Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þriðja stúlkan enn í öndunarvél Stúlka sem flutt var á gjörgæsludeild Landspítalans eftir alvarlegt bílslys á laugardag er enn haldið sofandi í öndunarvél. Líðan hennar er óbreytt, samkvæmt upplýsingum sem fengust frá vakthafandi lækni á deildinni. 26.4.2010 09:35
Skjálftahrina í Bárðarbungu Skjálftahrina varð í Bárðarbungu í norðanverðum Vatnajökli í nótt. Fyrstu vísbendingar sýna að snarpasti skjálftinn hafi verið rúmlega þrír á Richter. Þetta er þekkt skjálftasvæði og telja vísindamenn ekki ástæðu til viðbúnaðar vegna þessa, en fylgst verður með framvindu mála á svæðinu. 26.4.2010 08:32
Góð kolmunnaveiði suður af Færeyjum Góð kolmunnaveiði hefur verið suður af Færeyjum og hafa íslensku skipin fengið þar góðan afla. Nokkur þeirra eru á heimleið með fullfermi og nokkur eru við veiðar. 26.4.2010 08:30
Flogið frá Keflavíkurflugvelli Icelandair ætlar að flytja tengistöð félagsins frá Glasgow til Keflavíkur upp úr hádegi og verður Akureyrarflugvöllur þá ekki lengur millilandavöllur félagsins. Tvær vélar fara þó þaðan fyrir hádegi. Þrjár vélar frá Glasgow munu hinsvegar lenda á Keflavíkurflugvelli síðdegis. 26.4.2010 08:21
Engar fregnir hafa borist af öskufalli Gosið í Eyjafjallajökli er enn í gangi en heldur minni drunur heyrðust frá því niður á Hvolsvöll í nótt en verið hefur. Engar fregnir hafa borist af öskufalli í nótt, en í fyrrinótt varð þess vart, meðal annars á Selfossi. 26.4.2010 08:12
Komu flugvéla seinkað í nótt vegna óvissu Tvær vélar frá Icelandair komu til Akureyrar frá Glasgow í nótt og eru báðar farnar út aftur. Komu þeirra seinkaði í nótt vegna óvissu um ösku í lofti. Þá er vél væntanleg frá Glasgow laust fyrir klukkan tíu. Millilandaflug félagsins verður áfram á milli Akureyrar og Glasgow í dag og allt Ameríkuflugið fer beint á milli Bandaríkjanna og Glasgow. 26.4.2010 08:01
Lífeyrissjóðir meta hvort stefna þurfi bönkunum „Auðvitað er fullt af fólki að kanna réttarstöðu sína og ég viðurkenni það ósköp vel að ég er að kanna réttarstöðu mína.“ Þetta segir Vilhjálmur Bjarnason, lektor við viðskiptafræðideild við Háskóla Íslands. Hann segir menn verða að vanda sig í þessum málum og hann sé að hugsa sinn gang. 26.4.2010 06:45
Landnámsdýr gleðja börnin „Það er mikilvægt að gefa börnum færi á návist við dýrin, sérlega ungviðið. Þetta er einn af þeim þáttum sem mun framvegis gera lífið litríkara hér í Reykjanesbæ,“ sagði Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, þegar lítill húsdýragarður var opnaður í Víkingaheimum í Innri-Njarðvík á laugardag. 26.4.2010 06:00
Má biðja afsökunar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði á miðstjórnarfundi flokksins á laugardag að Framsóknarflokkurinn hefði átt að „sporna við geggjuninni“ í aðdraganda bankahrunsins. 26.4.2010 06:00
Lögreglan rannsakar Gift Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra rannsakar nú málefni Eignarhaldsfélags Samvinnutrygginga og Fjárfestingarfélagsins Giftar ehf. og meðferð stjórnarmanna á fjármunum félaga. Að sögn Björns Hafþórs Guðmundssonar, sveitarstjóra Djúpavogs, er óljóst hversu miklu fé 26.4.2010 06:00
Gosóróinn svipaður og undanfarna daga Ekkert sást til gosmökksins úr Eyjafjallajökli í gærdag, hvorki ofan né neðan frá, að sögn sérfræðinga Veðurstofunnar og Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands. 26.4.2010 05:00
Níræður mætir daglega í vinnu Ólafur Halldórsson, handritafræðingur, hlaut í gær sérstaka heiðursviðurkenningu fyrir framlag sitt til rannsóknar og kynningar á Færeyingasögu. 26.4.2010 05:00
Stefnt að innanlandsflugi eftir helgarhlé Vonast er til að sú breyting verði á dreifingu ösku frá Eyjafjallajökli að hægt verði að taka innanlandsflug upp að nýju í dag. Innanlandsflugið lá niðri um helgina. 26.4.2010 05:00
Krakkarnir í Hvolsskóla heiðraðir Umhverfisráðherra veitti þrjár viðurkenningar fyrir störf á sviði umhverfismála á degi umhverfisins í gær. Sigrún Helgadóttir hlaut náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar Brattholt, sem veitt var í fyrsta skipti. Verðlaunin hlaut Sigrún meðal annars fyrir það að miðla umhverfisfræðslu til barna og ungmenna, með námsefni og verkefnastjórn Grænafánaverkefnisins á árunum 2000-2008. 26.4.2010 05:00
Gestir í vetur 100 þúsund Á laugardaginn kom 100 þúsundasti gesturinn í Hlíðarfjall ofan Akureyrar á þessum vetri. Þetta var Sigríður Jónsdóttir frá Húsavík, sem þáði að launum vetrarkort fyrir næsta vetur í Hlíðarfjalli og flugfar til Reykjavíkur með Flugfélagi Íslands. Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður Hlíðarfjalls, veitti henni verðlaunin. 26.4.2010 04:00
Forðuðust að spilla sök Þrátt fyrir að rannsóknarnefnd Alþingis setji fram mikið af upplýsingum um vafasama viðskiptahætti aðaleigenda bankanna og eignarhaldsfélaga þeirra lagði nefndin litla áherslu á að taka skýrslur af þessum sömu aðilum. Þó var áhersla lögð á að ræða við þá um samskipti þeirra við stjórnvöld þar sem störf stjórnvalda voru í brennidepli nefndarinnar. 26.4.2010 03:15
Tvær látnar eftir bílslys Tvær af stúlkunum þremur sem fluttar voru á gjörgæsludeild Landspítalans í gær eftir alvarlegt bílslys eru látnar, samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á deildinni. Sú þriðja er enn á gjörgæsludeildinni. 25.4.2010 21:03
Sala á flugferðum aðeins fjórðungur af því sem var fyrir gos Það sem stefndi í að verða mesta ferðamannasumar í manna minnum er aðeins svipur hjá sjón eftir eldgosið. Salan er aðeins fjórðungur af því sem var fyrir gos. Þetta segir Matthías Imsland forstjóri Iceland Express. Hann vonar þó að hægt verði að lenda á Keflavíkurflugvelli á morgun. 25.4.2010 18:36
Minnt á lokun á Emstruvegi Lögreglan á Hvolsvelli vill minna á að lokað er um Emstruveg og hafa núna verið sett upp sérstök umferðarskilti til að vekja athygli á því. Mjög hart verður tekið á brotum gegn banni við umferð á þessum vegi. 25.4.2010 17:39
Stefna á flug frá Keflavík á morgun Iceland Express stefnir að flugi til og frá Keflavíkurflugvelli á morgun. Fyrirhugað er að fljúga til London, Kaupmannahafnar, Berlínar og Brussel. 25.4.2010 16:53
Kræklingaræktin skilar peningum Kræklingaræktin er loks eftir tíu ára þróunarstarf farin að skila stórum peningum, segja ráðamenn Norðurskeljar í Hrísey, sem flytja nú meira út í hverri viku en þeir gerðu allt árið í fyrra, og hafa ekki undan pöntunum. 25.4.2010 19:40
Enn heyrast drunur úr Eyjafjallajökli Miklar drunur hafa heyrst frá Eyjafjallajökli í allan dag, að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli. 25.4.2010 16:45
Náttúruverndaverðlaunin afhent í fyrsta sinn Sigrún Helgadóttir, náttúrufræðingur og kennari, hlaut í dag fyrst allra ný Náttúrverndarverðlaun, viðurkenningu Sigríðar í Brattholti. Umhverfisráðherra afhenti verðlaunin við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í hádeginu. Viðurkenninguna hlaut Sigrún fyrir störf sín í gegnum tíðina í þágu náttúrunnar og fræðslu um hana. 25.4.2010 15:09
Flugsamgöngur enn í lamasessi Enn liggur innanlandsflug hjá Flugfélagi Íslands niðri og er ekki búist við því að það verði neitt flogið í dag. 25.4.2010 14:45
Vilja efla alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík Samfylkingin vill kanna möguleika á eflingu alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar og aðkomu Reykjavíkurborgar að samstarfi um rekstur kvikmyndahúss í miðborginni sem myndi helga sig sögu og sýningum á íslenskum kvikmyndum. Þetta kemur fram í kosningastefnuskrá vegna komandi borgarstjórnarkosninga á Reykjavíkurþingi sem haldið var í Breiðholti í gær. 25.4.2010 14:15
Halldór vildi ekki tjá sig um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi ráðherra, vildi ekki tjá sig um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis þegar Vísir náði af honum í dag. 25.4.2010 13:55
Iceland Express flýgur til Kaupmannahafnar og Lundúna Iceland Express flýgur til Kaupmannahafnar og London frá Akureyri núna eftir hádegið. Vélin til Kaupmannahafnar fer klukkan þrjú og vélin til London klukkustund síðar eða klukkan fjögur. Sætaferðir fyrir farþega eru frá BSÍ . 25.4.2010 13:09
Enn takmarkanir á flugumferð Enn eru miklar takmarkanir á flugumferð um landið vegna öskunnar úr Eyjafjallajökli. Ekki er hægt að nota Keflavíkurflugvöll fyrir millilandaflug og fer það því enn um flugvellina á Akureyri og á Egilsstöðum. 25.4.2010 12:18
Drunur heyrðust frá Eyjafjallajökli Miklar drunur heyrðust frá Eyjafjallajökli í gærkvöldi, að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli. Hraun rennur nú hægt til norðurs og bræðir ís en ekki er talin flóðahætta á svæðinu. Karen Kjartansdóttir ræddi við jarðfræðing á Veðurstofu Íslands. 25.4.2010 12:08
Vilja skýrari reglur um forsetann Svavar Gestsson, fyrrverandi ráðherra, telur að forsætisráðuneytið verði að setja nýjar siðareglur um forsetaembættið. Menn verði að gera það upp við sig hvaða hlutverki forsetaembættið eigi að gegna í samfélaginu. 25.4.2010 11:46
Enn í öndunarvélum eftir alvarlegt umferðarslys Stúlkurnar þrjár, sem slösuðust alvarlega í umferðarslysi við Mánatorg norðan Keflavíkur í gærmorgun, eru enn í öndunarvélum á gjörgæsludeild Landspítalans. Stúlkurnar eru á aldrinum 18 til 19 ára. Að sögn læknis á vakt í morgun er líðan þeirra óbreytt frá því í gær. 25.4.2010 09:23
Hátt í hundrað manns ætla að taka þátt í hreinsunarstarfi í dag Nóttin var róleg í grennd við gosstöðvarnar á Eyjafjallajökli. Lögreglan á Hvolsvelli á í dag von á hátt í hundrað manns, félögum björgunarsveita, jeppaklúbbnum 4x4, félögum Fésbókarsíðu og öðrum sem vilja aðstoða við hreinsun og störf á bæjum undir Eyjafjöllum. 25.4.2010 09:17
Gistu fangageymslur eftir að hafa ekið á ljósastaur Fjórir karlmenn gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir að bifreið sem þeir voru í var ekið á ljósastaur í Hafnarfirði. Þeir voru allir undir áhrifum áfengis eða fíkniefna og fundust fíkniefni í bifreið þeirra. Ekki er ljóst hver mannanna fjögurra ók bifreiðinni. Þeir voru handteknir rétt fyrir klukkan hálfsex í morgun og munu lögreglumenn ræða við þá þegar líður á daginn. 25.4.2010 09:13
Engin merki um að gosi sé að ljúka Gosmökkur stendur upp frá gígnum í Eyjafjallajökli til suðvesturs upp í 4 kílómetra hæð. Gjóskufall er lítið og ekki hefur frést af öskufalli á láglendi. Gróflega áætlað er vatnsrennsli frá Gígjökli um 100 til 120 rúmmetrar á sekúndu, samkvæmt tilkynningu sem send var frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjórans nú á áttunda tímanum. 24.4.2010 19:51
Mikilvægar vísbendingar um refsiverða háttsemi Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis má finna mikilvægar vísbendingar um umfangsmikla refsiverða háttsemi í rekstri fjármálastofnana og tengdra aðila. Þetta kom meðal annars fram í erindi Sigurðar Tómasar Magnússonar, prófessors við Háskólann í Reykjavík, á ráðstefnu um rannsóknarskýrsluna sem fram fór í HR í dag. 24.4.2010 19:45
Búast við að Keflavíkurflugvöllur verði lokaður fyrri hluta þriðjudags Icelandair hefur sett upp flugáætlun fyrir næsta þriðjudag sem tekur mið af áframhaldandi flugtakmörkunum á Keflavíkurflugvelli vegna ösku frá gosinu í Eyjafjallajökli. Flugáætlun Icelandair þar til síðdegis á þriðjudag verður 24.4.2010 17:17
Einn með allar tölur réttar í lottóinu Einn heppinn lottóspilari var með allar tölur réttar í lottóinu í kvöld og er hann tæpum 10,6 milljónum ríkari fyrir vikið. Vinningurinn kom á miða með tölunum 28, 29, 35, 37, 38. Miðinn var seldur í Kolaportinu við Tryggvagötu. Þá var einn spilari með fimm réttar tölur í réttri röð í Jokernum og er hann tveimur milljónum ríkari. 24.4.2010 19:30
Haförn orpinn í beinni útsendingu Haförn er orpinn í beinni útsendingu frá hreiðri úr eyju við innanverðan Breiðafjörð. Ef allt gengur að óskum ætti ungi að skríða úr egginu eftir mánuð eða svo. 24.4.2010 18:57
Lífrænt eldsneyti á Þorvaldseyri í sumar Þrátt fyrir ákvörðun um að gera hlé á búskap um óákveðinn tíma stefnir bóndinn á Þorvaldseyri að því að framleiða lífrænt eldsneyti þar í sumar. 24.4.2010 18:53
Karlmaður handtekinn vegna óláta Karlmaður var handtekinn vegna óláta við Austurvöll, skammt frá veitingastaðnum Kaffi París, seinni partinn í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er maðurinn en í hennar haldi en ekki hafa fengist nánari skýringar um málavöxtu. 24.4.2010 18:04
Auglýst eftir vitnum að alvarlegu umferðarslysi Lögreglan á Suðurnesjum auglýsir eftir vitnum að umferðarslysi sem varð í morgun um klukkan hálfsjö á Hringbraut í Keflavík, nærri Mánatorgi. 24.4.2010 16:34
Krían er komin Fuglaáhugamenn á Hornafirði sáu kríuhóp við Ósland á Höfn í dag. Ragnheiður Gestsdóttir, íbúi á Hornafirði, tilkynnti þetta á facebook-síðu sinni og sagði að þarna væru um tíu kríur. Þetta er fyrsta tilkynningin í ár um kríuna. 24.4.2010 15:57
Vél Icelandair fór í loftið um tvöleytið Flug Icelandair til Glasgow sem áætlað var að færi klukkan eitt í dag fór í loftið rétt eftir klukkan tvö, samkvæmt upplýsingum frá Guðjóni Arngrímssyni, upplýsingafulltrúa Icelandair. 24.4.2010 14:04
Enn órói í Eyjafjallajökli Órói er enn í Eyjafjallajökli, samkvæmt upplýsingum sérfræðinga Veðurstofu Íslands á fjölmiðlafundi í Skógarhlíð í morgun. Öskuframleiðsla er enn í gangi en gosmökkurinn er undir 3 km hæð og mælist því ekki á ratsjá. 24.4.2010 12:19
Segir mikilvægt að strandveiðar hefjist á tilsettum tíma Jón Bjarnason, sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra, segir mikilvægt fyrir atvinnulífið á landsbyggðinni að strandveiðar hefjist á tilsettum tíma. Samkvæmt frumvarpi ráðherra eiga strandveiðar að hefjast um næstu mánaðamót en Alþingi á enn eftir að ljúka annarri umræðu um málið. 24.4.2010 12:09