Ingibjörg Sólrún: Ekki vonbrigði að fá ekki að leiða nefndina 2. ágúst 2010 14:21 „
Nei, ég vissi alltaf að það gæti farið á hvaða veg sem var. Ég vissi að það voru svo mörg sjónarmið sem þyrfti að skoða," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra Íslands, aðspurð hvort að það séu vonbrigði að fá ekki að leiða nefnd sem mun rannsaka árás Ísraelshers á skipalest til Gaza í maí síðastliðnum. Geoffrey Palmer, fyrrverandi forsætisráðherra Nýja-Sjálands, mun vera formaður nefndarinnar. Ingibjörgu var boðið að vera formaður nefndarinnar en svo fór að Ban Ki-moon framkvæmdastjóri sameinuðu þjóðanna, fékk Palmer í verkið. En mun hún koma eitthvað nálægt starfi nefndarinnar? „Ég get ekkert sagt til um það á þessu stigi hvernig málin standa." segir Ingibjörg. Samkvæmt erlendum fjölmiðlum er ekki ljóst hverjir munu sitja í nefndinni með Palmer. Nefndin á að rannsaka árás Ísraelsmanna á skipalest sem var á leið til Gaza með hjálpargögn. Að minnsta kosti níu manns létust í árásinni. Margir þjóðarleiðtogar fordæmdu árásina og kröfðust þess að hún yrði rannsökuð. Ingibjörg sagði í samtali við Vísi fyrr í mánuðinum að málið hefði komið upp fyrir hálfgerða tilviljun. „Ég var á ráðstefnu í Madríd um málefni Palestínu og var spurð að því hvort það mætti nefna nafnið mitt og síðan var haft samband við mig frá skrifstofu Mannréttindaráðsins," sagði Ingibjörg.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Innlent Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Erlent Fleiri fréttir Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Sjá meira