Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Taka þarf ákvörðun um gjaldskrá Orkuveitunnar Guðlaugur Sverrisson, fyrrverandi stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, segir ljóst að eitt fyrsta verkefni nýrrar stjórnar fyrirtækisins verði að ákveða Orkuveitunni gjaldskrá til næstu ára. „Í mínum er það ekki spurning um hvort það verður gert, heldur hvenær. Við þurfum að átta okkur á því að orkuverð hér á landi er mjög lágt. Þrátt fyrir að gjaldskrár verði leiðréttar verður það áfram lágt," segir Guðlaugur í skýrslu sem hann lagði fyrir aðalfund Orkuveitunnar í dag en á fundinum tók ný stjórn við. 25.6.2010 21:21
Evrópusamtökin: Bremsuyfirlýsing Bjarna Evrópusamtökin kalla orð Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um Evrópumál á landsfundi flokksins bremsuyfirlýsingu. Í ræðu sinni sagði Bjarni að við núverandi aðstæður væri réttast að draga umsókn Íslands að Evrópusambandinu til baka en ef umsókninni verði haldið til streitu beri að vinna að því að tryggja hagsmuni Íslands. 25.6.2010 20:59
Bankarnir ekki að leggja lokahönd á samræmdar aðgerðir „Fyrirtæki á fjármálamarkaði hafa eðlilega verið óróleg líkt og viðskiptavinir þeirra,“ segir Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja. Vonast hafi verið að stjórnvöld myndu stíga inn í tómarúmið þar sem enn ríki óvissa um útreikning á gengistryggðum lánum eftir dóm Hæstaréttar í síðustu viku. 25.6.2010 20:35
Norðmenn aðstoða sérstakan saksóknara Hópur sérfræðinga frá norsku efnahagsbrotadeildinni Økokrim er nú staddur á Íslandi til að aðstoða embætti sérstaks saksóknara. Norðmennirnir eru hér á landi til þess að veita embættinu sérfræðiaðstoð og leggja grunn að frekara samstarfi embættanna tveggja. 25.6.2010 19:31
Steingrímur á von á kraftmiklum fundi Flokksráðsfundur Vinstri grænna hófst klukkan fimm í dag. Niðurstaða sveitastjórnarkosninganna verður meðal helstu mála sem rædd verða fundinum. 25.6.2010 19:13
Ísland standi við lágmarkstryggingu Forseti Eftirlitsstofnunar EFTA segir stofnunina ekki hafa neina skoðun á lánakjörum Breta og Hollendinga vegna Icesave samninganna við Íslendinga. Hins vegar telji stofnunin ótvírætt á Íslendingar eigi að greiða sem svarar til um 21 þúsund evrum á hvern Icesave reikning. 25.6.2010 18:42
Kristján Þór leggur mannorð sitt að veði „Hér er ekki verið að grafa neitt, ekki skjóta neinu á frest né komast hjá erfiðum umræðum,“ sagði Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á landsfundi flokksins í dag. Hann mun fara fyrir svokallaðri Framtíðarnefnd sem ætlað er það hlutverk að endurskoða og móta áherslur í skipulagi og starfi Sjálfstæðisflokksins. 25.6.2010 17:40
Haraldur verður tímabundið í fullu starfi hjá OR Ný stjórn tók við á aðalfundi Orkuveitu Reykjavíkur í dag. Á fundinum lagði Jón Gnarr, borgarstjóri, fram áherslur Reykjavíkurborgar í rekstrinum. Haraldur Flosi Tryggvason er nýr stjórnarformaður og auk hans skipa stjórnina þau Helga Jónsdóttir, Aðalsteinn Leifsson, Kjartan Magnússon, Sóley Tómasdóttir og Hrönn Ríkharðsdóttir. Áheyrnarfulltrúi Borgarbyggðar er Björn Bjarki Þorsteinsson. Haraldur verður tímabundið í fullu starfi sem stjórnarformaður. 25.6.2010 17:11
Lögreglan stöðvaði kannabisræktun í Hafnarfirði Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði í gærmorgun. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust nokkrir tugir kannabisplantna. Húsráðandi, karl á fertugsaldri, játaði aðild sína að málinu. 25.6.2010 17:04
Bjarni Ben vill leggja aðildarumsókn til hliðar Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að við núverandi aðstæður væri réttast að leggja aðild að Evrópusambandinu til hliðar. Þetta kom fram ræðu hans á setningu Landsfundar Sjálfstæðisflokksins klukkan fjögur í dag. 25.6.2010 16:41
Pétur Blöndal íhugar formannsframboð „Ég ætla ekki að svara já eða nei, ég er á móti já og nei spurningum," segir Pétur Blöndal alþingismaður aðspurður um hvort hann ætli að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins á morgun. Landsfundur sjálfstæðismanna hófst núna klukkan fjögur og verður kosið um formann og varaformann á morgun. 25.6.2010 15:55
Íslendingar standa við Kyoto-bókunina en svigrúmið er lítið Samkvæmt spám Umhverfisstofnunar mun Ísland standa við sínar skuldbindingar gagnvart Kyoto-bókuninni, en ljóst er að svigrúm er ekki mikið. 25.6.2010 15:19
Leggja til að tekjujöfnunarframlag verði lagt niður Starfshópur samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um heildarendurskoðun á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga leggur til að regluverki sjóðsins verði breytt í tveimur áföngum. Fyrst verði tekið upp nýtt kerfi útgjaldajöfnunar og síðan gerð grundvallarbreyting á jöfnunarkerfinu. 25.6.2010 15:07
Saga Film vill tæpar tvær milljónir frá smálánafyrirtæki Kvikmyndafyrirtækið Saga Film krefst tæplega tveggja milljóna króna í skaðabætur vegna auglýsingar á smálánum hjá Kredia. Um er að ræða meintan stuld á persónu úr Vaktarseríunum, Nætur-, Dag og Fangavaktarinnar, sem heitir Hannes og var pabbi Ólafs Ragnars. 25.6.2010 14:18
Von á yfirlýsingu vegna gengislána „Það er nú hægt að lofa yfirlýsingu fljótlega en ég ætla nú ekki að segja nákvæmlega hvað fljótlega felur í sér," segir Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra. Viðskiptaráðuneytið hefur undanfarið átt samráð við fjármálafyrirtæki til að draga úr óvissu vegna dóms hæstaréttar um lögmæti gengistryggingar lána. Ekki er annað á honum að heyra en afrakstur þess verði gerður ljós á næstunni. 25.6.2010 14:12
Rúmlega tvær milljónir til að rannsaka einelti Veittur hefur verið styrkur að fjárhæð 2,2 milljónir króna úr Styrktarsjóði Margaret og Bent Scheving Thorsteinssonar til rannsóknar á einelti gegn börnum á Íslandi. Um er að ræða heildstæða, þverfræðilega rannsókn en markmið sjóðsins er að standa fyrir rannsóknum á einelti og kanna allar lagalegar og siðferðilegar leiðir til að fyrirbyggja einelti og bæta fyrir afleiðingar þess. Styrkurinn var veittur við hátíðlega athöfn í Norræna húsinu. 25.6.2010 13:42
Barnaheill í Vestmannaeyjum verður Barnahagur Umsjónarmenn styrktarsjóðsins Barnaheill í Vestamannaeyjum hafa breytt nafni sjóðsins í Barnahagur, Vestmannaeyjum. Það er gert til að fyrirbyggja að fólk rugli þeim litla sjóði sjálfboðaliða við landssamtökin Barnaheill á Íslandi - Save the Children. 25.6.2010 13:10
Jónmundur: Ólafur sagði sig sjálfur úr flokknum „Það er alveg kýrskýrt að Ólafur [Áki Ragnarsson. innskt. blm.] er ekki rekinn úr flokknum. Hvorki af mér persónulega, né af miðstjórn flokksins,“ segir Jónmundur Guðmarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins en Ólafur Áki, sem áður gegndi embætti bæjarstjóra í Ölfusi, sagðist hafa verið vísað úr flokknum. 25.6.2010 12:51
Sveitarstjórnarkosningar gerðar upp hjá VG Niðurstaða sveitastjórnarkosninganna verður meðal helstu mála sem rædd á flokksráðsfundi Vinstri grænna. Einnig verður rætt um hvernig tryggja megi eignarhald þjóðarinnar á auðlindum sínum. 25.6.2010 12:05
Slökkviliðsmenn sennilega á leið í verkfall - „Menn tilbúnir í allt“ „Það leggst náttúrulega illa í mig að þurfa að taka þessar ákvarðanir," segir Sverrir Björn Björnsson, formaður landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, aðspurður um hvernig þær aðgerðir sambandsins um að boða til verkfalls leggist í hann. 25.6.2010 11:43
Afar sjaldgæft að menn séu reknir úr stjórnmálaflokkum „Ég man ekki eftir því að nokkur hafi verið rekinn úr Sjálfstæðisflokknum,“ segir Birgir Guðmundsson, stjórnarmálafræðingur, um brottrekstur Ólafs Áka Ragnarssonar, fyrrverandi bæjarstjóra Ölfus, úr Sjálfstæðisflokknum. 25.6.2010 11:28
Unnu 23 milljónir í lottó - miðinn var í hanskahólfinu Það voru heppin hjón frá Suðurnesjunum sem komu til Íslenskrar getspár með vinningsmiða frá síðustu helgi uppá rúmar 23 milljónir. Heimilisfaðir fjölskyldunnar hafði brugðið sér inn í Brautarnesti í Keflavík á þjóðhátíðardaginn sjálfan og kippt með sér einum 10 raða sjálfvalsmiða. Það var svo ekki fyrr en á mánudagskvöldið sem hjónin athuguðu miðann sinn eftir að þau heyrðu að lýst væri eftir vinningshafa sem hafði keypt miða í Brautarnesti. 25.6.2010 11:07
Eldur í kexverksmiðjunni Fróni Eldur kviknaði í vél í kex-verksmiðjunni Frón í Árbæ í morgun. Eldurinn er minniháttar og er ein deild frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu á vettvangi. 25.6.2010 10:47
Rekinn úr Sjálfstæðisflokknum degi fyrir landsfund „Mér var vísað úr flokknum í gær,“ segir Ólafur Áki Ragnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Ölfuss, en hann var rekinn úr Sjálfstæðisflokknum í gær. Það var framkvæmdarstjóri flokksins, Jónmundur Guðmarsson, sem hringdi í hann í gær og tilkynnti honum að miðstjórn flokksins hefði ákveðið að vísa honum úr flokknum. 25.6.2010 10:21
Barnaheill tengist ekki golfmóti Hermanns Barnaheill - Save the Children á Íslandi segir að félagið standi ekki að fjársöfnun í tengslum við golfmót Hermanns Hreiðarssonar, Herminator, sem fer fram í Vestmannaeyjum á morgun. Í tilkynningu sem félagið hefur sent fjölmiðlum segir að um er að ræða misskilning þar sem styrktarsjóður fyrir börn í Vestmannaeyjum er kynntur undir nafninu Barnaheill í Vestmannaeyjum. 25.6.2010 10:09
Femínistar reiðir vegna kvennakvölds Besta flokksins "Það eru vond vinnubrögð og óvirðing að borgin skuli vera að troða sér inn í skipulagningu dags sem væri ekki til án vinnu grasrótarhreyfingu kvenna," segir Sóley Tómasdóttir borgarfulltrúi Vinstri Grænna. 25.6.2010 10:05
Makríll veiðist um allan sjó Tvö fjölveiðiskip eru nú á landleið með makríl, sem þau veiddu á Reykjaneshrygg, þannig að hann er farinn að veiðast um allan sjó, eins og sjómenn orða það. 25.6.2010 07:35
SUS vill draga ESB umsóknina til baka Samband ungra Sjálfstæðismanna (SUS) skorar á stjórnvöld að draga umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu til baka sem fyrst. 25.6.2010 07:29
Tveir lyfjaðir ökumenn teknir úr umferð Tveir ökumenn voru teknir úr umferð í Reykjavík í nótt. Annar er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna, en inn um að hafa ekið undir áhrifum löglegra lyfja, en að hafa neytt þeirra ótæpilega. 25.6.2010 07:19
Rífandi gangur í laxveiðinni Laxveiðin fer víða mun betur af stað en undanfarin ár, en veiði er byrjuð í öllum helstu laxveiðiánum. 25.6.2010 07:16
Málþófið á Alþingi heyri sögunni til Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, lagði fram lagafrumvarp á Alþingi í gær um þingsköp Alþingis. Frumvarpið á að bæta umræðuhefð þingmanna og koma í veg fyrir málþóf. Siv sækir fyrirmyndina til norska þingsins þar sem hún segir að málþóf sé hætt og umræðuhefðin mun betri. 25.6.2010 06:00
Styttist óðum í stóru ferðahelgarnar „Stærstu helgarnar hafa verið fyrsta helgin í júlí og verslunarmannahelgin en umferð í júní hefur verið að aukast. Álagstímabilið er því frá lokum júní til verslunarmannahelgar,“ segir Guðbrandur Sigurðsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 25.6.2010 05:45
Ragnheiður er hæf í nefndina Formaður þingnefndar sem á að fjalla um og bregðast við skýrslu rannsóknarnefndar, segir að hugsanlegt vanhæfi nefndarmannsins Ragnheiðar Ríkharðsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokks, hafi verið yfirfarið af nefndinni. 25.6.2010 05:30
Spara í umhverfis- og forvarnamálum Stöður sérfræðings í umhverfismálum og verkefnisstjóra í íþrótta-, forvarna- og menningarmálum í Árborg verða lagðar niður, gangi hugmyndir meirihlutans eftir. Tillögur þess efnis verða lagðar fram á fundi bæjarráðs í dag. Þá verður staða starfsmannastjóra lögð niður, en enginn hefur gegnt henni í tvö ár. 25.6.2010 05:15
Hjálpar þúsundum heimila Alþingi samþykkti í gær heimilispakkann svokallaða, fimm lagafrumvörp sem miða að því að aðstoða fjárhagslega verst stöddu heimilin í landinu. Félagsmálaráðherra telur lögin koma til með að styðja við þúsundir heimila. Allt að 22 þúsund heimili í landinu þurfi á umtalsverðum skuldbreytingum að halda og með nýju lögunum fækki umtalsvert í þeim hópi. Allt að fimm þúsund heimili munu nýta sér úrræðin, að mati varaformanns félags- og tryggingamálanefndar. 25.6.2010 05:00
Fréttaskýring: Tveir andstæðir pólar í gengislánamáli Tvær fylkingar takast á um næstu skref eftir að Hæstiréttur úrskurðaði ólögmæti gengistryggðra bílalána fyrir viku. Annar hópurinn segir vaxtatöflu Seðlabankans eiga að taka við af gengistryggingunni. Hinn krefst þess að upphaflegir samningsvextir standi. 25.6.2010 04:45
Börðu og spörkuðu í lögreglu Ríkissaksóknari hefur ákært tvö ungmenni í tveimur aðskildum málum fyrir árásir á lögreglumenn við skyldustörf. 25.6.2010 04:30
Þing samþykkir lagafjöld í þágu hinna verst stöddu Fimm frumvörp sem miða að því að aðstoða þá skuldara sem verst standa fjárhagslega voru samþykkt á Alþingi í gær á sérstökum þingfundi vegna þeirra mála. 25.6.2010 04:15
Umhverfisvæn húsbygging Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra tók Snæfellsstofu á Skriðuklaustri í notkun í gær. Snæfellsstofa er ný gestastofa fyrir austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs og í tilefni dagsins var einnig opnuð umhverfisfræðslusýningin Veraldarhjólið í stofunni. 25.6.2010 04:15
Braut gegn fjórtán ára stúlku Rúmlega tvítugur karlmaður hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn barni. Þá var hann dæmdur til að greiða stúlkunni 200 þúsund í miskabætur. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa tvívegis haft samræði við fjórtán ára stúlku. 25.6.2010 04:00
Skemmdir á tuttugu bílum Hvítar málningarslettur á Suðurlandsveginum, rétt hjá Litlu kaffistofunni, skemmdu hátt í tuttugu bíla í gær. Sumir bílanna urðu óökufærir. Málningin hafði hellst á veginn úr fötu við vegarkantinn og biðu ökumenn í meira en tvo tíma eftir aðstoð lögreglunnar. 25.6.2010 04:00
Upplýsandi fundur í Stjórnarráðinu „Það var verið að kynna okkur ákveðnar sviðsmyndir sem Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn hafa verið að setja upp í framhaldi á dómi Hæstaréttar. Þær voru misdökkar eftir því hvaða forsendur voru gefnar,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. 24.6.2010 20:39
Fischer grafinn upp á næstu dögum Undirbúningur þess að grafa upp lík skákmeistarans Bobby Fischers er hafinn. Tjaldað verður yfir gröfina meðan hún verður opnuð og lífsýni sótt. Þetta er gert til sannreyna kröfur í faðernismáli gegn dánarbúi Fischers. 24.6.2010 19:51
Einar K.: Flokkurinn er ekki að klofna Sjálfstæðismenn hafa ástæðu til að óttast klofning flokksins verði tillaga um að Ísland dragi umsókn sína um aðild að Evrópusambandinu til baka borin upp á landsfundi flokksins. Þetta segir, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðismanna. Einar K. Guðfinnsson, þingmaður flokksins segir ummæli sem þessi minna á hótanir. 24.6.2010 19:27
Jón Gnarr: Starfandi stjórnarformaður verndar almannahagsmuni Sjálfstæðismenn og Vinstri grænir í minnihluta borgarstjórnar segja skjóta skökku við að Besti flokkurinn og Samfylkingin ráði stjórnarformann til Orkuveitunnar fyrir tæpa milljón á mánuði á sama tíma og niðurskurður er boðaður í borginni. En nýi meirihlutinn í borginni hefur ákveðið að ráða starfandi stjórnarformann til Orkuveitunnar. 24.6.2010 19:14
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent