Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bygging nýs Landspítala hefst 2011 Gert er ráð fyrir því að framkvæmdir við byggingu nýs Landspítala hefjist á síðari hluta árs 2011 og standi fram á árið 2016, samkvæmt viljayfirlýsingu sem fulltrúar lífeyrissjóðanna og fulltrúar ríkisstjórnarinnar undirrituðu í dag. 4.11.2009 13:38
Fimm þúsund hafa sagt nei takk við Árna Pál Fjöldi þeirra sem hafa afþakkað greiðslujöfnunarúrræði ríkisstjórnarinnar hjá Íbúðalánasjóði var kominn í 4.700 núna um hádegið. Fólk sem ekki ætlar að nýta sér úrræðið sem Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra kynnti á dögunum, hefur frest til 20. nóvember næstkomandi að tilkynna um það, vegna gjalddaga í desember. 4.11.2009 13:31
Gatnamót lokuð í nótt Í nótt verða gatnamót Kringlumýrarbrautar, Suðurlandsbrautar og Laugavegar lokuð, nema að því leyti að akreinar fyrir hægri beygju verða opnar. Áætlað er að gatnamótin verði opnuð að nýju fyrir klukkan sex í fyrramálið. Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þessi lokun kann að valda. 4.11.2009 13:31
Komu saman við Vogaafleggjara Undirbúningshópur Keflavíkurgöngunnar 2009 kom saman við Vogaafleggjara í hádeginu ásamt bæjarstjórum og oddvitum í bæjarmálunum af svæðinu. Undirbúningshópurinn saman stendur af hópi Suðurnesjamanna með ólíkar stjórnmálaskoðanir. Ætlunin er að vekja athygli á atvinnumálum á Suðurnesjum. 4.11.2009 13:05
Íslenskir bændur eru heilsuhraustastir allra Bændur eru heilbrigðastir Íslendinga andlega og líkamlega samkvæmt tveimur rannsóknum sem birtast í nýjasta hefti Læknablaðsins. 4.11.2009 12:24
Auðveldar ríkjum að segja sig úr ESB Auðveldara verður fyrir ríki að segja sig úr Evrópusambandinu eftir að Lissbon-sáttmálinn tekur gildi, en síðustu hindrun í vegi gildistökunnar var rutt burt í gær þegar Tékkar staðfestu sáttmálann. Ný embætti forseta framkvæmdastjórnarinnar og utanríkisstjóra verða til með sáttmálanum. 4.11.2009 12:15
Steindir gluggar Bessastaðakirkju prýða jólafrímerkin í ár Steindir gluggar Bessastaðakirkju prýða jólafrímerki Íslandspósts í ár. Bessastaðakirkja er með elstu steinbyggingum landsins en hún var vígð árið 1796. Um miðja síðustu öld var svo sett steint gler í glugga kirkjunnar í tilefni af sextugsafmæli Ásgeirs Ásgeirssonar þáverandi forseta. Alls eru gluggarnir átta en á þeim er trúarsaga Íslendinga rakin. Frímerkin koma út á morgun. 4.11.2009 12:10
Gylfi: AGS stýrir ekki Íslandi Efnahags- og viðskiptaráðherra segir Alþjóðagjaldeyrissjóðinn ekki fara með stjórn efnahagsmála á Íslandi, eins og margir þingmenn og fleiri hafa gefið í skyn. Sjóðurinn sé í samstarfi við Íslendinga að beiðni íslenskra stjórnvalda. 4.11.2009 12:07
Mansalsmál: Farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald Lögreglustjórinn á Suðurnesjum mun fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir fimm Litháum og einum Íslendingi síðar í dag, en þeir hafa setið í varðhaldi í tengslum við rannsókn á skipulagðri glæpastarfsemi, meðal annars mansali og tryggingarsvikum. 4.11.2009 12:00
Grafarvogsbúar funduðu um framtíðina Samgöngumál og íþróttir og útivist voru íbúum Grafarvogs efst í huga á opnu húsi í Foldarskóla í gær um framtíðarskipulag hverfisins. Þetta var þriðja opna húsið af 10 sem Skipulags- og byggingarsvið efnir til í hverfum borgarinnar í tengslum við endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur. 4.11.2009 11:36
Festi hendi í hakkavél Sjúkralið og lögregla voru kölluð að Krónunni í Lindahverfi í Kópavogi um tuttugu mínútur í tíu í morgun þegar starfsmaður festi hendi í hakkavél. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni varð slysið í kjötborði í versluninni. Vinnueftirlitið rannsakar nú málið. Vísir hefur ekki fengið upplýsingar um líðan starfsmannsins. 4.11.2009 11:32
Lætur kanna sameiningu Þjóðskrár og Fasteignaskrár Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra, hefur falið samráðshópi að kanna til hlítar hagkvæmni þess að sameina starfsemi Þjóðskrár og Fasteignaskrár Íslands. 4.11.2009 10:03
Bergur ráðinn til þingflokks VG Bergur Sigurðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Landverndar, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri þingflokks Vinstri grænna. Hann tekur við starfinu af Drífu Snædal sem hefur frá síðustu kosningum haldið utan um störf þingflokksins auk þess að vera framkvæmdastýra flokksins. Bergur hóf störf síðustu mánaðamót. 4.11.2009 09:36
Á fjórða tug sagt upp í hópuppsögnum Vinnumálastofnun bárust 2 hópuppsagnir í oktobermánuði, þar sem sagt var upp 34 manns. Um er að ræða fyrirtæki í mannvirkjagerð og er ástæðan verkefnaskortur. 4.11.2009 09:32
Sósíalistar innan VG efna til fundar með Ögmundi Umræðuhópur sósíalista innan VG efnir til opins umræðufundar um verkalýðs- og kjaramál og stöðuna á vinnumarkaði í kvöld. 4.11.2009 09:31
Lítill þrýstingur á kalda vatninu í Stykkishólmi Vegna vinnu við aðveituæð kaldavatnsins í Stykkishjólmi má búast við lágum þrýstingi á kalda vatniunu fram eftir degi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur. 4.11.2009 07:55
Þrjú innbrot í nótt Brotist var inn í Sjónvarpsmiðstöðina í Síðumúla um klukkan tvö í nótt. Þjófurinn braut rúðu til að komast inn og var hann horfinn á braut áður en lögreglu bar að garði. Ekki er ljóst hvort hann hafi stolið einhverju en lögregla handtók mann skömmu síðar grunaðan um verknaðinn. Hann er nú í haldi og bíður yfirheyrslu. 4.11.2009 06:55
Sjö prósent beiðna hefur verið hafnað Af þeim 318 beiðnum sem dómstólum hafa borist um nauðasamninga til greiðsluaðlögunar hafa 215 verið samþykktar, 14 verið hafnað og 12 verið afturkallaðar. 77 eru óafgreiddar. 4.11.2009 06:00
Fyrirtæki vega þungt í erlendum skuldum Erlendar skuldir þjóðarbúsins eru hærri en áður hafði verið talið en þó ekki úr takti við það sem gerist í öðrum þróuðum ríkjum. Þetta kemur fram í áfangaskýrslu sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) vegna fyrstu endurskoðunar efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og birt var í gær. Skuldabyrðin sem bæst hefur við frá síðasta mati nemur 92 prósentum af áætlaðri þjóðarframleiðslu þessa árs, eða sem nemur 10,9 milljörðum dollara, eða um 125 milljörðum króna. 4.11.2009 06:00
Skjálfandafljót verði friðlýst Sex þingmenn hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um friðlýsingu Skjálfandafljóts. 4.11.2009 06:00
Samráð við UNESCO um Valhallarreitinn Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, mun koma að ákvörðun um framtíð reitsins þar sem Hótel Valhöll stóð á Þingvöllum. 4.11.2009 06:00
Værum berskjaldaðri án Schengen Með aðgangi að alþjóðlegum gagnabönkum í krafti Schengen-aðildar geta yfirvöld nálgast margvíslegar upplýsingar sem gagnast þeim í baráttunni við erlenda glæpahringi. 4.11.2009 06:00
Lonely Planet setur Ísland í toppsætið Lonely Planet, umsvifamesti útgefandi ferðabóka í heiminum, setur Ísland í efsta sæti á lista yfir þá staði sem hagkvæmast er að ferðast til á næsta ári. Þetta kemur fram í nýjustu ferðabók útgefandans, Best in Travel 2010. 4.11.2009 06:00
Stakk mann með hnífi Nær sextugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega árás. Hann stakk annan mann með hnífi ofarlega í framanverðan brjóstkassa. Fórnarlambið hlaut þriggja sentimetra langan skurð nokkru neðan við vinstra viðbein. Atvikið átti sér stað á Akureyri í júní. 4.11.2009 06:00
Ýmsar upplýsingar komnar fram Gert er ráð fyrir að lögreglustjórinn á Suðurnesjum krefjist áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir fimm Litháum og einum Íslendingi, að sögn Jóhannesar Jenssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns á Suðurnesjum. Mennirnir hafa verið í einangrun vegna rannsóknar lögreglu á skipulagðri glæpastarfsemi hér á landi, þar á meðal meintu mansali og tryggingasvikum. 4.11.2009 06:00
Heilbrigðisþjónusta tryggð Þolendur mansals hafa ótvíræðan rétt til heilbrigðisþjónustu á Íslandi, eftir reglugerðarbreytingu Álfheiðar Ingadóttur heilbrigðisráðherra. 4.11.2009 05:30
Fjörutíu keppa í píanóleik Fjörutíu nemendur keppa í píanóleik í dag og á morgun í Salnum í Kópavogi. Það er Íslandsdeild Evrópusambands píanókennara, Epta, sem stendur fyrir keppninni. Keppt er í þremur flokkum, 1. flokkur eru nemendur fjórtán ára og yngri, 2. flokkur, eru nemendur átján ára og yngri og sá þriðji er flokkur nemenda yngri en 25 ára. 4.11.2009 05:00
Enn gangur í svínaflensunni Talsverður gangur er enn í svínaflensunni hér á landi að sögn Haraldar Briem sóttvarnalæknis. Inniliggjandi á Landspítala af völdum hennar voru 35 manns fyrri hluta dags í gær. Þar af voru níu á gjörgæslu. Átta manns voru útskrifaðir og fjórir nýir komu inn. 4.11.2009 04:00
Engar skuldir afskrifaðar enn Engar skuldir hafa verið afskrifaðar hjá 1998 ehf. móðurfélagi Haga sem á Bónus. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýja Kaupþingi. Þar segir jafnframt að eigendur 1998, en félagið er að stærstum hluta í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, njóti engrar sérmeðferðar hjá bankanum. Þá hafi engin ákvörðun verið tekin um framtíðareignarhald félagsins. 4.11.2009 03:00
Krakkar fagna nýrri skólalóð Ný skólalóð við Langholtsskóla í Reykjavík var tekin formlega í notkun í gær. Við sama tækifæri fékk skólinn alþjóðlegu viðurkenninguna Grænfánann í þriðja sinn fyrir metnaðarfullt umhverfisstarf og að auki fengu nemendur grenndarskóg þar sem þeir geta stundað nám og ræktun. 4.11.2009 02:30
Ekki útséð með síldveiðar í ár Starfsmenn Hafrannsóknastofnunar eru enn að fara yfir gögn til þess að geta metið stofnstærð og sýkingu í íslensku sumargotssíldinni. Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri nytjastofna hjá Hafró, segist ekki geta svarað því hvenær þeirri vinnu ljúki en eftir það verður ljóst hvort og þá hversu mikið stofnunin mun leggja til að verði veitt. 4.11.2009 02:00
Borgar tíund til kaupa á orgeli Halda á sérstaka orgelviku í Kaupfélagi Steingrímsfjarðar frá og með næsta mánudegi að því er segir á fréttavefnum strandir.is. 4.11.2009 01:00
Sekt vegna krossa í skólum Mannréttindadómstóll Evrópu hefur úrskurðað að krossar í ítölskum skólastofum stangist á við trúfrelsi og frelsi til menntunar. 4.11.2009 00:15
Toyota verður áfram á Íslandi þrátt fyrir gjaldþrot eiganda Skilanefnd Landsbankans er við það að taka yfir rekstur Toyota umboðsins á Íslandi. 3.11.2009 19:24
Byr-börnin fengu 180 milljónir alls Lánin sem 10 börn fengu frá Glitni til kaupa á hlut í stofnfjárútboði BYRS fyrir tveimur árum námu 180 milljónum króna. Börnin fengu arðgreiðslur upp á 86 milljónir króna sem runnu beint til niðurgreiðslu lánanna sem talin eru ólögmæt. 3.11.2009 19:02
Samþykktu dag gegn einelti Borgarstjórn Reykjavíkur hefur samþykkt að ákveðinn dagur ár hvert verði helgaður baráttu gegn einelti í borginni samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 3.11.2009 17:15
Dreifðu grænmeti fyrir utan þinghúsið og gáfu Jóni blóm Garðyrkjubændur dreifðu grænmeti fyrir framan Alþingishúsið í dag til að mótmæla háu raforkuverði á sama tíma og þingmenn ræddu um málið á þingfundi. 3.11.2009 16:43
Misræmi á orkuþörf leiðrétt Vegna umsagnar Landsnets til Skipulagsstofnunar um afstöðu fyrirtækisins til sameiginlegs mats á umhverfisáhrifum Suðvesturlína og orkuvera á Reykjanesi skal áréttað að Suðvesturlínur munu geta annað aflþörf stækkaðs álvers í Helguvík, ef til kemur, sem og öðrum framtíðaráformum um uppbyggingu iðnaðar og orkuöflun á svæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsneti. 3.11.2009 20:21
Jökulstífla að bresta á Eyjabökkum Hlaup er talið yfirvofandi í Jökulsá í Fljótsdal en áin rennur undan Eyjabakkajökli við Snæfell í norðaustanverðum Vatnajökli. Á heimasíðu Landsvirkjunar í dag kemur fram að í krika vestan við skriðjökullinn hafi myndast lón vegna jökulstíflu, sem er við það að bresta. 3.11.2009 19:00
Óttast að biðin eftir betri vegi taki áratug Ráðamenn á Vestfjörðum óttast að það muni taka áratug að fá almennilegan veg um sunnanverða firðina til Patreksfjarðar og segja það ekki sanngjarnt að tveir til þrír aðilar geti stöðvað framkvæmdir sem þjóni fjöldanum. 3.11.2009 18:46
Vilja að Reykjavík verði Græna borg Evrópu Borgarstjórn Reykjavíkur hefur samþykkt tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um að Reykjavíkurborg sæki um tilnefningu sem Græna borgin í Evrópu árið 2012 eða 2013. Evrópusambandið útnefnir árlega Grænu borgina í Evrópu til þess að vekja athygli á mikilvægi umhverfismála í borgum. 3.11.2009 16:11
Fimmtán mánaða fangelsi fyrir skattsvik Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag tvo karlmenn fyrir meiriháttar skattsvik en þrír voru upprunalega ákærðir í málinu. Héraðsdómur dæmdi annan mannanna í 15 mánaða fangelsi og til að greiða 93 milljónir króna í sekt. Hinn maðurinn var dæmdur í 7 mánaða skilorðsbundið fangelsi en honum er gert að að greiða 34 milljónir króna í sekt. 3.11.2009 16:04
Uppgjöf meirihlutans á Álftanesi Tillaga meirihlutans á Álftanesi um að kalla til Eftirlitsnefnd sveitarfélaga er tillaga um uppgjöf, að mati bæjarfulltrúa minnihlutans. 3.11.2009 15:50
Stofnun embættis héraðssaksóknara frestað Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra, mælti á Alþingi í dag fyrir frumvarpi sem felur í sér frestun á stofnun embættis héraðssaksóknara til ársins 2011. Til stóð að stofna embættið á þessu ári en nú á að fresta því vegna sparnaðar. 3.11.2009 15:33
Víkur sæti í máli gegn fyrrum fjármálaráðherra Sigríður Ingvarsdóttir, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, víkur sæti í máli Guðmundar Kristjánssonar gegn Árna Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra og íslenska ríkinu. 3.11.2009 15:07