Styttist óðum í stóru ferðahelgarnar 25. júní 2010 05:45 Undanfarin ár hafa orðið til langar umferðarteppur á álagstímum við jaðra höfuðborgarsvæðisins. Þeim sem vilja sleppa við umferðarteppur er ráðlagt að leggja af stað fyrr út úr bænum á föstudegi og fyrr af stað heim á sunnudegi. Mynd/Daníel Rúnarsson „
Stærstu helgarnar hafa verið fyrsta helgin í júlí og verslunarmannahelgin en umferð í júní hefur verið að aukast. Álagstímabilið er því frá lokum júní til verslunarmannahelgar," segir Guðbrandur Sigurðsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Undanfarin fimm til tíu ár hefur umferð til og frá höfuðborginni á sumrin aukist til mikilla muna. Hefur hún raunar verið svo mikil að vegakerfi höfuðborgarsvæðisins og nágrennis hefur illa ráðið við hana. „Vegirnir bera ekki meira en þeir eru hannaðir til. Þeir eru hannaðir fyrir dags daglega umferð en ekki toppana," segir Guðbrandur. Helgin sem hefst í dag, sú síðasta í júní, hefur oft verið fyrsta stóra ferðahelgin. Árið 2007 sköpuðust sunnudagskvöldið 24. júní raðir upp á tugi kílómetra að Reykjavík. Á Vesturlandsvegi náði bílaröð alla leið frá Grundartanga að Mosfellsbæ og á Suðurlandsvegi náði hún frá Hveradölum að Reykjavík. Í fyrra skapaðist mikil umferðarteppa við lok 2+1 kaflans á Suðurlandsvegi á Hellisheiði sunnudagskvöldið 28. júní. Aðspurður hvernig komast mætti hjá því að lenda í umferðarteppum sagði Guðbrandur enga töfralausn vera til staðar. Á venjulegri ferðahelgi færu flestir úr bænum á sama tíma, eftir að vinnu lýkur á föstudegi, og svo væru flestir á sama tíma á leiðinni til borgarinnar aftur á sunnudagskvöldi. „Þeir sem vilja losna við umferðarteppur leggja fyrr af stað. Fara heim á hádegi á sunnudag og taka sér jafnvel frí eftir tólf í vinnunni á föstudegi og leggja fyrr af stað," sagði Guðbrandur enn fremur. Skýringin á aukinni umferð undanfarin ár er aðallega sú mikla fjölgun skráðra ökutækja sem varð allt fram að bankahruninu haustið 2008. Annað sem hefur haft áhrif er aukinn straumur ferðamanna til landsins, en þeir leigja margir bílaleigubíla, og gífurleg fjölgun ferðavagna svo sem fellihýsa í eigu Íslendinga. Mikil umferð hefur ekki í för með sér meiri slysahættu því umferðin verður þung og hæg. Lögreglan varar hins vegar eindregið við glæfralegum framúrakstri við þessar aðstæður og biður fólk að hafa eftirfarandi spakmæli í huga: minni hraði, minni skaði. magnusl@frettabladid.is
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Hnífjafnt og möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira