Fleiri fréttir

Við erum baráttumenn

Fulltrúum Venesúela, Kúbu og Bólivíu lá mikið á hjarta á blaðamannafundi í dag og létu sér fátt um finnast þegar skipuleggjendur bentu þeim á að fundartíminn væri liðinn.

Hrekkjusvín biðst afsökunar á fölskum tilkynningum

„Ég verð víst að biðja alla afsökunar sem urðu mínum hrekk að bráð. En klukkan 18:00 kem ég til með að tilkynnar öllum á facebook að þetta var víst ég,“ skrifar maður sem kallar sig Ingimund en hann sendi fréttastofu póst eftir að Vísir sagði frá ósmekklegum hrekki þar sem fólki var tilkynnt að þeir hefðu unnið í lukkuhjólsleik flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli og Iceland Express.

Lýst eftir pilti

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir sextán ára pilti Hann fór frá heimili sínu síðastliðinn mánudag og hefur ekki sést síðan.

Haldið sofandi á gjörgæslu

Manninum sem lenti í umferðarslysi á Hafnarfjarðarvegi í morgun er haldið sofandi á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Hann er með alvarlega höfuðáverka og fór hann strax í aðgerð við komuna á spítalann. Tveir létust þegar bílar skullu saman í Garðabæ við Arnarnes.

Hrekkja þátttakendur í jólaleik

Nokkrum þátttakendum í lukkuhjólsleik flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli og Iceland Express, sem víða er að finna á vefnum, hafa borist falsaðar tilkynningar um vinning sem sendar er frá netfanginu kefairport@gmail.com.

Gagnrýna hugtakamisnotkun fjármálaráðherra

Þingmenn Hreyfingarinnar gagnrýna þá hugtakamisnotkun sem felst í framlögðu frumvarpi fjármálaráðherra um umhverfis- og auðlindaskatta. Með frumvarpinu er lagt til að innheimtur verið skattur á sölu á raforku og heitu vatni auk skatts á tilgreinda flokka á fljótandi jarðefnaeldsneyti. Tilgangurinn er að afla aukinna tekna fyrir ríkissjóð sem nemur 4,7 milljörðum kr.

Forseti siðar þingmenn til vegna reykinga

Forseti Alþingis ítrekaði reykingabann á Alþingi fyrir þingmönnum með bréfi sem þeim var sent í dag. Bréfið er frá Þorsteini Magnússyni en í bréfinu bendir hann samkvæmt samþykkt forsætisnefndar frá því í febrúar 2008 sé bannað að reykja í húsum Alþingis og á lóðum þess.

Gáfu Hjálpræðishernum tombólupeninga

Þrjár stúlkur tóku sig til í sumar og stóðu fyrir tombóluhaldi í Skipasundi sem skilaði 12.867 krónum. Afraksturinn ákváðu þær að gefa til góðgerðarmála og varð Hjálpræðisherinn fyrir valinu. Stelpurnar heita Katla Ýr Sebastiansdóttir, Þóra Kristín Magnúsdóttir og Stefanía Ragnarsdóttir og það var Anne Marie Reinholdtsen majór hjá Hjálpræðishernum sem veitti peningunum viðtöku.

Sorpa veitir tíu milljónum í styrki

Sorpa veitti styrk til tíu aðila í húsnæði Góða hirðisins í dag. Styrkirnir voru veittir undir yfirskriftinni „Hjálpum fólki til sjálfshjálpar", svo sem til menntunar, endurhæfingar og sjálfsbjargar.

Vilja selja nýja varðskipið

Sjálfstæðismenn vilja að nýja varðskip Landhelgisgæslunnar verði selt til að draga megi úr skattahækkunum. Þetta kom fram á Alþingi í morgun þar sem skattahækkanir ríkisstjórnarinnar voru gagnrýndar af sjálfstæðismönnum.

Hafnarfjarðarvegur opnaður til suðurs

Opnað hefur verið fyrir umferð á Hafnarfjarðarvegi til suðurs. Lögreglan gerir ráð fyrir að hægt verði að opna fyrir umferð til norðurs rétt eftir klukkan eitt. Eins og fram hefur komið varð banaslys á Hafnarfjarðarvegi á móts við Arnarnesbrú um tíuleytið í morgun.

Kaupmannahafnarráðstefnu lýkur í dag

Loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn lýkur í dag um klukkan þrjú. Þótt ekki sé búist við að gengið verið frá alþjóðlegum lagalegum skuldbindinum um losun gróðurhúsalofttegunda í framtíðinni er vonast til að pólitísk samstaða náist um hvert viðræður skuli stefna á næstu árum.

Banaslys á Hafnarfjarðarvegi

Banaslys varð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ móts við Arnarnesbrú um klukkan tíu í morgun þegar tveir bílar rákust saman. Tveir menn létust og sá þriðji liggur mjög alvarlega slasaður á sjúkrahúsi. Lögreglan varar við hálku á götunni. Vegna slyssins verða tafir á umferð um óákveðinn tíma.

Umferðarslys við JL húsið

Umferðarslys varð við JL húsið í Vesturbæ Reykjavíkur fyrir skömmu. Að sögn slökkviliðs lenti bifreið á ljósastaur og slasaðist að minnsta kosti einn. Sjúkraflutningamenn eru enn á vettvangi og því óljóst um alvarleika slyssins enn sem komið er. Mikil hálka er víða á götum borgarinnar og eru ökumenn hvattir til að fara varlega.

Þrír fluttir á slysadeild

Þrír voru fluttir á slysadeild Landspítalans eftir alvarlegt umferðarslys á Hafnarfjarðarvegi, við Arnarnesbrú, um tíuleytið í morgun. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að tveir bílar hafi rekist þar saman. Lögreglan varar við hálku á götunni. Vegna slyssins verða tafir á umferð til norðurs í óákveðinn tíma.

Þrír fræðimenn hlutu styrk Snorra

Í tilefni af 750. ártíð Snorra Sturlusonar, 23. september 1991, ákvað ríkisstjórn Íslands að efna til styrkja sem kenndir yrðu við nafn hans. Styrkirnir eru árlega boðnir erlendum rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum til að dveljast á Íslandi í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menningu og mannlífi.

Reglugerð um ættleiðingar breytt

Breytingar á reglugerð um ættleiðingar taka gildi í dag. Samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðuneytinu er þeim ætlað að rýmka reglur um ættleiðingar vegna lengri biðtíma eftir börnum, að svo miklu leyti sem unnt er og án þess að gengið sé gegn hagsmunum barnanna.

Alvarlegt umferðarslys á Hafnarfjarðarvegi

Alvarlegt umferðarslys varð um tíuleytið á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnesbrú um tíuleytið í morgun. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að tveir bílar hafi rekist þar saman en ekki sé vitað um hvort þeir sem í bílunum voru hafi slasast mikið. Lögreglan varar við hálku á götunni. Vegna slyssins verða tafir á umferð til norðurs í óákveðinn tíma.

Spara allt að 300 milljónir vegna lyfjakostnaðar

Sjúkratryggingar Íslands áætla að 2-300 milljónir króna sparist í lyfjakostnaði á ári þegar greiðsluþátttaka í ákveðnum öndunarfæralyfjum breytist þann 1. janúar næstkomandi.

Lögreglan á Akureyri rýmdi skemmtistað

Lögreglan á Akureyri stöðvaði skemmtanahald í einum skemmtistað bæjarins laust fyrir klukkan tvö í nótt, þar sem rúmlega hundrað manns voru innandyra. Staðurinn var rýmdur þar sem skemmtanahald má ekki standa lengur en til klukkan eitt á virkum dögum, samkvæmt lögreglusamþykkt bæjarins.

Slökkvilið kallað út þegar lambasteik brann við

Betur fór en á horfðist þegar slökkviliðið í Vestmannaeyjum var kallað út vegna mikils reyks í kjallaraíbúð þar í bæ í nótt. Þegar það kom á staðinn var engin eldur, en í ljós kom að húsráðandi hafði ætlað að gæða sér á lambasteik fyrir svefninn, en steikin brunnið svona hressilega við. Honum varð ekki meint af svælunni, en slökkviliðið þurfti að reykræsta íbúðina.-

Farbann á fyrrverandi stjórnarformann Byrs

Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður Byrs, sætir nú farbanni vegna rannsóknar sérstaks saksóknara á málefnum Byrs og eignarhalds­félagsins Exeter. Er hann eini maðurinn sem til þessa hefur verið úrskurðaður í farbann vegna rannsókna embættisins.

Risaveldin hafa útkomuna í hendi sér

Allt var í járnum á loftslagsráðstefnunni þegar Fréttablaðið fór í prentun. Samningar hafa að mestu náðst, en nokkur atriði standa út af borðinu. Gallinn er að það eru þau atriði sem öllu skipta.

Enn er allt óvíst um útkomu

Viðræður stóðu fram á nótt á loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn. Vonast er til að samkomulag náist um pólitíska yfirlýsingu, sem 130 þjóðarleiðtogar myndu undirrita. Náist það ekki er von manna að vinnuáætlun fyrir næstu skref í viðræðum verði samþykkt. Þriðji möguleikinn er að ekkert samkomulag náist. Nánast útilokað er að lagalega bindandi samkomulag náist.

Jónas sat með Baldri á samráðsfundunum

Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins (FME), nýtti ekki upplýsingar af fundum samráðshóps sem hann átti sæti í þegar embættið rannsakaði upphaflega meint innherjaviðskipti Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra.

Úrræði fyrir atvinnulaus ungmenni kynnt

Stefnt er að því að koma á fót margvíslegum úrræðum fyrir ungt, atvinnulaust fólk á næsta ári. Áætlað er að 1,3 milljörðum króna verði varið í verkefnið á næsta ári. Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra kynnti í gær sérstakt átak ráðuneytisins í þeim efnum.

Segir komandi ár verða þung í rekstri

„Gera má ráð fyrir áframhaldandi þunga í rekstri á allra næstu árum en með samstöðu og stefnufestu er góð von til þess að jákvæð rekstrarniðurstaða náist í síðasta lagi árið 2013," segir í bókun meirihlutans í bæjarstjórn Árborgar þegar fjárhagsáætlun næsta árs var samþykkt.

Nour kemur aftur til landsins í kvöld

Íraski flóttamaðurinn Nour Al-din Al-Azzawi snýr aftur til Íslands á ellefta tímanum í kvöld eftir tveggja mánaða dvöl í Grikklandi. Hann var sem kunnugt er sendur þangað á grundvelli Dyflinnarsamkomulagsins, við mótmæli Rauða krossins og ýmissa einstaklinga.

Vilja Norðfjarðargöng strax eftir Héðinsfjörð

„Við íbúar Fjarðabyggðar gerum þá eindregnu kröfu til þingmanna kjördæmisins og ráðamanna í samgöngumálum að herða sem aldrei fyrr baráttuna fyrir því að framkvæmdir við Norðfjarðargöng hefjist strax að loknum Héðinsfjarðargöngum,“ segir í ályktun borgarafundar á Eskifirði á mánudagskvöld.

Nýbakaður milljónari æpti af gleði

Tveir nýir milljónamæringar komu til Íslenskrar getspár með Lottómiða sem gáfu hvor um sig rúmlega 30 milljónir í vinning í fyrradag.

Danir greiði fyrir hreinsun

Grænlenska heimastjórnin vill að Danir hreinsi til í kringum Thule-herstöðina á Grænlandi.

Telja fráleitt að borga 600 millj.

„Okkur finnst þetta verðmat út úr korti og satt að segja svolítið 2007,“ segir Guðmundur Rúnar Árnason, formaður bæjarráðs, um niðurstöðu matsnefndar eignarnámsbóta varðandi land í Kapelluhrauni sem Skógrækt ríkisins átti en Hafnarfjarðarbær yfirtók.

Útsvar svipað og í fyrra

Gert er ráð fyrir 25 milljóna króna rekstrarafgangi Kópavogsbæjar, samkvæmt tillögu að fjárhagsáætlun bæjarins fyrir næsta ár. Áætlunin var lögð fram fyrir umræðu í bæjarstjórn í gær.

Álftanesi skipað að ræða sameiningu

Meirihluti sveitarstjórnar Álftaness samþykkti í gær samkomulag við eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaganna. Samkvæmt því skal þegar hefja viðræður við önnur sveitarfélög um sameiningu við Álftanes. Þá verður lagt tíu prósenta álag á útsvar á næsta ári og álagning fasteignaskatta verður 0,4 prósent af álagningarstofni. Hún er í dag 0,28 prósent. Almennt á að lækka öll rekstrarútgjöld og auka tekjur, meðal annars með eignasölu.

Ekkert fé í kaup á félagsíbúðum

Bæjarráð Vestur­byggðar mótmælir harðlega ákvörðun Varasjóðs húsnæðis­mála um að ekki fáist lengur fjármunir til mótframlags vegna sölu félagslegra íbúða og vegna rekstrarhalla og auðra íbúða sveitarfélaga.

Dræm þátttaka í netkosningu

Tæp sjötíu prósent þátttakenda í netkosningu vefmiðilsins Eyjunnar vilja að Alþingi hafni ríkisábyrgð á Icesave-samkomulaginu. Samtals tóku 7.454 þátt í kosningunni, eða 3,2 prósent kjósenda miðað við kjörskrárstofn til síðustu alþingiskosninga.

Evrumaður var leiddur í gildru

Fullvíst er talið að karlmaður, sem um það bil tíu þúsund evrum var rænt af í Súðarvogi síðastliðið þriðjudagskvöld, hafi verið leiddur í gildru.

Tók fíkniefni og stolna glæsikerru

Fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun, tók hundruð gramma af amfetamíni og fann stolinn glæsivagn í húsleit í fyrradag.

Sjá næstu 50 fréttir