Innlent

Rólegt í Reykjavík

Róleg var hjá Lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu í nótt en þó voru minniháttar pústrar í miðborginni. Mjög fáir gista fangageymslur og í flestum tilfellum er um að ræða fólk sem var ósjálfbjarga vegna ölvunar.

Einn ökurmaður var handtekinn í Norðlingaholti í nótt grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og tveir grunaðir um ölvun við akstur. Tvö innbrot voru framin í nótt í austurborginni þar sem brotist var inn í fyrirtæki. Tveir menn eru í haldi vegna málsins og gista nú fangageymslur.

Tveir brunar komu einnig upp í nótt, annars vegar minniháttar sinubruni þar sem ekkert tjón varð og hins vegar kviknaði eldur í bifreið sem stóð upp við hús í Unufelli og voru eldtungur búnar að læsa sig í húsið þegar lögreglu bar að. Minniháttar skemmdir voru á húsinu en bifreiðin er mikið skemmd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×