Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Töluvert vatnsrennsli niður Gígjökul Smá sprengingar hafa verið í morgun í gosinu í Eyjafjallajökli, en að öðru leyti er gosórói svipaður og undanfarna sólarhringa. Aska stígur upp í rösklega þriggja kílómetra hæð og leggur til norðvesturs, en öskufall í byggð er sára lítið og greinist varla, þar sem það er á annað borð. 27.4.2010 12:07
Kanna skilyrði eftir hádegi Ekkert innanlandsflug hefur verið í morgun vegna eldfjallaösku í lofti, en Flugfélag Íslands og Ernir ætla að kanna skilyrði eftir hádegi. Flugi Icelandair og Iceland Express frá landinu var flýtt un nokkrar klukkustundir í morgun, en loftrými yfir Keflavíkur- og Reykjavíkurflugvöllum eru lokuð. 27.4.2010 12:05
Seinkun á flugi næsta sólarhringinn - flogið á fimmtudag Icelandair stefnir að því færa tengibanka sinn frá Glasgow til Íslands á morgun og fljúga samkvæmt áætlun frá og með fimmtudagsmorgni. Vegna takmarkana á flugi um Keflavíkur- og Akureyrarflugvelli næsta sólarhringinn er gert ráð fyrir töluverðum seinkunum fram að þeim tíma. 27.4.2010 11:53
Niðurstaða dómstólsins kom á óvart „Þetta kom svolítið á óvart en ég var alltaf ótrúlega bjartsýnn,“ segir Vörður Ólafsson, húsasmiður, en hann kærði gjaldtöku Samtaka Iðnaðarins til Mannréttindadómstóls Evrópu sem komst að þeirri niðurstöðu að iðnmálagjald stæðist ekki ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu. 27.4.2010 11:20
Ökumanns leitað Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns sem stöðvaði ekki bifreið sína eftir árekstur tveggja bifreiða á mótum Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar í hádeginu í gær. 27.4.2010 11:08
Framkvæmdastjóri SI: Nýsköpun mun skaðast „Þetta er stór þáttur í okkar tekjustraumum en tilvera okkar veltur ekki á þessu,“ segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdarstjóri Samtaka Iðnaðarins, en Mannréttindadómstóll Evrópu birti úrskurð í morgun um að iðnmálagjald sé ólögmætt. 27.4.2010 10:56
Iðnaðarmálagjald stenst ekki ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu Mannréttindadómstóll Evrópu (MDE) kvað upp dóm um lögmæti iðnaðarmálagjalds í morgun. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að lögin um iðnaðarmálagjaldið stæðust ekki ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu. 27.4.2010 10:29
Íslendingar nota allt að 20 milljónir plastpoka á ári Umhverfisráðuneytið áætlar að á bilinu 15-20 milljónir plastpoka séu notaðir hér á landi á ári hverju. Þetta kemur fram í skriflegu svari umhverfisráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur, þingmanns Framsóknarflokksins. 27.4.2010 10:16
Sá sem drakk stíflueyði í samkvæmi er úr allri lífshættu Maðurinn sem drakk stíflueyði í samkvæmi þar síðustu helgi hefur verið útskrifaður af gjörgæslu Landspítalans. 27.4.2010 10:06
Halldór: Sömdum ekki um skiptingu bankanna „Allt tal um pólitískt samkomulag um skiptingu bankanna er út í hött. Það áttu engin slík samtöl sér stað milli mín og Davíðs," segir Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins. Hann segir að það hafi ekki verið mistök að skipa Davíð Oddsson í stöðu bankastjóra Seðlabankans. 27.4.2010 09:52
Ekki í lífshættu eftir að hafa drukkið stíflueyði Karlmaður, sem saup á stíflueyði í verslun Húsasmiðjunnar við Skútuvog í Reykjavík á níunda tímanum í gærkvöldi liggur sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landsspítalans, en mun ekki lengur vera í lífshættu. Þegar starfsfólk og viðskiptavinir í versluninni sáu hvers kyns var, brugðust þeir réttilega við og reyndu að láta manninn drekka mjólk á meðan beðið var eftir sjúkraliði. Við fyrstu skoðun reyndist hann mjög bólgin og sviðin í munnholi og vélinda. 27.4.2010 08:21
Á annað hundrað umferðarlagabrot á 15 árum Karlmaður sem nýverið hlaut sex mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Suðurlands fyrir umferðarlagabrot, hefur framið samtals 185 slík brot síðastliðin 15 ár, eða rösklega tíu brot á ári að meðaltali. Síðast var hann tekinn próflaus, en framvísaði ökuskírteini, sem ekki var lengur í gildi því búið var að svipta hann réttindum. Fyrir utan fjölmargar sektir, er refsingin núna sú sjöunda síðan árið 2003. Við lauslega athugun virðist þessi brotaferill mannsins með eindæmum hér á landi. 27.4.2010 08:13
Tveir stútar stöðvaðir Lögreglan í Árnessýslu stöðvaði ökumann á Þorlákshafnarvegi í gærkvöldi grunaðan um akstur undir áhrifum fíkniefna. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók annan úr umferð í nótt fyrir sömu sakir, en þrír ökumenn, allt karlmenn, voru teknir úr umferð fyrir fíkniefnaakstur í borginni um helgina. Sex voru auk þess teknir fyrir ölvunarakstur í borginni um helgina, þar af fjórir karlmenn. Í þessum níu tilvikum áttu karlmenn aðild að sjö, en konur aðeins að tveimur. 27.4.2010 08:08
Öllu flugi frestað fram yfir hádegi Öllu flugi Flugfélags Íslands hefur verið frestað fram yfir hádegi, vegna eldfjallaösku í lofti. Athugað verður nánar með flug upp úr klukkan eitt. Flugfélagi Ernir hefur líka frestað öllu sínu morgunflugi, sem átti að vera til Sauðárkróks, Hafnar og Bíldudals. Aðstæður verða endurmetnar í hádeginu. 27.4.2010 07:53
Forseta settar siðareglur Embætti forseta Íslands verða settar siðareglur. Undirbúningur verksins er hafinn í stjórnarráðinu þar sem meðal annars hefur verið skoðað með hvaða hætti reglurnar verða festar í sessi. Kemur til álita að færa þær í lög um laun forsetans eða gefa þær út með forsetabréfi. Forsetabréf eru ein tegund stjórnsýslufyrirmæla en aðrar eru forsetaúrskurðir og reglugerðir ráðherra. 27.4.2010 06:30
Skilanefnd kannar hvort birta megi styrki til stjórnmálamanna Skilanefnd Glitnis er að kanna hvort nokkuð sé því til fyrirstöðu að birta upplýsingar um styrkveitingar Glitnis til stjórnmálamanna með sama hætti og skilanefndir Kaupþings og Landsbanka Íslands hafa gert. 27.4.2010 06:00
Hámarksupphæð var tekin út úr reglum Stjórn fulltrúaráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík lagði það til árið 2006, fyrir prófkjör vegna alþingiskosninga 2007, að prófkjörskostnaður mætti ekki fara fram úr einni milljón króna. Einnig áttu frambjóðendur að sýna háttvísi í baráttunni og gera grein fyrir kostnaði að henni lokinni. 27.4.2010 05:00
Földu dóp í rafgeymi bíls Ríkissaksóknari hefur ákært tvo karlmenn og eina konu, Mindaugas Strimaitis, Tadas Griskevicius og Rima Kavalskyte, fyrir að reyna að smygla inn nær 2,8 kílóum af metamfetamíni til sölu og dreifingar. 27.4.2010 04:00
Þingmenn sitji ekki í óþökk grasrótarinnar Þingmenn eru á þingi fyrir kjósendur sína. Telji grasrót flokksins að þingmaður eigi ekki erindi á þing þá á hann einfaldlega ekki erindi þar. 27.4.2010 03:30
Þarf stærra átak en eftir bankahrunið Miklu skiptir að fara strax af stað með markaðsátak til að koma í veg fyrir mikinn samdrátt í fjölda ferðamanna sem koma hingað til lands, segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. 27.4.2010 03:30
Vilja taka lán fyrir framkvæmdum Brýnt er að framkvæmdir verði ekki skornar niður í kreppunni heldur þeim haldið áfram, segir í atvinnustefnu Samfylkingarinnar sem samþykkt var á Reykjavíkurþingi flokksins um helgina. Lagt er til að tekin verði lán til þess að halda framkvæmdastiginu uppi. Borgarsjóður ráði við lántökur sem forðað gætu framkvæmda- og byggingariðnaði frá algjöru hruni. 27.4.2010 03:00
Haldið sofandi eftir að hafa drukkið stíflueyði Manni sem drakk stíflueyði í Húsasmiðjunni við Skútuvog fyrr í kvöld er haldið sofandi í öndunarvél á Landspítalanum. Að sögn vakthafandi læknis á gjörgæslu er líðan mannsins stöðug. Hann var með meðvitund þegar hann kom á spítalann og var honum strax veitt viðeigandi meðferð af sjúkfraflutningamönnum. 26.4.2010 22:53
Meirihluti stjórnar BÍ neitaði að skrifa undir reikninga Á stjórnarfundi Blaðamannafélags Íslands sem haldinn var í kvöld neitaði meirihluti stjórnarinnar að undirrita ársreikning félagsins. Fjórir stjórnarmenn af sjö neituðu að skrifa undir, þau Þóra Kristín Ásgeirsdóttir formaður félagsins, Sólveig Bergmann, Svavar Halldórsson og Elva Björk Sverrisdóttir varaformaður. 26.4.2010 21:15
Össur vill heimsækja Gazasvæðið Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra flutti ræðu á aðalfundi Félagsins Ísland-Palestína í Iðnó í gærkvöldi. Össur fjallaði um málefni Palestínu og á hvern veg Ísland hefur stutt Palestínumenn bæði á stjórnmálasviði og með beinum stuðningi við ákveðin verkefni, meðal annars á sviði heilsugæslu, en Ísland viðurkennir og styður sjálfákvörðunarrétt palestínsku þjóðarinnar, rétt hennar til að stofna sjálfstætt ríki og önnur þjóðarréttindi Palestínumanna. 26.4.2010 20:43
Fluttur á slysadeild eftir að hafa drukkið stíflueyði Maður var fluttur á slysadeild um klukkan hálfníu í kvöld eftir að hann hafði drukkið stíflueyði í Húsasmiðjunni í Skútuvogi. Að sögn vakstjóra hjá slökkviliðinu voru það starfsmenn Húsasmiðjunnar sem kvöddu sjúkralið á vettvang en maðurinn var mjög veikur enda um afar sterkt efni að ræða sem brennir innyfli og getur verið baneitrað. 26.4.2010 21:42
Sex drukknir undir stýri og þrír dópaðir Sex ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að tveir hafi verið stöðvaðir í Reykjavík og Kópavogi og einn í Hafnarfirði og Garðabæ. Þrír voru teknir á laugardag og jafnmargir á sunnudag. 26.4.2010 19:38
Tíðindalaust af gosstöðvunum Kvikustreymi og gosmökkur frá eldgosinu í Eyjafjallajökli hefur verið með svipuðum hætti og undanfarna sólarhringa og hraun heldur áfram að renna til norðurs í upptökum Gígjökuls. Í minnisblaði frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands segir að ekki sjáist merki um að gosi sé að ljúka, þó að virkni á yfirborði sé minni en þegar mest lét. 26.4.2010 19:34
Iceland Express flýtir brottför í fyrramálið Iceland Express ætlar að flýta flugi félagsins til London og Kaupmannahafnar í fyrramálið. Vélarnar fara klukkan 05:30 frá Keflavík í stað 07:00 vegna væntanlegrar lokunar Keflavíkurflugvallar snemma á morgun. 26.4.2010 18:57
Sigmundur: Verulegt svigrúm til skuldaleiðréttingar Formaður Framsóknarflokksins segir bankana hafa svigrúm til verulegrar skuldaleiðréttingar hjá heimilum landsins en yfir helmingur þeirra nái ekki endum saman. Fjármálaráðherra segir stjórnvöld ekki hafa efni á almennri skuldalækkun. Þess í stað eigi að einbeita sér að þeim sem virkilega þurfi á aðstoð að halda. 26.4.2010 18:42
Létust í bílslysi í Reykjanesbæ Stúlkurnar sem létust í bílslysi í Reykjanesbæ á laugardag hétu Lena Margrét Hinriksdóttir, fædd 8 febrúar 1992 og Unnur Lilja Stefánsdóttir, fædd 25. ágúst 1991. 26.4.2010 18:05
Vill aukafund í iðnaðarnefnd Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur farið fram á það við formann iðnaðarnefndar, Skúla Helgason, Samfylkingu, að boðað verði sem fyrst til aukafundar í nefndinni. „Tilefnið er að ítrekað hefur komið fram í umræðu af hálfu opinberra aðila að mörg erlend fyrirtæki hafi líst áhuga á að byggja upp orkufreka atvinnustarfsemi á Íslandi,“ segir þingmaðurinn. 26.4.2010 17:44
Héraðsdómur skal rétta í árásarmáli gegn lögreglusyni Hæstiréttur Íslands snéri úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur sem varðar vanhæfi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu en sonur varðstjóra, sem starfar hjá lögreglunni, kærði annan pilt fyrir að skalla hann í andlitið með þeim afleiðingum að tönn brotnaði. 26.4.2010 16:32
Umhverfisráðuneytið vill læra af rannsóknarskýrslunni Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur sett af stað vinnu í umhverfisráðuneytinu til að fara yfir skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og skoða hvort niðurstöður hennar kalli á breytingar á starfsháttum ráðuneytisins. 26.4.2010 15:58
Sóðaakstur í sumarbyrjun Starfsmönnum Spalar brá heldur betur í brún þegar ökumaður á jeppabifreið ók að minnsta kosti á 70 kílómetra hraða á radar sem notaður var til að lengdarmæla bíla í gjaldhliðina við Hvalfjarðargöngin á sumardaginn fyrsta. 26.4.2010 15:15
Suðurlandsvegur opinn - rólegt hjá lögreglunni á Hvolsvelli Það hefur verið rólegt hjá lögreglunni á Hvolsvelli í dag en Suðurlandsvegur er opinn almennri umferð. 26.4.2010 14:27
Icelandair flýtir flugi vegna óvissu um öskufall Icelandair hefur tilkynnt að brottför tveggja fluga félagsins frá Keflavíkurflugvelli á morgun, þriðjudaginn 27. apríl verður flýtt. Ástæðan er sú að nokkur óvissa er um flug til og frá Keflavíkurflugvelli síðdegis á morgun vegna ösku frá Eyjafjallajökli. Þessi breyting hefur ekki áhrif á annað flug Icelandair á morgun. 26.4.2010 14:21
Sakaður um pyntingar - dæmdur mánuði áður fyrir hrottaskap Einn mannanna, sem var handtekinn vegna frelsissviptingar í Reykjanesbæ rétt eftir páska, var dæmdur aðeins mánuði áður fyrir hrottalega líkamsárás þegar hann ruddist inn á heimili manns ásamt öðrum manni í Keflavík. 26.4.2010 13:27
Vilja flytja stafsemina til Íslands Birgitta Jónsdóttir þingmaður Hreyfingarinnar mun síðar í vikunni kynna heildræna nútíma og málfrelsis- og upplýsingalöggjöf á ráðstefnu á vegum Evrópuráðsins. Hún er nýkomin af svipaðri ráðstefnu í Bandaríkjunum þar sem fréttamenn frá Frontline og 60 minutes hlustuðu á erindi hennar. 26.4.2010 12:44
Aukið rennsli í Markarfljóti Ekki hefur orði vart við öskufall frá gosinu í Eyjafjallajökli í morgun, en rennsli hefur aukist í Markarfljóti, án þess þó að jarðvísindamenn reikni með flóði. 26.4.2010 12:26
Óttast að verða innlyksa á Íslandi Hundruð erlendra ferðamanna hafa afbókað gistingu á hótelum borgarinnar í apríl og maí vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Hótelstjórar eru uggandi og segja fólk helst óttast að verða innlyksa hér á landi. 26.4.2010 12:19
Flug að komast í samt lag Iceland Express vonast til að flug komist í eðlilegt horf í dag. Framan af degi má þó búast við einhverjum seinkunum, að fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu. Reiknað er með að allt flug Iceland Express verði svo komið í samt lag frá Keflavík í fyrramálið. 26.4.2010 11:54
Pilturinn í Reykjanesbæ grunaður um ölvunarakstur Piltur, sem velti bifreið með þeim afleiðingum að tvær stúlkur létust og ein liggur þungt haldin á gjörgæslu landspítalans, er grunaður um að hafa verið ölvaður þegar hann ók bílnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni sem hún sendi frá sér í dag. 26.4.2010 11:39
Hrunið og skýrslan krufin í HÍ Opnir umræðufundir verða í Háskóla Íslands í þessari viku með það fyrir augum að draga lærdóm af skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um hrunið og koma með ábendingar um mikilvæg framtíðarverkefni. 26.4.2010 11:35
Neyddu mann til þjófnaðar og pyntuðu hann í kjölfarið Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar nú mál sem varðar ætlaða frelsissviptingu manns, líkamsmeiðingar, hótanir, þjófnaði og fleira. 26.4.2010 11:30
Reyndi að blekkja lögreglumenn Karlmaður var nýverið dæmdur í hálfsárs skilorðsbundið fangelsi og sviptur ökuleyfi í ár fyrir að aka án réttinda og reyna að blekkja lögreglumenn. Maðurinn sem er 33 ára gamall átti að afhenda ökuskírteini sitt þegar hann var sviptur ökuréttindum en það gerði hann hins vegar ekki og bar því við að hafa týnt ökuskírteininu. Þegar lögreglumenn stöðvuðu hann eftir sviptinguna framvísaði hann umræddu ökuskírteini. 26.4.2010 11:25