Tveir dugðu til samþykktar biðlauna 31. desember 2009 05:00 Núverandi meirihluti á Álftanesi vildi ekki efna biðlaunaákvæði ráðningarsamnings bæjarstjórans fyrrverandi. Fréttablaðið/Valli
Bæjarstjórn Álftaness hefur samþykkt að greiða Sigurði Magnússyni, fyrrverandi bæjarstjóra, biðlaun í samræmi við ákvæði ráðningarsamnings hans. Aðeins tveir bæjarfulltrúanna samþykktu þessa tilhögun, einn var á móti en hinir fjórir sátu hjá. Eins og Fréttablaðið hefur skýrt frá ber Sigurði að fá greidd átta mánaða biðlaun samkvæmt ráðningarsamningi hans frá 2006. Bæjarfulltrúar nýs meirihluta sem tók við í haust töldu hins vegar að Sigurður hefði sagt að samningurinn yrði „leiðréttur“ þannig að hann fengi aldrei meira en sex mánaða biðlaun. Sögðust þeir vísa til orða Sigurðar á bæjarráðsfundi í janúar á þessu ári. Sigurður vék af fundinum þegar bæjarstjórnin ræddi biðlaunamálið. Tveir af þremur bæjarfulltrúum Á-listans, samherjar Sigurðar, mótmæltu túlkun meirihlutans. „Samningnum var breytt á tímabilinu þannig að sex mánaða biðlaunaréttur gilti ef hann starfaði út ráðningatímann, en ef hann hætti á ráðningatímanum gilti eldra ákvæði um árlega vaxandi biðlaun,“ segir í bókun þeirra. Þá sögðu umræddir tveir bæjarfulltrúar að rangt hefði verið farið með laun og starfskjör Sigurðar í fjölmiðlum. Í Fréttablaðinu var sagt frá því 23. desember síðastliðinn að föst mánaðarlaun bæjarstjórans þáverandi hefðu numið 800 þúsund krónum. Voru það uppreiknuð laun Sigurðar miðað við þróun launavísitölu eins og samningur hans gerir ráð fyrir. Hvorki Sigurður sjálfur né Pálmi Másson, núverandi bæjarstjóri, hafa svarað fyrirspurnum um starfskjörin. - gar
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sjá meira