Femínistar reiðir vegna kvennakvölds Besta flokksins SB skrifar 25. júní 2010 10:05 Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri Grænna, ósátt við kvennakvöld besta flokksins. "
Það eru vond vinnubrögð og óvirðing að borgin skuli vera að troða sér inn í skipulagningu dags sem væri ekki til án vinnu grasrótarhreyfingu kvenna," segir Sóley Tómasdóttir borgarfulltrúi Vinstri Grænna. Borgarráð samþykkti í gær að halda Kvennakvöld þann 24. október. Sóley bókaði mótmæli þar sem ekki hefur verið haft samráð við regnhlífasamtök kvennahreyfingarinnar á Íslandi - Skotturnar. "Tillaga meirihlutans um sérstakan kvennaviðburð í lok október, þvert ofan í fyrirhugaða viðburði á vegum kvennahreyfingarinnar án þess að samráð hafi verið haft við grasrótarsamtök á þeim vettvang, er til marks um slæleg vinnubrögð og afturför hvað samráð og samstarf varðar, þrátt fyrir fögur fyrirheit," segir Sóley í bókun sinni. 24. október er sögufrægur dagur í kvennabaráttunni. Árið 1975 gengu tugþúsundir kvenna út af vinnustöðum og heimilum sínum á þessum degi og ákvaðu að gera stöðu kvenna í samfélaginu sýnilegri. Þessi aðgerð var endurtekin árið 1985 og svo í þriðja skiptið árið 2005 þegar 50 þúsund konur hættu vinnu síðdegis til að benda á að laun kvenna væru aðeins 2/3 hluti af launum karla. Sóley segir þennan dag ávallt hafa verið skipulagðan af grasrótarsamtökun kvenna og því skjóti skökku við að borgin hafi ekki samráð við þessi samtök. "Það liggur fyrir bréf frá regnhlífasamtökunum Skottunum þar sem borgin er beðin um að sýna þeim stuðning en því bréfi hefur ekki verið svarað." Forsvararskona Skottanna er Guðrún Jónsdóttir, betur þekkt sem Guðrún í Stígamótum en hún er jafnframt móðir Sóleyjar. Guðrún segir það sérstakt að borgin ræði ekki við þau samtök sem hafa barist fyrir þessum degi. "Ég trúi ekki öðru en að meiningin sé að styðja kvennabaráttuna," segir Guðrún. "Ég veit ekkert hvað þau eru að hugsa með þessu kvennakvöldi en það er nóg sem við erum með á prjónunum, við erum að skipuleggja alþjóðlega ráðstefnu, og dagskrá á Arnarhóli. Við reyndum að ná eyrum fyrri borgarstjórnar en fengum engin svör." Guðrún segist treysta því að trúa að hugmyndin sé að leggja kvennabaráttunni lið. "Við hlökkum til að heyra í hinni nýju borgarstjórn varðandi samráð og samstarf," segir Guðrún.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira