Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Líklegast mælt með aðildarviðræðum síðar í dag Búist er við því að Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mæli með því í dag að aðildarviðræður við Ísland verði hafnar. Verði þetta niðurstaðan á fundi Framkvæmdastjórnarinnar í dag er gert ráð fyrir að málið verði borið upp á leiðtogafundi Evrópusambandsins sem fram fer dagana 25 og 26 mars, en einróma samþykki leiðtoganna þarf fyrir því að málið komist á rekspöl. Það gæti hins vegar orðið þrautin þyngri verði Icesave-deilan við Breta og Hollendinga ekki útkljáð fyrir þann tíma. 24.2.2010 08:13
Enn leitað að loðnu Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson hélt enn á ný til loðnuleitar í gær og verður einkum leitað austur af Vesmannaeyjum. Fiskiskip hafa víða orði vör við loðnu við Suðurströndina, en veiðisvæðið er nú á Faxaflóa, þar sem nokkur skip fengu all góðann afla snemma í gær. 24.2.2010 08:10
Snjókoma veldur töfum fyrir vestan Flutningabílar á leið til Ísafjarðar töfðust um nokkrar klukustundir í gærkvöldi vegna ófærðar á leiðinni. Eitthvað snjóaði vestra í nótt og var þæfingsfærð á götum Ísfjarðarbæjar í morgun og Vegagerðarmenn eru að ryðja vegi þar í grennd. 24.2.2010 08:01
Brotist inn í bíla Brotist var inn í tvo bíla í Austurborginni i nótt og einhverjum verðmætum stolið ur þeim. Úr öðrum var meðal annars stolið radarvara, en þessháttar tæki ásamt GPS staðsetningartækjum virðast öðru fremur vekja áhuga þjófa, ef marka má hverju hefur verið stolið úr bílum að undanförnu. 24.2.2010 07:58
Mikið álag á húð- og kynsjúkdómadeild Álagstoppur hefur verið á húð- og kynsjúkdómadeild Landspítala – háskólasjúkrahúss að undanförnu og allnokkur bið eftir að komast að. 24.2.2010 06:00
Umframorka Landsvirkjunar eftirsótt Mikil sókn er í þá umframorku sem til er í raforkukerfi Landsvirkjunar. Að minnsta kosti þrjú stóriðjufyrirtæki sækjast eftir umframorkunni. „Fyrstur kemur, fyrstur fær,“ segir Agnar Olsen, staðgengill forstjóra Landsvirkjunar. 24.2.2010 05:30
Svarfresturinn rennur út í dag Frestur til að gera athugasemdir við efnisatriði í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið rennur út í dag. Tólf manns úr stjórnsýslunni var gefinn kostur á að skila slíkum athugasemdum og hefur fresturinn til þess einu sinni verið framlengdur. 24.2.2010 05:15
Björgunarsveit vill þefhesta Þótt hestar hafi verið notaðir öldum saman hér á landi við leit og smölun á sauðfé hefur minna farið fyrir því undanfarin ár að þarfasti þjónninn sé notaður við leit og björgun á fólki. 24.2.2010 05:00
Hrunsrannsóknin nái til einkavæðingar bankanna Í minnisblaði til rannsóknarnefndar Alþingis mælist Ólafur Ísleifsson, hagfræðingur og lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, til þess að rannsóknin nái allt til einkavæðingar bankanna. Minnisblaðið er frá í janúar í fyrra. Þá kallaði nefndin fyrir sig hópa hagfræðinga til ráðgjafar. Í erindinu segir Ólafur að kanna þurfi hver hafi verið tildrög þess að bankarnir voru seldir svokölluðum kjölfestufjárfestum en ekki með dreifða aðild fyrir augum eins og boðað hafði verið. 24.2.2010 05:00
Viðbragða við svarbréfi beðið Ekki fengust formleg viðbrögð við svarbréfi íslenskra ráðamanna við tilboði Breta og Hollendinga um lausn Icesave-málsins í gær. Óvíst er að þau fáist í dag en í stjórnkerfinu er vonast til að þau fáist fyrir vikulok. 24.2.2010 04:45
Handtekinn með amfetamín innvortis Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært rúmlega þrítugan karlmann fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. 24.2.2010 04:30
Framlengt á fimm Litháa Héraðsdómur Reykjaness framlengdi í gær gæsluvarðhald yfir fimm litháískum karlmönnum til 8. mars. Tveir þeirra kærðu úrskurðinn til Hæstaréttar. 24.2.2010 04:15
Schengen-aðild betri en að standa utan samstarfsins Ísland hefur frá 1996 greitt tæpan milljarð króna fyrir þátttöku í Schengen-samstarfinu. Um er að ræða greiðslur til stofnana Evrópusambandsins auk kostnaðar sem sérstaklega er stofnað til hér á landi. 24.2.2010 04:15
Reikna með verkföllum í mars Félagsmenn í Félagi íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF) samþykktu á aðalfundi félagsins á mánudagskvöld að fela stjórn og trúnaðarráði félagsins að hefja undirbúning atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls. Í gærkvöldi útfærði svo trúnaðarráð félagsins atkvæðagreiðsluna nánar, það er hvers konar verkfallsaðgerðir félagsmenn fá um að velja. 24.2.2010 04:00
Margt rangt í skýrslu Bandaríkjamannsins Margt í minnisblaði staðgengils sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi af fundi hans með íslenskum embættismönnum er rangt. Þetta sagði Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra í umræðum um málið á Alþingi í gær. 24.2.2010 04:00
Forsetinn hitti nýja sendiherra Forseti Íslands fundaði í gær með tveimur nýjum sendiherrum. Annars vegar frú Manizha Bakhtari, sendiherra Afganistans, og hins vegar herra Ladislav Pivcevic, sendiherra Króatíu. Bæði afhentu trúnaðarbréf sín í gær. 24.2.2010 04:00
Vinningshafarnir fjórir hafa gefið sig fram Vinningshafar síðasta útdráttar í Lottóinu hafa allir skilað sér til að vitja vinninga sinna. Fjórir voru með allar tölur réttar og fékk hver 10,8 milljónir króna í sinn hlut. 24.2.2010 04:00
Niðurfellingar Kaupþings enn til rannsóknar Embætti sérstaks saksóknara rannsakar enn hvort niðurfelling persónulegra ábyrgða starfsmanna Kaupþings vegna hlutabréfakaupa í bankanum samræmist lögum. 24.2.2010 03:45
Kýldi lögreglumann í andlitið Ríkissaksóknari hefur ákært karlmann á fertugsaldri fyrir brot gegn valdstjórninni. 24.2.2010 03:45
Bíða eftir viðbrögðum - ræddi við Wouter Bos Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að enn sé beðið eftir viðbrögðum frá Hollendingum og Bretum við ósk íslenskra stjórnvalda um frekari viðræður í Icesave deilunni. Steingrímur ræddi við Wouter Bos áður en hann lét af embætti fjármálaráðherra Hollands í dag. Hann hefur ekki rætt við eftirmann Bos. 23.2.2010 22:02
Stálu frystikistum, pönnum og flatskjá Frystikistur, flatskjár og pottar voru meðal þess sem stolið var úr vinnubúðum verktaka við Herdísarvík í gærkvöldi eða nótt. Verktakinn vinnur við lagningu Suðurstrandavegar. 23.2.2010 21:07
Þorvaldur Lúðvík beðinn afsökunar Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, fyrrverandi starfsmaður Kaupþings, fékk engar skuldir afskrifaðar hjá Kaupþingi líkt og sagt var í frétt Stöðvar 2 í kvöld. Þorvaldur hætti hjá bankanum árið 2006, seldi öll bréf sín í bankanum og gerði upp lán. Fréttastofa harmar þessi mistök og biður Þorvald afsökunar. 23.2.2010 19:12
Einhleypum konum verði heimilt að nota gjafaegg Frumvarp um breytingu á lögum um tæknifrjóvgun þess efnis að einhleypum konum með skerta frjósemi verði heimilt að nota gjafaeggfrumu við glasafrjóvgun er nú í undirbúningi og gert er ráð fyrir að það verði lagt fram á vorþingi. 23.2.2010 21:35
Jóhannes í Bónus skynjar ekki óánægju „Skoðanakönnun sú, sem lesa má í netmiðlum í dag, þar sem lýst er að 80,1% aðspurðra séu frekar eða mjög andvíg því að ég, Jóhannes Jónsson, starfandi stjórnarformaður Haga, fái að kaupa allt að 10% hlut í Högum af Arion banka, er vægast sagt annað viðmót en ég finn fyrir í verslunum Haga,“ segir Jóhannes í fréttatilkynningu. 23.2.2010 19:40
Var með klám í tölvunni - segir málið einn stóran misskilning 65 ára starfsmaður Oddeyraskóla á Akureyri liggur undir grun um að hafa haft barnaklám í vörslu sinni. Hann viðurkenndi í samtali við fréttastofu í dag að hafa verið með klámefni í tölvu sinni en segir málið einn stóran misskilning. 23.2.2010 19:29
Kærði Steingrím fyrir meinsæri Einn af stjórnendum Milestone kærði Steingrím Wernersson, sem átti 40% hlut í fyrirtækinu, til lögreglu í nóvember síðastliðnum fyrir rangar sakargiftir og meinsæri í yfirheyrslum hjá sérstökum saksóknara síðasta sumar. Þetta kom fram í Kastljósi í kvöld en ekki var greint frá nafni viðkomandi. 23.2.2010 20:08
Listaverksafn Kaupþings í eigu Arion banka Listaverkasafn gamla Kaupþings verður áfram eigu Arion banka samkvæmt samkomulagi sem undirritað var í dag. 23.2.2010 19:23
Hreiðar og Sigurður gætu þurft að borga á þriðja milljarð Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður Einarsson gætu þurft að greiða skattinum á þriðja milljarð króna úr eigin vasa vegna niðurfellinga á lánum. 23.2.2010 18:59
Ríkið leggur hundrað milljónir í einkasjúkrahús Róberts Ríkið leggur hundrað milljónir króna í endurbyggingu gamla hersjúkrahússins á varnarsvæðinu, sem Róbert Wessman ætlar að leigja undir einkasjúkrahús. 23.2.2010 18:53
Samninganefndin í viðbragðsstöðu Íslenska Icesave samninganefndin undir forystu Lee Bucheit fór til Bretlands í morgun og bíður þar í viðbragðsstöðu, óski Bretar og Hollendingar eftir frekari viðræðum. Engir fundir hafa verið ákveðnir, segir Elías Jón Guðjónsson, talsmaður fjármálaráðherra. 23.2.2010 18:32
Ítrekar fyrri yfirlýsingu - lak ekki upplýsingum um Gunnar Gunnsteinn Sigurðrsson, bæjarstjóri í Kópavogi, segist ekki hafa lekið upplýsingum um Gunnar Birgissonar, fyrrverandi bæjarstjóra, til fjölmiðla til koma höggi á sig. Í samtali við fréttastofu í gær vísaði Gunnsteinn því á bug og í tilkynningu sem hann hefur sent frá sér ítrekar hann þá yfirlýsingu. 23.2.2010 18:01
Grunnskólastarfsmaður grunaður um vörslu barnakláms Starfsmaður við Oddeyrarskóla á Akureyri var yfirheyrður í gær vegna gruns um vörslu barnakláms. Lögregla hefur meðal annars lagt hald á vinnutölvu mannsins sem ekki er kennari. Maðurinn er ekki grunaður um að hafa misnotað börn í skólanum en rannsóknin er á frumstigi, að sögn varðstjóra lögreglunnar á Akureyri. Ekki fengust frekari upplýsingar um málið. 23.2.2010 17:25
Nýtt Ísland: Bloggari á stefnuskrá var grín „Þetta var sett inn í gríni og það gleymdist að taka þetta aftur út. Þetta var bara grín,“ segir Sveinbjörn Ragnar Árnason, framkvæmdarstjóri samtakanna Nýs Íslands þegar hann er spurður að því hvernig bloggarinn Teitur Atlason rataði inn í stefnumál samtakanna undir liðnum efnahagur. 23.2.2010 16:44
Útivistarfólk fórnalömb þjófa Brotist var inn í nokkra bíla á ýmsum stöðum á höfuborgarsvæðinu um helgina, meðal annars á bílastæðum við útivistarsvæði, en átta slíkar tilkynningar bárust lögreglunni. 23.2.2010 15:54
Kastaði glasi í ranga konu Níu líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sex þeirra áttu sér stað í miðborginni aðfaranætur laugardags og sunnudags en þær voru allar minniháttar. 23.2.2010 15:42
Dætur Gunnars og tengdasynir gengin í Framsóknarflokkinn „Það var greinilega mikið um nýskráningar hjá okkur. Það vakti töluverða athygli í hópnum að ein dóttir Gunnars Inga Birgissonar var gengin í Framsóknarflokkinn. Þegar betur er að gáð kemur í ljós að það er ekki bara önnur dóttirin sem er komin heldur báðar og tengdasynirnir líka,“ segir bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Kópavogi, og formaður bæjarráðs, Ómar Stefánsson á bloggi sínu. 23.2.2010 15:22
Nýtt Ísland kastaði tómötum í Íslandsbanka Um 120 bílaeigendur mættu og þeyttu flautur sínar fyrir utan Íslandsbanka við Kirkjusand í hádeginu í dag en það voru samtökin Nýtt Ísland sem skipulögðu mótmælin. 23.2.2010 14:42
Össur Skarphéðinsson: Fundinum ekki rétt lýst „Menn eiga að vara sig á því að taka mark á fundargerðum af þessu tagi sem eru gerðar einhliða og oft skrifaðar eftir minni. Það er margt sem er ekki rétt í þessu minnisblaði," sagði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, þegar hann var spurður út í minnisblað sem lak út frá fundi embættismanna utanríkisráðuneytisins og staðgengils sendiherra Bandaríkjanna í síðustu viku. 23.2.2010 14:15
Þjóðin vill ekki að Jóhannes í Bónus fái að kaupa í Högum Áttatíu prósent landsmanna segjast vera frekar eða mjög andvíg því að Jóhannes Jónsson, oftast kenndur við Bónus, og stjórnarformaður Haga, fái að kaupa allt að tíu prósent hlut í Högum af Arion Banka samkvæmt skoðanakönnun MMR. 23.2.2010 13:48
Ekkert eftirlit með rafsegulsviði Ekkert eftirlit er haft með rafsegulsviði á vinnustöðum eins og með hljóð-og loftmengun og eru engar reglugerðir til um það hér á landi. Forstjóri Vinnueftirlitsins segir mikilvægt að settar verðir slíkar reglur og er til í samstarf með Geislavörnum ríkisins. 23.2.2010 13:12
Flúoró-amfetamín fellur undir lög um ávana- og fíkniefni Heilbrigðisráðuneytið sér ástæðu til að árétta sérstaklega í tilkynningu til fjölmiðla í dag, í kjölfar dóms Hæstaréttar vegna gæsluvarðhalds yfir manni sem hafði í fórum sínum meint fíkniefni, að efnið flúoróamfetamín sé afleiða afmetamíns sem falli undir lög um ávana og fíkniefni. 23.2.2010 12:09
Samningum ekki lokið fyrr en við undirskrift Utanríkisráðherra segir samningum ekki lokið fyrr en búið sé undirrita þá, en Í Hollandi er fullyrt að tilboð Hollendinga og Breta í Icesave deilunni frá því fyrir helgi sé endanlegt að þeirra hálfu. Hann sér ekki tilgang með þjóðaratkvæðagreiðslu þegar tilboð um betri niðurstöðu liggur fyrir. 23.2.2010 12:02
„Þyrftu að breyta nafninu í fávitafélagið Nýtt Ísland“ „Mín fyrstu viðbrögð þegar ég sá þetta voru þau að samtökin þyrftu að breyta nafninu í fávitafélagið Nýtt Ísland,“ segir Teitur Atlason, nemi í Alþjóðaviðskiptum í Gautaborg en nafn hans og staða hefur á sérkennilegan hátt slæðst inn í stefnumál samtakanna Nýtt Ísland. 23.2.2010 11:41
Svíum er nokk sama um Icesave Yfir helmingur Svía hafa enga skoðun á mögulegum endurgreiðslum Íslendinga vegna Icesave eða 55 prósent samkvæmt skoðanakönnun MMR sem var framkvæmd dagana 11. - 15. febrúar. 23.2.2010 10:53
Nýtt Ísland tilbúið að veita bloggara frekari námsstyrki Samtökin Nýtt Ísland, sem hafa staðið fyrir bílamótmælum fyrir utan lánastofnanir undanfarna mánuði til þess að mótmæla breyttum myntkörfulánum, hafa athyglisverð mál á sinni stefnuskrá. Þá vekur mesta athygli stefnumálið þeirra er varðar bloggarann Teit Atlason sem skrifar á heimasíðu DV. 23.2.2010 09:59