tvo alvarlega slasaða eftir bílslys Sex meiddust mismikið þegar smárúta valt á Biskupstungnabrau. 22.9.2010 06:00
Draumurinn enn lokaður og í rannsókn Lögregla hefur enn til rannsóknar meint lögbrot Júlíusar Þorbergsson, kaupmanns í Draumnum við Rauðarárstíg. Draumurinn er enn lokaður og verður ekki opnaður á ný nema með úrskurði dómara. 22.9.2010 05:30
Amfetamínkonur ákærðar Ríkissaksóknari hefur ákært fyrir Héraðsdómi Reykjaness tvær konur, Elenu Neuman og Swetlönu Wolkow, fyrir stórfellt fíkniefnasmygl. 22.9.2010 05:00
Þetta mál fellir ekki margbarða stjórnina Hefur landsdómsmálið, og þá sér í lagi skoðun forsætisráðherra á því, áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið? „Þetta mál mun ekki fella stjórnina, jafn margbarin og hún er,“ sagði Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, í samtali við Fréttablaðið seinni partinn í gær. 22.9.2010 04:00
Aldan hreinsar höfn Talið er að 700 til 800 þúsund rúmmetrar af gosefnum hafi borist til sjávar með flóðum í Markarfljóti við upphaf eldhræringanna í Eyjafjallajökli. Tvöfalt það magn hafði borist til sjávar samkvæmt mælingum Siglingastofnunar í byrjun ágúst. 22.9.2010 04:00
Segja öryggisbúnað í Herjólfi ónothæfan Fullyrt er að sjósetningarbúnaður björgunarbáta um borð í farþegaferjunni Herjólfi sé gamaldags og vart nothæfur í neyð. Búnaðurinn, sem er handvirkur, stenst Evróputilskipun um öryggisbúnað um borð í skipum í millilandasiglingum. 22.9.2010 03:00