Fleiri fréttir

500 milljónir í átak gegn atvinnuleysi

Vinnumálastofnun hyggst verja hálfum milljarði í umfangsmikið átak gegn langtímaatvinnuleysi. Stefnt er að því að virkja fjögur þúsund manna hóp til þátttöku í fjölbreytilegum vinnumarkaðsúrræðum á næstu þremur mánuðum.

Hjördís skoðar söluna á Magma

Hjördís Hákonardóttir, fyrrverandi hæstaréttardómari, verður formaður nefndar, sem forsætisráðherra hefur skipað til þess að meta lögmæti kaupa fyrirtækisins Magma Energy á eignarhlutum í HS Orku og starfsumhverfi orkugeirans hér á landi.

Þrítugur maður ákærður fyrir manndráp

Rúmlega þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir manndráp við Bjarnarvelli í Reykjanesbæ laugardaginn 8. maí síðastliðinn. Snemma morguns fannst maður á sextugsaldri látinn í götunni.

Skipa hæstaréttardómara fyrir mánaðamót

Stefnt er að því skipa nýjan hæstaréttardómara áður en Hæstiréttur tekur til starfa að nýju um næstu mánaðamót. Hjördís Björk Hákonardóttir hæstaréttardómari lét af störfum um helgina og matsnefnd metur núna hæfni þeirra fjóra umsækjenda sem sóttu um stöðu hennar.

Sprenging í Hveragerði

Grunur leikur á að sprengiefni hafi verið skilið eftir á almannafæri í Hveragerði og hluti þess sprungið í síðustu viku.

Ætla að senda 3,5 milljónir til Pakistans

Rauði kross Íslands hefur ákveðið að senda 3,5 milljónir króna úr neyðarsjóðum sínum til hjálparstarfs vegna gífurlegra flóða í norð-vesturhluta Pakistans. Rauði krossinn hefur einnig opnað fyrir söfnunarsíma sinn 904 1500 fyrir þá sem vilja styrkja hjálparstarfið.

Sex vilja stýra Landspítalanum

Sex umsóknir bárust um stöðu forstjóra Landspítalans, en umsóknarfrestur rann út 30. júlí síðastliðinn. Á meðal umsækjenda er Björn Zoëga bæklunarskurðlæknir og starfandi forstjóri spítalans. Aðrir sem sóttu um eru eftirtaldir.

Árni Páll neitar ásökunum um pólitíska ráðningu

Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra hefur kallað eftir frekari upplýsingum um skuldamál Runólfs Ágústssonar nýskipaðs umboðsmanns skuldara. Árni Páll neitar því að ráðningin hafi verið pólitísk.

Ernir flýgur milli Reykjavíkur og Eyja

Flugfélagið Ernir mun fljúga áætlunarflug milli Reykjavíkur og Vesmannaeyja frá og með morgundeginum. Flogið verður alla daga vikunnar tvisvar á dag.

Þaulvanur sauðaþjófur á ferð

Sauðaþjófur, sem greinilega kann að gera að lambsskrokkum, að sögn lögreglu, var á ferð í Dölunum um helgina og fundust leifar af lambi eftir hann undir brúnni yfir Miðá í Dölum í gær.

Leita að aukaleikurum í nýja mynd

Þessa dagana er verið að taka upp nýja kvikmynd, Hrafna, Sóleyjar og Myrru, sem stendur til að frumsýna í Sambíóunum í febrúar á næsta ári, að sögn Kristjáns Hans Óskarssonar kvikmyndaframleiðanda. Það er Kvikmyndafélagið Einstefna sem framleiðir myndina en aðalleikararnir eru meðal annars Laddi, Edda Björgvinsdóttir, Pétur Einarsson, Hannes Óli Ágústsson, Magnús Ólafsson og fleiri.

Nokkrar tilkynningar um innbrot

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hefur borist nokkrar tilkynningar um innbrot inn á heimili og í bíla yfir verslunarmannahelgina. Lögreglumaður sem Vísir talaði við segir að venjulega berist tilkynningar af þessu tagi eftir að fólk kemur heim eftir miklar ferðahelgar líkt og um verslunarmannahelgi. Hann segir að enn séu fjölmargir sem ekki séu enn komnir heim eftir helgina og býst við að staða mála skýrist betur seinna í dag.

Slökkviliðsmenn gera kröfu um lækkun starfsaldurs

Ein af kröfum slökkviliðsmanna í kjaradeilu þeirra við sveitarfélögin samsvarar launahækkun upp á 18%. Krafan er að hámarksstarfsaldur slökkviliðsmanna verði lækkaður um 10 ár eða úr 70 árum og í 60 ár.

Töluverð ölvun í Eyjum í nótt

Töluverð ölvun var í Vestmannaeyjum í gærkvöldi og í nótt, en ekki kom til umtalsverðra vandræða, að sögn lögreglu.

Góður gangur í umferðinni

Umferðin um þjóðvegi landsins gekk vel í gærkvöldi og í nótt, nema hvað tveir bílar ultu á leið frá Landeyjahöfn í nótt, en engan sakaði. Annar ökumaðurinn er grunaður um ölvunarakstur.

Síðasta strandveiðitímabil sumarsins er hafið

Mikill hamagangur var í öskjunni hjá tilkynningaskyldunni og í stjórnstöð landhelgisgæslunnar á slaginu klukkan tólf á miðnætti, en þá hófst síðasta strandveilðitímabil sumarsins og allstaðar var gott sjóveður.

Bólginn rekstur Orkuveitu Reykjavíkur skorinn niður

Úttekt á starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur sem nú er í gangi á að ljúka um miðjan ágúst. Skorið verður niður í rekstri félagsins áður en tilkynnt verður um þær gjaldskrárhækkanir sem væntanlega þarf að fara í, segir Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður OR.

Ekki fyrir lofthrædda

Mikið álag hefur verið á litlum hópi símsmiða hjá Mílu undanfarin ár vegna uppbyggingar á þriðju kynslóðar farsímakerfi. Einn símsmiðanna segir starfið geta verið erfitt en að honum líði jafn vel í hæsta mastrinu, sem er 412 metra hátt, og á jörðu niðri.

Íkveikja líklegasta skýringin á brunanum

Eldur kom upp í bíl við Unufell í Breiðholtinu aðfaranótt mánudags. Þegar lögregla og slökkvilið kom á staðinn stóð bíllinn, Toyota Corolla, í ljósum logum.

Fjöldatakmarkanir ræddar

Hátíðahöld í Vestmannaeyjum fóru almennt vel fram að mati lögreglunnar í Vestmannaeyjum. Þjóðhátíðarnefnd telur að um sextán þúsund manns hafi verið á Þjóðhátíð. „Aðsóknarmet var slegið þriðja árið í röð. Það setur sérstakan blæ á hátíðina að hún er svona fjölmenn,“ segir Páll Scheving, formaður Þjóðhátíðarnefndar.

Óttast hrun í bóksölu með hærri virðisauka

Bókaútgefendur eru uggandi vegna hugmynda um hækkun á virðisaukaskatti á bókum úr 7 prósentum í 25,5 prósent. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur meðal annars lagt slíkt til. Kristján B. Jónasson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, birti grein um málið í Fréttablaðinu á miðvikudag en hann segir að sala á bókum gæti dregist mikið saman í kjölfar hækkunar.

Kyrrsetning er ekki frysting

„Það er hægt að færa til fé eftir kyrrsetningu,“ segir Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis. „Kyrrsetningarþola er tilkynnt um kyrrsetninguna og það eru hörð viðurlög við því að færa til fé eftir að slíkt er gert. Þetta eru bara skýringarnar sem hann gefur upp.“

Neyðarástandi lýst yfir í Rússlandi

Dmitry Medvedev, forseti Rússlands, hefur lýst yfir neyðarástandi í sjö héruðum Rússlands vegna hitabylgju og skógarelda sem þar geisa. Að minnsta kosti fjörutíu manns hafa látið lífið og 77 bæir skemmst eða eyðilagst. Héruðin Niznhny Novgorod, Voronezh og Ryazan hafa farið verst út úr skógareldunum en nítján af þeim fjörutíu sem í valnum liggja bjuggu í fyrstnefnda héraðinu.

Beaty geti ekki hætt við kaupin á HS Orku

Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar fær ekki séð að forstjóri Magma Energy geti hætt við kaupin á HS orku. Hann segir að ef ríkið ætli sér að grípa inn í viðskiptin muni Reykjanesbær kanna rétt sinn gagnvart hinu opinbera.

Fertug kona tekin full að keyra í Reykjavík

Fertug kona var tekin fyrir ölvunarakstur í Reykjavík síðdegis í dag. Þá var lögreglunni tilkynnt um tvö innbrot í hús á Grettisgötunni í miðbænum og í hús í Túnunum.

Sóttu veikan mann á rússneskan togara

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, þurfti að sækja alvarlega veikan skipverja á rússneskum togara sem staddur var 260 sjómílur suðvestur af Reykjanesi. Togarinn sigldi til móts við þyrluna og stefnumótsstaðurinn var 160 sjómílur.

Umferð tekin að þyngjast

Umferðin til borgarinnar fór hægt af stað í morgun en að sögn lögreglumanns sem var við umferðareftirlit á Vesturlandsvegi hefur umferðin verið að þyngjast eftir hádegið.

Ingibjörg Sólrún: Ekki vonbrigði að fá ekki að leiða nefndina

„Nei, ég vissi alltaf að það gæti farið á hvaða veg sem var. Ég vissi að það voru svo mörg sjónarmið sem þyrfti að skoða," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra Íslands, aðspurð hvort að það séu vonbrigði að fá ekki að leiða nefnd sem mun rannsaka árás Ísraelshers á skipalest til Gaza í maí síðastliðnum. Geoffrey Palmer, fyrrverandi forsætisráðherra Nýja-Sjálands, mun vera formaður nefndarinnar.

Olíubrunnurinn gæti lokast í nótt

Breska olíufélagið BP gæti hafist handa við að loka olíubrunninum í Mexíkóflóa í nótt, þremur mánuðum eftir að olíulekinn hófst. En þetta er versti olíulekinn í sögu Bandaríkjanna.

Tvær meintar nauðganir í Eyjum

Samkvæmt vakthafandi lækni á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja leituðu tvær stúlkur á slysadeild í nótt vegna meintra nauðgana á Þjóðhátíð. Ekki er hægt að fá nánari upplýsingar um málið aðrar en þær að málið sé í skoðun.

Miklir þurrkar í Rússlandi

Reykjarmóða liggur yfir Moskvu í Rússlandi vegna mikilla elda sem loga í landinu. Skyggnið er einungis nokkur hundruð metrar. Þetta veldur því að erfitt er að anda og læknar mæla með því að íbúar haldi sig innan dyra, segir í frétt BBC.

Ekki of margir í Herjólfi

„Nei, það getur ekki verið, ég hefði frétt af því,“ segir Sigmar Jónsson hafnarstjóri við Landeyjahöfn. Vestmannaeyingur hafði samband við fréttastofu og fullyrti að það hefðu farið helmingi fleiri um borð í Herjólf í morgun en leyfilegt er. En báturinn tekur 500 manns.

Rigningin róaði fólkið

Lögreglan í Vestmannaeyjum segir að ekki sé hægt að kvarta undan nóttinni miðað við þann fjölda sem er að skemmta sér á Heimaey. Um þrír gistu fangageymslur fyrir ölvun og óspektir og eitthvað var um pústra í Herjólfsdal.

Mikil ölvun á Mýrarbolta

Nokkur erill var hjá Lögreglunni á Ísafirði í nótt. Mikil ölvun var í bænum en Mýrarboltanum lauk í gær með tilheyrandi balli. Að sögn varðstjóra var eitthvað um minniháttar pústra en enginn gisti fangageymslur fyrir vestan í nótt.

Fá að blása í áfengismæli

Nóttin var róleg hjá Lögreglunni á Hvolsvelli. Að sögn varðstjóra eru lögreglumenn staddir við Landeyjahöfn en fyrsta ferðin með Herjólfi var að koma að landi. Þar leyfa lögreglumenn gestum Þjóðhátíðar að blása í áfengismæli áður en lagt er af stað í bíla sína.

Engin teljandi vandræði á Akureyri

Einhver ölvun var á Akureyri í nótt að sögn lögreglu, en engin teljandi vandræði. Engar kærur hafa verið lagðar fram eftir nóttina.

Rólegt í Reykjavík

Róleg var hjá Lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu í nótt en þó voru minniháttar pústrar í miðborginni. Mjög fáir gista fangageymslur og í flestum tilfellum er um að ræða fólk sem var ósjálfbjarga vegna ölvunar.

Fastur í London vegna fugls í hreyfli í Danmörku

Finnur Stefánsson farþegi með Iceland Express situr nú á Hilton hóteli í London. Hann átti að fara með flugfélaginu heim til Íslands í gærkvöldi en hefur litlar sem engar upplýsingar fengið frá félaginu í dag vegna seinkunarinnar. Upplýsingafulltrúi Iceland Express segir að seinkun sé vegna fugls sem lenti í hreyfli vélarinnar á leið Danmerkur.

Mikið stolið úr tjöldum á Þjóðhátíð

Mikið hefur verið um það á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum að verið sé að stela úr tjöldum og jafnvel tjöldunum sjálfum. Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni í Vestmannaeyjum fór dagurinn í dag mest í það að hjálpa fólki sem hafði týnt hlutum.

Sjá næstu 50 fréttir