Innlent

Engin teljandi vandræði á Akureyri

Einhver ölvun var á Akureyri í nótt að sögn lögreglu, en engin teljandi vandræði. Engar kærur hafa verið lagðar fram eftir nóttina.

Tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvun við akstur, annar þeirra tvítugur og hinn liðlega sextugur. Einn gisti fangageymslur, en sá átti ekki í önnur hús að venda að sögn lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×