Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Foreldrar geymi síðasta mánuðinn í þrjú ár Ríkisstjórnin hefur fallið frá því að skerða greiðslur til foreldra í fæðingarorlofi. Í staðinn verður fæðingarorlof stytt um einn mánuð. 29.11.2009 12:09
Óvíst hvort Héðinsfjarðargöng dragi úr fólksfækkun Óvíst er að Héðinsfjarðargöng muni verða til þess að draga úr fólksfækkun á Ólafsfirði og Siglufirði eins og vonast er til. Þetta segir Þóroddur Bjarnason, prófessor í Háskólanum á Akureyri sem stýrt hefur umfangsmikill rannsókn sem snýr að mögulegum áhrifum gangnanna. 29.11.2009 12:08
Ræningjarnir voru í annarlegu ástandi Mennirnir sem handteknir voru skammt frá verslun 10-11 í Engihjalla í gærkvöldi voru í annarlegu ástandi. Þeir hafa ekki verið yfirheyrðir en líklegt þykir að mennirnir hafi ætlað að nota féð úr ráninu til þess að fjármagna fíkniefnaneyslu. 29.11.2009 12:00
Flokkar hafa ekki gott af því að vera lengi við völd Ekki er þörf á að stofna nýjan hægriflokk hér á landi, að mati Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur varaformanns Sjálfstæðisflokksins. Hún telur engan flokk hafa gott að því að sitja samfellt við völd í mörg ár. 29.11.2009 11:28
Frjálslyndir harma stuðningsyfirlýsingu við Ólaf Framkvæmdastjórn Frjálslynda flokksins harmar yfirlýsingu kjördæmisfélaganna í Reykjavík við Ólaf F. Magnússon, borgarfulltrúa F-listans. Stjórnin dregur í efa að fundurinn hafi verið löglegur og bendir jafnframt á að Ólafur sé ekki félagi í Frjálslynda flokknum. 29.11.2009 10:46
Lyfjastofnun borist 16 tilkynningar um aukaverkanir Lyfjastofnun hafa borist 16 tilkynningar um aukaverkanir sem hugsanlega geta verið af völdum Pandemrix, bóluefnisins sem notað er gegn svínaflensu eðaa inflúensu af stofni A(H1N1). Það er 2,1 tilkynning á hverja 10.000 bólusetta en nú hafa 75.000 Íslendingar verið bólusettir við flensunni. 29.11.2009 10:27
Hálka á Hellisheiði Það snjóar nokkuð víða á Reykjanesi og þar er snjóþekja. Hálka og snjókoma er á Hellisheiði og í Þrengslum og allvíða á Suðurlandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 29.11.2009 09:49
Ógnaði starfsfólki með eggvopni Lögreglan fékk tilkynningu um vopnað rán í verslun 10-11, Engihjalla, í Kópavogi um átta leytið í gærkvöldi. Þar hafði aðili ógnað starfsmönnum með eggvopni. Lögreglan handtók síðan tvo aðila í tengslum við málið á stolnu ökutæki skammt frá þeim vettvangi sem ránið átti sér stað. Enginn meiddist í ráninu að sögn lögreglu. Rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur nú tekið við rannsókn málsins 29.11.2009 09:46
Birgir: Ólöglegur þingfundur Annarri umræðu um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinganna var frestað á Alþingi á tíunda tímanum í gærkvöldi. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fullyrti að fundurinn væri ólöglegur. 29.11.2009 09:32
Ljósin á Oslóartrénu tendruð á Austurvelli Ljósin á Oslóartrénu á Austurvelli verða tendruð klukkan fjögur í dag. Athöfnin hefst með því að Dómkórinn syngur nokkur lög undir stjórn Marteins Hunger Friðrikssonar. 29.11.2009 08:00
Fimmfaldur næst Fyrsti vinningur verður fimmfaldur næsta laugardag því enginn var með allar tölurnar réttar að þessu sinni. Búast má við að potturinn verði í 37 milljónir. 28.11.2009 20:11
Hallarbylting í Framsóknarflokknum Birgir Guðmundsson, stjórnmálafræðingur við Háskólann á Akureyri, segir hallarbyltingu hafa verið gerð í Framsóknarflokknum í Reykjavík, þegar oddviti flokksins var felldur. 28.11.2009 18:12
Spyr um kostnað vegna erlendra sérfræðinga í Seðlabankanum Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur lagt fram á Alþingi fyrirspurn til Gylfa Magnússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, um kostnað vegna starfa erlendra sérfræðinga í Seðlabankanum. 28.11.2009 17:26
Víða hálka á Vesturlandi Á Vesturlandi eru víða hálka, hálkublettir og snjóþekja. Þungfært er á Skógarströnd og Snjóþekja og mikil snjókoma á Snæfellsnesi. Snjóþekja og éljagangur er á Holtavörðuheiði. Þæfingsfærð er á Laxárdalsheiði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 28.11.2009 17:12
Jólapakkasöfnunin hófst í dag Fyrr í dag hófst góðgerðasöfnun á jólapökkum fyrir börn undir jólatréð í Kringlunni samstarfi við Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálp Íslands. 28.11.2009 16:00
Fjölmenni á útifundi Boðaður útifundur Hagsmunasamtaka heimilanna hófst klukkan þrjú á Austurvelli. Vel á þriðja hundrað manns tóku þátt í fundinum. 28.11.2009 15:29
Frjálslyndir í Reykjavík lýsa yfir stuðningi við Ólaf Frjálslyndir í Reykjavík lýsa eindregnum stuðningi við Ólaf F. Magnússon, borgarfulltrúa F-listans, og krefjast þess að Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður flokksins, biðji Ólaf afsökunar. 28.11.2009 15:17
Valgerður sigraði Hall í baráttunni um þriðja sætið Valgerður Sveinsdóttir, lyfjafræðingur, sigraði Hall Magnússon í kosningu um þriðja sætið á lista framsóknarmanna í Reykjavík í kosningunum í maí á næsta ári. Valgerður sigraði með 66% gildra atkvæða en Hallur hlaut 34% atkvæða. 28.11.2009 14:26
„Ég er svöng" Annarri umræðu um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinganna var fram haldið á Alþingi í morgun. Þegar leið á umræðuna hvatti formaður Hreyfingarinnar forseta Alþingis til þess að gera matarhlé þar sem hún væri svöng. Þingflokksformaður Framsóknarflokksins sagði að um réttlætismál væri að ræða. Þingmenn ættu að fá matarhlé. 28.11.2009 14:01
Guðrún skipar annað sætið á eftir Einari Skúlasyni Guðrún Valdimarsdóttir, framkvæmdastjóri SAMFOK, sigraði í kosningu um 2. sætið á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík vegna borgarstjórnarkosninganna í maí á næsta ári. 28.11.2009 13:32
Nokkur hundruð manns í Hlíðarfjalli Nokkur hundruð manns hafa rennt sér á skíðum í Hlíðarfjalli, skíðasvæði Akureyringa, í dag. Þetta er í fyrsta sinn á þessu hausti sem skíðasvæðið er opið en á síðasta ári opnaði það nokkuð fyrr. 28.11.2009 13:30
Þingmenn á landsfundi norskra ESB andstæðinga Um helgina fer fram landsfundur Nei til EU í Noregi. Samtökin eru systursamtök Heimssýnar sem berst gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Í sendinefnd Heimssýnar sem tekur þátt í fundinum eru meðal annars þingmennirnir Ásmundur Einar Daðason VG, Unnur Brá Konráðsdóttir Sjálfstæðisflokki og Vigdís Hauksdóttir Framsóknarflokki. 28.11.2009 13:15
Samfylkingin í Mosó með prófkjör Félagsfundur Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ samþykkti á fimmtudag tillögu stjórnar um að hafa prófkjör meðal félagsmanna til að velja á framboðslista flokksins í bæjarfélaginu fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. 28.11.2009 13:15
Guðlaugur dregur framboð sitt til baka Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitur Reykjavíkur, hefur dregið framboð sitt í 3. sæti á lista framsóknarmanna í borgarstjórnarkosningunum í vor til baka. Hann er náinn samstarfsfélagi Óskars Bergssonar, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins, sem laut í lægra haldi í baráttu við Einar Skúlason um oddvitasætið. 28.11.2009 12:54
Útilegubúnaður og bílar boðnir upp Sýslumaðurinn í Reykjavík stendur í hádeginu fyrir uppboði á vörum sem ekki hafa verið leystar út úr tollinum. Uppboðið er í vörumiðstöð Samskipa í Reykjavík. 28.11.2009 12:48
Boða til mótmæla á jólatónleikum Fíladelfíu Hópur samkynhneigðra hefur boðað til mótmæla á jólatónleikum Fíladelfíusafnaðarins. Ástæðan er sú tónlistamanni er meinað að syngja þar vegna kynhneigðar sinnar. 28.11.2009 12:44
Óskar: Úrslitin vonbrigði Óskar Bergsson, formaður borgarráðs og sitjandi borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, segir að úrslitin í kosningu um oddvitasæti flokksins séu vonbrigði. Hann ætlar að leggja sitt af mörkum í komandi kosningabaráttu. 28.11.2009 12:21
Einar sigraði sitjandi borgarfulltrúa Einar Skúlason, varaþingmaður Framsóknarflokksins, sigraði Óskar Bergsson, borgarfulltrúa, í kosningu um oddvitasæti á lista flokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor. Einar hlaut 62% atkvæða. 28.11.2009 11:55
Talning hafin á kjörfundi framsóknarmanna Kosningu um oddvitasæti framsóknarmanna í komandi borgarstjórnarkosningum lauk á 12 tímanum og er talning hafin. Kjörfundur fer fram á Hótel Loftleiðum og berjast Einar Skúlason, varaþingmaður og fyrrverandi framkvæmdastjóri þingflokks framsóknarmanna, og Óskar Bergsson, borgarfulltrúi og formaður borgarráðs, um fyrsta sætið. 28.11.2009 11:38
Fyrrverandi ráðherra meðal 78 umsækjenda Þingvallanefnd bárust alls 78 umsóknir um starf þjóðgarðsvarðar á Þingvöllum en umsóknarfrestur rann nýverið út. Meðal umsækjenda eru Kolbrún Halldórsdóttir, fyrrverandi umhverfisráðherra og þingmaður, og Ólafur Örn Haraldsson, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins. Það er þingvallanefnd sem ræður framkvæmdastjóra fyrir þjóðgarðinn sem jafnframt er þjóðgarðsvörður. 28.11.2009 11:24
Barnaefni fyrir fullorðna Það vekur athygli að foreldrarnir hlæja síst minna en börnin, segir Einar Árnason kvikmyndatökumaður sem fékk þá hugmynd að gefa út Klaufabárðana á Íslandi. 28.11.2009 11:00
Þingfundur í dag Þingfundur hefst innan stundar á Alþingi þar sem annarri umræðu um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinganna verður fram haldið, en ekki tókst að ljúka henni í gærkvöld. Sex verða á mælendaskrá í upphafi fundar. 28.11.2009 10:20
Handtekinn fimm ára gamall Mikael Torfason, rithöfundur og fyrrverandi ritstjóri DV, var handtekinn í fyrsta sinn á ævinni þegar hann var fimm ára gamall. „Ég var handtekinn í fyrsta sinn þegar ég var fimm að verða sex og strauk af leikskólanum Steinahlíð og fór heim til mín og reyndi að kveikja í stigaganginum,“ segir Mikael í samtali við Miðjuna, nýtt vefrit um menningu og dægurmál. 28.11.2009 10:15
Boða til útifundar á Austuvelli í dag Hagsmunasamtök heimilanna hafa boðað til útifundar á Austurvelli klukkan þrjú í dag. Í tilkynningu frá samtökunum segir að greiðsluverkfall sé okkar vopn og hvatt er til að fólk sameinist í því. 28.11.2009 10:13
Ríflega níu þúsund skora á forsetann Ríflega 9000 manns hafa skrifað undir áskorun til forseta Íslands á vefsíðu InDefence hópsins. Þar er skorað á Ólaf Ragnar Grímsson að synja nýjum Icesave lögum staðfestingar. 28.11.2009 10:03
Spyr Össur og Steingrím um fundargerðir Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vill vita hvort að til séu fundargerðir forystumanna ríkisstjórnarinnar með erlendum leiðtogum vegna Icesave málsins. Séu slíkar fundargerði til spyr hún jafnframt hvort þær verði birtar. Ragnheiður hefur lagt fram tvær fyrirspurnir Alþingi vegna þessa. 28.11.2009 09:56
Hálkublettir á Hellisheiði Það snjóar nokkuð víða á Reykjanesi og þar er einnig einhver hálka eða hálkublettir. Hálkublettir eru á Hellisheiði og í Þrengslum og allvíða á Suðurlandi, að fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. 28.11.2009 09:38
Fjórir stútar teknir í Reykjavík Nóttin virðist víðast hvar hafa verið afar róleg hjá lögreglumönnum. Lögregla þurfti að hafa lítil afskipti af fólki í miðbæ Reykjavíkur en sinnti nokkrum hávaðaútköllum víðsvegar um borgina. Fjórir ökumenn voru stöðvaðir vegna ölvunaraksturs. 28.11.2009 09:31
Einar og Óskar berjast um oddvitasætið Kjörfundur framsóknarmanna vegna borgarstjórnarkosninganna í vor hefst klukkan tíu á Hótel Loftleiðum. Einar Skúlason, fyrrverandi skrifstofustjóri þingflokks framsóknarmanna, og Óskar Bergsson, borgarfulltrúi, takast á um oddvitasætið. Alls eru 20 frambjóðendur í kjöri. 28.11.2009 09:19
Hafnfirðingar heimta einkaleyfi á jólaþorpi Hafnarfjarðarbær hefur sótt um einkaleyfi á heitinu Jólaþorp og kvartað til Neytendastofu yfir fyrirhuguðum markaði samtakanna Miðborgarinnar okkar í Reykjavík. 28.11.2009 06:00
Tekjur Reykjavíkur 1,5 milljörðum lægri Orkuveita Reykjavíkur (OR) hefur óskað eftir að greiða 800 milljónir króna í afgjald til eigenda sinna. Það er 1,5 milljörðum lægra en þeir 2,3 milljarðar sem eigendur höfðu óskað eftir, en það er eðlileg afgreiðsla. Orkuveitan fékk sams konar frest á afgreiðslu í fyrra. Borgarstjórn á eftir að taka beiðnina fyrir. 28.11.2009 06:00
Alvarlegt ef tækifærin tapast „Verði niðurskurður á fjárveitingum til háskólans til þess að samstarfssamningar við erlendar menntastofnanir falli niður þá er það alvarlegt mál," segir Hildur Björnsdóttir, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands. 28.11.2009 06:00
Líðan mannsins er óbreytt Líðan mannsins sem féll ofan í húsgrunn við sumarbústað á Flúðum fyrir tæpum hálfum mánuði er óbreytt að sögn sérfræðings á gjörgæsludeild Landspítala í gær. 28.11.2009 05:00
Þátttaka í sveitarstjórn tryggð Kristján L. Möller samgönguráðherra hefur undirritað viðauka við Evrópusáttmála um sjálfsstjórnarrétt sveitarfélaga. Í honum er kveðið á um rétt borgara til þátttöku í sveitarstjórnarmálum. 28.11.2009 05:00
Jólatréð tendrað Starfsmenn Reykjavíkurborgar unnu að því í gær að reisa Óslóartréð á Austurvelli. Tréð verður tendrað við hátíðlega athöfn á morgun, á fyrsta sunnudegi í aðventu. Þá tekur Hanna Birna Kristjánsdóttir formlega við trénu frá Aud Kvalbein, varaborgarstjóra Óslóar. 28.11.2009 04:00