Innlent

Fá að blása í áfengismæli

Frá Landeyjahöfn
Frá Landeyjahöfn
Nóttin var róleg hjá Lögreglunni á Hvolsvelli. Að sögn varðstjóra eru lögreglumenn staddir við Landeyjahöfn en fyrsta ferðin með Herjólfi var að koma að landi. Þar leyfa lögreglumenn gestum Þjóðhátíðar að blása í áfengismæli áður en lagt er af stað í bíla sína.

Að sögn varðstjóra er fólk enn með töluvert mikið af áfengi í sér í fyrstu ferðunum með Herjólfi og er því ráðlagt að leggja sig í aftursætinu eða bíða um stund á meðan áfengið fer úr blóðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×