Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Reykur í Hlíðaskóla Slökkviliðið var kallað að Hlíðaskóla fyrir örfáum mínútum en þar urðu menn varir við reyk. Ekki er vitað á þessari stundu hvort eldur er í húsinu. 2.1.2010 15:59
Veðjað á að forsetinn skrifi undir Meiri líkur eru á því að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, staðfesti Icesave lögin en að hann synji þeim staðfestingar, 2.1.2010 15:40
Forsetinn verði samkvæmur sjálfum sér Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir ekkert annað vera í stöðunni en að forseti Íslands synji Icesave lögunum staðfestingar. 2.1.2010 14:54
Hægt að vera alræmdur fyrir verri hluti en umhyggju „Mér fannst það bara býsna gott verð ég að viðurkenna. Mér fannst reyndar konan mín hlæja helst till mikið af mér. Hún hefði mátt stilla því svolítið í hóf,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, um Áramótaskaupið. 2.1.2010 14:13
Forsetinn fundar með InDefence Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, situr nú fund með fulltrúum InDefence á Bessastöðum. 2.1.2010 11:29
Hundruð manna samankomnir á Bessastöðum Hundruð manna eru saman komnir við bústað forsetans á Bessastöðum. InDefence mun afhenda Ólafi Ragnari Grímssyni hátt í 60 þúsund undirskriftir, núna klukkan ellefu, frá fólki sem hvetur forsetann til að synja lögunum staðfestingar. Fréttamaður Stöðvar 2 og Vísis sem er á staðnum telur að það séu minnst 600 manns sem taki þátt í athöfninni. 2.1.2010 10:57
Kirkjan var varnarlaus dýrgripur „Þetta er alveg skelfilegt. Þetta er svona varnarlaus lítill dýrgripur. Kirkjan hefur ekki verið fyrir neinum en það eru ákaflega margir sem bera hlýhug til kirkjunnar,“ segir Þórhallur Heimisson prestur í Hafnarfirði. 2.1.2010 10:34
Krýsuvíkurkirkja brann til grunna Krýsuvíkurkirkja brann í nótt og er fallin. Slökkviliðsmenn úr Grindavík nutu liðsinnis félaga sinna af höfuðborgarsvæðinu við að bjarga því sem bjarga varð. Ekki hafa fengist upplýsingar um eldsupptök. 2.1.2010 09:16
Fylgjast grannt með gangi mála á Íslandi Erlendir fjölmiðlar hafa fylgst grannt með framgangi Icesave málsins eftir að Alþingi samþykkti lögin á miðvikudag. Á fréttavef Daily Telegraph er sagt frá því að forsetinn muni í dag hitta forsvarsmenn Indefence hópsins. Indefence hefur safnað hátt í 60 þúsund undirskriftum til þess að hvetja forsetann til þess að synja Icesave lögunum staðfestingar þannig að kosið verði um málið í þjóðaratkvæðagreiðslu. 2.1.2010 08:00
Telja sig eiga að fá 33 milljónir Hjón sem fengu ekki byggingarlóð í úthlutun seint á árinu 2005 hafa stefnt Kópavogsbæ og krefjast 33 milljóna króna í bætur. Hjónin sóttu um nokkrar lóðir á Kópavogstúni, þar á meðal sjávarlóð við götu sem nú heitir Kópavogsbakki. Þau fengu enga lóð. 2.1.2010 06:00
Öll nýfædd börn fá handprjónaða húfu Öll börn sem fæðast á þessu ári munu fá handprjónaða húfu að gjöf frá Kvenfélagasambandi Íslands. Kvenfélagskonur um land allt hafa ákveðið að ráðast í þetta verkefni í tilefni af 80 ára afmæli sambandsins. Fyrstu húfurnar voru afhentar á fæðingardeild Landspítalans í vikunni. 2.1.2010 06:00
360 milljónir af ríkisfé til KSÍ Knattspyrnusamband Íslands (KSÍ) hefur á síðastliðnum fimm árum fengið 360 milljónir króna úr ríkissjóði. Hafa peningarnir ýmist runnið í gegnum Íþrótta- og Ólympíusambandið (ÍSÍ) eða beint til knattspyrnusambandsins til afmarkaðra verkefna. 2.1.2010 05:00
Með tæp fjögur kíló af amfetamíni Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli handtók um miðjan desember karlmann á þrítugsaldri sem flutti með sér amfetamín til landsins. Maðurinn situr nú í gæsluvarðhaldi. 2.1.2010 04:30
Nærri 80 milljónir í ritun sögu Akraness „Nú er svo komið að ég hef misst alla tiltrú á orðum sagnaritarans og get því ekki greitt atkvæði með nýjum samningi,“ segir í bókun Karenar Jónsdóttir þegar hún ein níu bæjarfulltrúa á Akranesi neitaði að samþykkja viðbótagreiðslur vegna ritunar á Sögu Akraness. 2.1.2010 03:00
Búið að ákveða að taka greinina af lífi „Það er búið að ákveða að taka greinina af lífi,“ segir Hilmar Konráðsson, forstjóri Magna verktaka. Hilmar fór fyrir Verktakalestinni svokölluðu sem á mánudaginn fyrir jól ók frá Hafnarfirði til Alþingis og færði fjárlaganefndarmönnum áskorun um að skila Vegagerðinni til baka óráðstöfuðum fjárheimildum og ráðast þegar í arðbærar framkvæmdir. Tæpum sólarhring síðar voru fjárlög næsta árs samþykkt. Ekki var tekið tillit til áskorunar verktakanna. 2.1.2010 03:00
Stöndum öll undir dómi Guðs „Hin tæra, íslenska viðskiptasnilld var hátt rómuð, en lítt var spurt út í heilindi og heiðarleika, aga og trúfesti. Afleiðingin verður menning gagnkvæmrar tortryggni og vantrausts,“ sagði Karl Sigurbjörnsson, biskup þjóðkirkjunnar, í áramótaávarpi. 2.1.2010 02:00
Gríðarleg svifryksmengun af völdum flugelda Gríðarlega mikil svifryksmengun varð af völdum flugelda uppúr miðnætti á höfuðborgarsvæðinu í gær vegna stillu. Þetta er þó ekki mesta mengun sem mælst hefur á gamlárskvöld en hún stóð yfir í lengri tíma en gengur og gerist. 1.1.2010 12:08
Rúmlega 53 þúsund skora á forsetann Nú hafa hátt í 53 þúsund manns skráð sig á lista Indefence í þeim tilgangi að hvetja Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, til þess að synja Icesave lögunum staðfestingar. Ólafur Ragnar sagði eftir ríkisráðsfund í gær að hann myndi taka sér frest til þess að staðfesta lögin. Um 228 þúsund manns voru á kjörskrá fyrir síðustu þingkosningar og því lætur nærri að um 23% hafi skorað á forsetann. 1.1.2010 11:49
25 létust í slysum á árinu 2009 Á nýliðnu ári létust 25 einstaklingar af slysförum. Það eru fimm færri árið þar áður. Flestir létust í umferðarslysum eða 17, þrír í vinnuslysum, þrír í drukknuðu, einn lést í sjóslysi, einn í flugslysi en enginn í heima og frítímaslysum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu. 1.1.2010 11:27
Umþóttunarfrestur Ólafs vekur athygli erlendis Sú ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands að taka sér frest til þess að staðfesta Icesave lögin hafa vakið athygli út fyrir landsteinana. Sagt var frá málinu á vef Telegraph í gærkvöldi. 1.1.2010 11:05
Sjúkraflutningamenn fóru í hátt í 50 útköll Dælubílar slökkviliðsins fóru í 14 útköll og þurfti slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu að sinna alls 48 sjúkraflutningum. Um helmingur þeirra var skilgreindur sem neyðartilfelli. Útköll á dælubíla voru flest vegna íkveikja, en nokkuð var um að kveikt væri í ruslatunnum og blaðagámum. 1.1.2010 10:07
Kirkjuvörður í Grensáskirkju: „Aðkoman var ekki falleg“ „Aðkoman var ekki falleg," segir Þuríður Guðnadóttir kirkjuvörður í Grensáskirkju sem var kölluð út í nótt þegar í ljós kom að fjölmargar rúður höfðu verið brotnar í krikjunni og rauðri málningu skvett á dyr kirkjunnar. 1.1.2010 09:55
Framsýn ályktar um sjómannaafsláttinn Aðalfundur Sjómannadeildar Framsýnar- stéttarfélags var haldinn í gær, 30. desember, í fundarsal félagsins. Í tilkynningu segir að fundurinn hafi verið mjög vel sóttur og miklar umræður sköðuðust sem stóðu yfir í tæpa fjóra tíma. Á fundinum var ályktað um sjómannaafsláttinn og mótmælti fundurinn harðlega áformum stjórnvalda um að fella niður sjómannaafsláttinn í áföngum og leggja þar með stóraukna skattbyrði á herðar sjómanna. 31.12.2009 16:30
Bráðabirgðatölur um afbrot á árinu Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið saman bráðabirgðatölur um fjölda helstu brota árið 2009. Á heimasíðu embættisins er sá fyrirvari settur að endanlegar tölur liggja ekki fyrir en tölurnar eru þó sagðar gefa innsýn í hvert stefnir. 31.12.2009 13:55
Aldrei meira amfetamín tekið á einu ári Lögreglan hefur aldrei lagt hald á jafnmikið af amfetamíni og á þessu ári eða um áttatíu kíló. Það er átta sinnum meira en í fyrra. Þá var lagt hald á hátt í tólf þúsund kannabisplöntur á árinu. 31.12.2009 12:39
Kryddsíld 2009 í beinni á Vísi Kryddsíldin fer í loftið á Stöð 2 í dag klukkan tvö. Þetta er í 19. sinn sem forystumenn stjórnmálaflokkanna mæta til þess að fara yfir liðið ár en fyrsta Kryddsíldin var árið 1990 á fjögurra ára afmæli stöðvarinnar. 31.12.2009 12:28
Myrti fimm í Finnlandi Maður sem skaut fyrrverandi eiginkonu sína til bana áður en hann hóf skothríð í verslunarmiðstöð í bænum Esbo í Finnlandi gengur enn laus. Eiginkonan er látin og að minnsta kosti fjórir létust í verslunarmiðstöðinni. 31.12.2009 11:52
Ólafur Ragnar leggst undir feld Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands ætlar að taka sér umþóttunartíma til þess að fara yfir Icesave málið og hann hefur ekki gert upp hug sinn. Ríkisráðsfundi á Bessastöðum er lokið og ræddi Ólafur Ragnar stuttlega við fréttamenn að honum loknum en forsetinn fékk á fundinum lög um ríkisábyrgð á Icesave skuldbindingum til staðfestingar. 31.12.2009 11:25
Edda Heiðrún maður ársins hjá Reykjavík síðdegis á Bylgjunni Edda Heiðrún Backman leikkona er maður ársins í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Tilkynnt var um þetta fyrir stundu og sigraði Edda með yfirburðum. Kjörinu var skipt í tvennt en fyrst gat fólk farið inn á Vísi og kosið hvern sem er. 31.12.2009 11:02
Mótmælt á Bessastöðum Á fjórða tug mótmælenda eru nú fyrir utan Bessastaði þar sem ríkisráðsfundur stendur nú yfir. Lögreglumenn eru á staðnum og sjá til þess að fólkið fari ekki of nálægt húsinu en mótmælin hafa verið friðsöm fram að þessu. Mótmælendurnir bera skilti og hafa tendrað á rauðum blysum en þeir eru að mótmæla því að Ólafur Ragnar Grímsson forseti staðfesti lög um ríkisábyrgð á Icesave samningana. 31.12.2009 10:38
Ítrustu varúðar gætt við brennu Einn forsvarsmanna brennu sem til stendur að tendra við Heimsenda í Kópavogi í kvöld segir að ítrustu varúðarráðstöfunum verði fylgt og gott betur. Hestamenn í Andvara eru sumir hverjir óánægðir með tiltækið en að þeirra sögn er brennan of nálægt hesthúsabyggðinni að Heimsenda. Skipuleggjendur hvetja brennugesti til að skilja flugelda eftir heima. 31.12.2009 10:32
Myndaannáll ársins 2009 Ljósmyndarar Fréttablaðsins hafa tekið saman myndir ársins 2009 í myndasafn sem birtist hér fyrir neðan. 31.12.2009 10:00
Vínbúðir opnar til eitt - flugeldasölur til fjögur Einn annasamasti dagur ársins var í vínbúðunum í gær og eru dæmi um að áfengistegundir séu uppseldar. Búast má við að mikill erill verði í dag en opið er til 13 á höfuðborgarsvæðinu og 12 víða á landsbyggðinni. 31.12.2009 09:57
Slökkviliðið slökkti elda í ruslatunnum Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fór í þrjá ruslatunnubruna fyrir miðnætti í gærkvöldi. Kveikt var í ruslatunnu við Eggertsgötu í Reykjavík og myndaðist mikill reykur. Tvær tunnur af stærri gerðinni brunnu til kaldra kola en nokkuð greiðlega gekki að slökkva eldinn. 31.12.2009 09:54
InDefence óska eftir fundi með forseta InDefence hópurinn hefur óskað eftir fundi með forseta Íslands til að afhenda honum áskoranir vegna Icesave. Meira en fjörutíu þúsund Íslendingar hafa skrifað undir áskorun til forsetans um að hann synji nýjum Icesave lögum staðfestingar og leggi málið í dóm þjóðarinnar. 31.12.2009 09:30
Ölvaður ökumaður keyrði út í skurð Bíll fór út í skurð á Eyrarbakkavegi við Stekka um klukkan fjögur í nótt. Við nánari athugun kom í ljós að ökumaðurinn var réttindarlaus og ölvaður. Hann slasaðist lítið sem ekkert og sefur nú úr sér ölvímuna á lögreglustöðinni á Selfossi. 31.12.2009 09:28
Strokuföngum verður ekki refsað Fangarnir tveir sem struku af Litla Htrauni um sex leytið í gærkvöldi fá ekki refsingu fyrir athæfið. Annar mannanna náðist strax en mikil leit fór í gang að hinum. Vegapóstar voru settir upp og var hundur fenginn í leitina í kringum fangelsið. Fanginn fannst síðan tveimur tímum síðar í heimahúsi á Eyrarbakka. Var hann keyrður heim á Litla Hraun. 31.12.2009 09:26
Dr. Geir Gunnlaugsson nýr landlæknir Dr. Geir Gunnlaugsson verður næsti landlæknir frá 1.janúar 2010. Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðhera, ákvað þetta í dag. Fimm sóttu um starf landlæknis, en staðan er auglýst 30.október síðasliðinn með umsóknarfresti til 19.nóvember. Hæfisnefnd fór yfir umsóknir og kallaði alla umsækjendur til viðtals. 31.12.2009 09:19
Íhuga að biðja um lögbann á brennu Forsvarsmenn hestamannafélagsins Andvara hafa miklar áhyggjur af brennu sem til stendur að halda 140 metra frá hesthúsabyggð að Heimsenda í Kópavogi í kvöld. Íhuga þeir nú að fara fram á lögbann á brennuna eftir að óskum þeirra um að staðsetningin verði endurskoðuð hefur ítrekað verið hafnað. 31.12.2009 09:00
Allt að 8,5 prósenta hækkun Verð á algengum áfengistegundum mun hækka um allt að 8,5 prósent eftir áramót, og verð á sígarettum um 7,5 prósent. Hækkunin kemur til vegna hækkunar á áfengis- og tóbaksgjaldi, auk eins prósentustigs hækkunar á virðisaukaskatti. 31.12.2009 06:00
Tveir dugðu til samþykktar biðlauna Bæjarstjórn Álftaness hefur samþykkt að greiða Sigurði Magnússyni, fyrrverandi bæjarstjóra, biðlaun í samræmi við ákvæði ráðningarsamnings hans. Aðeins tveir bæjarfulltrúanna samþykktu þessa tilhögun, einn var á móti en hinir fjórir sátu hjá. 31.12.2009 05:00
Framsóknarflokkur fékk 182 milljónir Ríkisendurskoðun hefur birt á vef sínum upplýsingar um fjárframlög til stjórnmálaflokka allt aftur til 2002. 31.12.2009 04:00
Brennur og flugeldar á fullu tungli „Það verður kalt og stillt og ágætis flugeldaveður á gamlárskvöld,“ segir Þorsteinn Jónsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. 31.12.2009 03:15
Vill að þjóðin kjósi um Icesave Birgitta Jónsdóttir, sagði við lokaumræður um Icesave á þingi í kvöld, að þingmönnum bæri skylda til þess að samþykkja ekki eitthvað sem myndi valda þjóðinni skaða til lengri tíma. Hún sagði að allt tal um sjö ára skjól fyrir skuldbindingunni vegna þess að greiðslur af Icesave skuldbindingunum hæfust ekki fyrr en 2016 væri blekking. Tekjuskattur frá 80 þúsund Íslendingum færu í að greiða vexti. 30.12.2009 21:38
Segir meirihlutann ekki þora að láta Icesave í þjóðaratkvæðagreiðslu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagði stjórnarmeirihlutinn sæi alla vankanta á þjóðaratkvæðagreiðslum í Icesave málinu vegna þess að allir vissu að málið fengist ekki samþykkt í slíkri atkvæðagreiðslu. Sigmundur sagði jafnframt, í lokaumræðum um Icesave á Alþingi í kvöld, að allt of margir þingmenn hefðu fallið í þá gryfju að verja sitt lið í málinu. „Það er gengið býsna langt í því að verja sitt lið í þessu máli,“ sagði Sigmundur. 30.12.2009 21:25