Hjálpar þúsundum heimila 25. júní 2010 05:00 Árni Páll. Mynd/Anton Brink
Alþingi samþykkti í gær heimilispakkann svokallaða, fimm lagafrumvörp sem miða að því að aðstoða fjárhagslega verst stöddu heimilin í landinu. Félagsmálaráðherra telur lögin koma til með að styðja við þúsundir heimila. Allt að 22 þúsund heimili í landinu þurfi á umtalsverðum skuldbreytingum að halda og með nýju lögunum fækki umtalsvert í þeim hópi. Allt að fimm þúsund heimili munu nýta sér úrræðin, að mati varaformanns félags- og tryggingamálanefndar. Talsmenn heimila, lánþega og neytenda fagna þessum áfanga, en telja að lengra mætti ganga. Meðal nýrra laga eru lög um umboðsmann skuldara, sem skal sinna hagsmunagæslu fyrir skuldsett fólk, til dæmis í samningaviðræðum við lánastofnanir. Umboðsmaður skal setja sanngirnisviðmið í samningum og leiða fólk í gegnum greiðsluaðlögun. „Þetta var mikill gleðidagur," segir félagsmálaráðherra, Árni Páll Árnason. Umboðsmaðurinn geti hafið störf í ágúst. „Það er grundvallarbreyting að við náum að gera fólki kleift að losna undan óviðráðanlegum skuldum," segir ráðherra, en greiðsluaðlögunarúrræði hafa verið milduð og stytt í tíma. Aðlögunin tekur nú að hámarki þrjú ár og eiga lánardrottnar nú síður að sjá sér hag í því að fara með málin fyrir dóm. Árni segir umboðsmanninn nauðsynlegan því ekki hafi gengið eftir að láta kröfuhafa semja við skuldara án milligöngu ríkisins. Lög sem leyfa fólki með tvær fasteignir að setja aðra þeirra upp í skuldir voru einnig samþykkt í gær. Einnig má nefna breytingar á tekjuskattslögum, sem kveða á um skattfrjálsar afskriftir skulda, upp að vissu marki. Friðrik Ó. Friðriksson, formaður stjórnar Hagsmunasamtaka heimilanna, segir öll málin mikilvæg til að bæta stöðu fólks í greiðsluerfiðleikum. „Þetta eru miklar framfarir í okkar samfélagi. Það er enginn sem deilir um það," segir hann. Úrræðin forði því þó ekki að fleiri lendi í vanda. Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, segist fagna öllum réttarbótum. „En ég hef nú kallað eftir heildstæðari lausn. Ég held að eftir efnahagshrun þurfi að gera meira," segir hann. Allt séu þetta samt skref í rétta átt. Guðmundur Andri Skúlason, formaður Samtaka lánþega, gleðst sömuleiðis yfir því að komið sé til móts við vanda heimilanna. Hvert skref skipti máli: „Aftur á móti finnst okkur þetta langt frá því að vera nægilega langt gengið." - kóþ, þeb /
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira