Innlent

Raforkuverð til almennra nota hækkar hjá öllum í dag

Raforkuverð til almennra nota hækkar í dag í kjölfar hækkunar Landsvirkjunar um 8,3 prósent um síðustu mánaðamót.

Samkvæmt vefnum Orkuvaktin hefur raforka til heimilisnota hækkað mest frá áramótum hjá Orkusölunni, eða um 8,3 prósent, næst hjá Fallorku á Norðurlandi, eða um 8,2 prósent, um 7,6 prósent hjá HS Orku og 5,3 prósent hjá Orkuveitu Reykjavíkur.

Minnst hefur hækkunin orðið hjá Orkubúi Vestfjarða eða um þrú prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×