Von á yfirlýsingu vegna gengislána 25. júní 2010 14:12 Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra „
Það er nú hægt að lofa yfirlýsingu fljótlega en ég ætla nú ekki að segja nákvæmlega hvað fljótlega felur í sér," segir Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra. Viðskiptaráðuneytið hefur undanfarið átt samráð við fjármálafyrirtæki til að draga úr óvissu vegna dóms hæstaréttar um lögmæti gengistryggingar lána. Ekki er annað á honum að heyra en afrakstur þess verði gerður ljós á næstunni. „Við viljum auðvitað reyna að draga úr óvissu sem fyrst. Það er hins vegar þannig að við getum ekki eytt allri óvissu. Það er sama hvað við gerum núna, það mun ekki eyða allri óvissu. Henni verður ekki eytt fyrr en hæstiréttur hefur átt síðasta orðið og það getur ekki orðið á allra næstu dögum." Gylfi segist vonast þó til að hægt sé að draga úr óvissunni og koma skipulagi á lánamálin svo hægt sé að lifa við óvissuna þar til henni hefur verið eytt með öllu. Á þingfundi í gær sagði Gylfi að ef lágir samningsvextir lánanna yrðu látnir gilda áfram í ofanálag við afnám gengistryggingar þeirra gæti það reynst bankakerfinu þungt högg. En ætlar ríkisstjórnin að beita sér til að milda þetta högg á bankakerfið? „Ríkisstjórnin getur auðvitað ekki breytt niðurstöðu hæstaréttar. Við þurfum auðvitað að haga okkur á ábyrgan hátt, og við þurfum því að koma í veg fyrir að slík niðurstaða ógni fjármálastöðugleika. Það er fyrst og fremst það sem við erum að reyna að ná fram."
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira