Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sendiráðsstarfsmaður kærður fyrir auðgunarbrot Bókari sendiráðs Íslands í Vín hefur viðurkennt auðgunarbrot í sendiráðinu. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu kemur fram að bókarinn hefur þegar látið af störfum og málið hefur verið kært til lögreglu og er það nú til rannsóknar þar. 12.10.2009 17:12
Sýknuð af röngum sakargiftum - var hugsanlega nauðgað Kona, sem var ákærð fyrir að hafa haft uppi alvarlegar og rangar sakargiftir með því að hafa með framburði fyrir lögreglu og fyrir dómi leitast við að koma því til leiðar að fjórir menn yrðu sakaðir um kynferðisbrot gegn henni, var sýknuð í Héraðsómi Reykjavíkur á föstudaginn. 12.10.2009 17:00
Sendingu bóluefnis til Íslands flýtt Að ósk sóttvarnalæknis hefur verið flýtt innflutningi á fyrsta skammti af bóluefni gegn H1N1 veirunni, sem Íslendingar hafa tryggt sér aðgang að með samningi við lyfjaframleiðandann GlaxoSmithKline (GSK). Gert er ráð fyrir að fyrsta sending af bóluefninu, um 15 þúsund skammtar, komi til landsins næst komandi fimmtudag 15. október. 12.10.2009 16:32
Fjögurra bíla árekstur Fjögurra bíla árekstur varð á mótum Breiðholtsbrautar og Skógarsels í Reykjavík um klukkan hálf fjögur í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var tilkynnt um meiðsli á fólki og að einn væri fastur inni í bifreið. 12.10.2009 16:26
Sakaði samstarfskonu um að halda að sér ilmolíu Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði ríkið í skaðabótamáli vegna ólöglegrar uppsagnar konu á fertugsaldri hjá Vinnumálastofnun Suðurnesja. Konunni var sagt upp í lok júlí 2008. Nokkrum mánuðum fyrr var hún áminnt í starfi meðal annars á þeim forsendum að hún átti í alvarlegum samstarfsörðugleikum við samstarfskonu sína. 12.10.2009 16:05
Siðareglur fyrir embættismenn og ráðherra Forsætisráðuneytið hefur birt drög að siðareglum fyrir embættismenn og ráðherra á vef stjórnarráðsins. Almenningi gefst nú kostur á að gera athugasemdir og koma með ábendingar um hvað megi betur fara í þessum drögum að siðareglum. 12.10.2009 15:30
Vilja tryggja daglegar ferjusiglingar Baldurs Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga og fastanefnd sambandsins um samgöngumál (samgöngunefnd), skora á yfirvöld samgöngumála að tryggja áframhaldandi daglegar ferjusiglingar yfir Breiðafjörð, milli Stykkishólms og Brjánslækjar. 12.10.2009 14:52
Einbúi kærir hestamann fyrir líkamsárás Tæplega áttræður einbúi úr Eyjafjarðarsveit kærði hestamann fyrir líkamsárás sem hann á að hafa orðið fyrir síðdegis á laugardaginn. Samkvæmt heimildum Vísis var um að ræða ágreining vegna ágangs hesta á land einbúans. 12.10.2009 14:36
Landsbjörg eykur öryggi með nýjum vef Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur tekið í notkun innri vef og hópvinnukerfi fyrir starfsfólk félagsins og um 18 þúsund félagsmenn þess. Lausnin eykur upplýsingaflæði milli félagsmanna sem og starfsfólks, auk þess að einfalda allt samstarf og samvinnu þeirra á milli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörg. 12.10.2009 13:45
Ecoli sýkingin afmörkuð Ecoli sýkingin sem upp kom fyrir skemmstu í Reykjavík var afmörkuð og hafa ekki fleiri tilfelli greinst. Alls sýktust átta manns, þar af voru þrír tengdir fjölskylduböndum. Ekki hefur enn tekist að finna orsakavaldinn, en ítarlega var farið yfir matvæli sem fólk hafði neytt og innkaupalistar skoðaðir. Sýni voru send til Bretlands til frekari greiningar og er niðurstaðna beðið. 12.10.2009 13:09
Aukinn þungi svínaflensu á landsbyggðinni Svínaflensan er nú að stinga sér niður af auknum þunga á landsbyggðinni. Landlæknisembættið reynir að fá bóluefni til landsins fyrir helgi svo hægt sé að byrja bólusetningu forgangshópa í næstu viku. 12.10.2009 13:04
Fyrrum eigendur kærðir fyrir að stela innréttingum Tvær kærur hafa borist til lögreglunnar á Selfossi vegna eignaspjalla og undanskota innréttinga sem menn hafa rifið niður í íbúðum eða fyrirtækjum sem þeir kærðu höfðu misst á uppboði. 12.10.2009 13:01
Segir ekki skynsamlegt að framleiða meira ál á Íslandi Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra tekur ekki undir þau sjónarmið formanns loftlagsnefndar Sameinuðu þjóðanna að ekkert sé því til fyrirstöðu að endurnýjanleg orka Íslendinga sé notuð til að knýja álver. 12.10.2009 12:06
Réðist á lögregluna í Vestmannaeyjum vopnaður golfkylfu Lögreglan í Vestmannaeyjum komst í hann krappann síðastliðinn laugardag en þá yfirbugðu lögregluþjónarnir mann sem réðst á þá vopnaður golfkylfu. 12.10.2009 12:05
Ægir með Qavak í togi Varðskipið Ægir er með grænlenska bátinn Qavak í togi og eru skipin á leið til hafnar í Reykjavík. 12.10.2009 11:45
Borgarafundur um atvinnumál í Reykjanesbæ Sveitarfélög og launþegahreyfingin á Suðurnesjum efna til borgarafundar um atvinnumál í Reykjanesbæ í kvöld klukkan 18:00 en yfirskrift fundarins er „Baráttan um vinnu". 12.10.2009 11:40
Íslendingar nota tonn af kannabis á ári Á árunum 1995 til 2000 tvöfaldaðist skyndilega fjöldi kannabisfíkla á Vogi. Íslendingar hafa aldrei notað jafn mikið af kannabisefnum og nú. Það líður varla sú vika að kannabisframleiðsla sé ekki stöðvuð og talið er að tugir manns hafi fulla atvinnu af því að framleiða og selja kannabis á Íslandi. Varlegustu áætlanir gera ráð fyrir því að Íslendingar neyti heils tonn af kannabis á ári. Þá má reikna að götuverðið á þeirri neyslu sé nærri þremur og hálfum milljarði. Allt eru það varlega áætlaðar tölur. 12.10.2009 11:25
Snákar úr Hafnarfirði með smitandi salmonellu Fimm snákar, skordýr og Tarantula kóngulær sem lögreglan gerði upptæka í heimahúsi í Hafnarfirði 1. júlí síðastliðinn, reyndust vera smitaðir af Salmonella cholerasuis. Þetta kom fram á vef Matvælastofnunnar en kvikindin voru krufin á Keldum og sýkladeild LSH. 12.10.2009 11:12
Listmunasali býður mótmælendum í kaffi „Þeim verður áreiðanlega bara boðið í kaffi,“ segir Tryggvi Friðriksson, eigandi Gallerí Foldar vegna fyrirhugaðra mótmæla Samtaka Íslenskra Myndlistarmanna (SÍM) fyrir utan galleríið klukkan sex í kvöld. Mótmælin fara fram á sama tíma og uppboð fer fram í Galleríinu. 12.10.2009 10:58
Mótmæli boðuð fyrir utan Gallerí Fold Samband Íslenskra Myndlistarmanna (SÍM) boðar til mótmæla við Gallerí Fold á Rauðarárstíg klukkan 18:00 í dag. 12.10.2009 10:21
Jóhanna segir Íslendinga ekki þurfa fleiri lán Íslendingar þurfa ekki frekari lánafyrirgreiðslu en þegar hefur verið samið um. Þetta kemur fram í svari Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra til norsku fréttaveitunnar ABC. ABC fjallar um norska lánið svokallaða og bréfaskriftir Jóhönnu og Stoltenbergs, forsætisráðherra Noregs. 12.10.2009 08:47
Innbrot hjá eldri borgurum Brotist var inn í félagsmiðstöð eldri borgara í Vesturbæ Reykjavíkur um miðnætti í gær. Að sögn lögreglu var myndvarpa stolið úr miðstöðinni auk þess sem þjófurinn eða þjófarnir höfðu lítilræði af peningum upp úr krafsinu. 12.10.2009 06:55
Mótorhjólaslys í Garðabæ Ökumaður mótorhjóls slasaðist í Garðarbæ í gærkvöldi þegar hann ók aftan á brifreið með þeim afleiðingum að hann kastaðist af hjólinu. Að sögn lögreglu beinbrotnaði maðurinn en óljóst er um frekari meiðsli. Ökumann bílsins og farþega sakaði ekki en slysið átti sér stað á tíunda tímanum í gærkvöldi. 12.10.2009 06:54
Ægir kominn á slóðir fiskiskipsins Varðskipið Ægir er komið á slóðir vélarvana grænlensks fiskiskips sem statt er miðja vegu á milli Íslands og Grænlands. Ekki hefur fengist staðfest hvort tekist hafi að koma taug í skipið en til stendur að draga hann síðan til hafnar á Íslandi. 12.10.2009 06:53
Bændur slökkva ljósin í skugga skelfilegrar stöðu „Staðan er að verða skelfileg hjá garðyrkjubændum. Kostnaðurinn hefur hækkað mikið og hef ég heyrt að nokkrir íhugi að hætta heilsársframleiðslu um næstu áramót,“ segir Bjarni Jónsson, framkvæmdastjóri Sambands garðyrkjubænda. 12.10.2009 06:00
Makríllinn enn á miðunum Fjögur íslensk tog- og nótaskip hafa undanfarna daga tekið þátt í makrílrannsóknum fyrir Austur- og Suðausturlandi sem skipulagðar eru af Hafrannsóknastofnun. Rannsóknin er hluti af því að kortleggja breytt hegðunarmynstur makrílsins við Ísland. 12.10.2009 05:00
Friðarsúlan skín líka á netinu Kveikt var á friðarsúlunni sem tileinkuð er minningunni um Bítilinn John Lennon í þrívíddarútgáfu af Viðey sem finna má í netsamfélaginu Second Life, nokkrum stundum eftir sama viðburð hér á föstudag. 12.10.2009 05:00
Ráðherra sagður tala OR niður „Það er sérkennilegt þegar ekki má benda á hið augljósa. Það eru erfiðleikar með bæði orkuöflun fyrir álver í Helguvík og fjármögnun Hverahlíðarvirkjunar,“ segir Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra. 12.10.2009 04:15
Niðurskurðurinn bitnar mest á öryrkjum Öryrkjar eru uggandi um sinn hag og óttast frekari tekjuskerðingar en orðið hafa á árinu, segir Guðmundur Magnússon, varaformaður Öryrkjabandalags Íslands, ÖBÍ. Aðalstjórn bandalagsins sendi frá sér ályktun í gær þar sem hún mótmælir „harðlega að ríkisstjórnin, sem kennir sig við félagshyggju og jöfnuð, skuli áforma að halda áfram að skerða kjör öryrkja umfram aðra þegna landsins“. Guðmundur segir mjög hart fyrir öryrkja og aðra lífeyrisþega að þurfa að takast á við verri kjör auk þess sem þeir finni auðvitað líka fyrir hækkandi verði á neysluvörum og hærri afborgunum lána. 12.10.2009 04:00
Enn neitað um sæti við samningaborðið Ísland hefur afþakkað boð um að senda áheyrnarfulltrúa á fund strandríkja um heildarstjórnun makrílveiða síðar í þessum mánuði. Fundarboðendum var tilkynnt að Ísland tæki ekki þátt í slíkum fundi nema sem fullgilt strandríki. 12.10.2009 04:00
121 námsmenn enn á atvinnuleysisskrá Vinnumálastofnun hefur sent bréf til 121 manns sem er bæði á atvinnuleysisskrá og skráður í nám án þess að hafa samið um það við stofnunina. Undanfarna daga hefur verið unnið að því að samkeyra atvinnuleysisskrána við nemendaskrár fjörutíu og þriggja háskóla og framhaldsskóla í landinu. 12.10.2009 03:00
Álver í landi Bakka mun rísa Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri Norðurþings, segir að áfram verði unnið á grunni viljayfirlýsingar um álver á Bakka þótt yfirlýsingin sem slík hafi ekki verið framlengd, að ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Í samtali við Sveitarstjórnarmál, rit Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir Bergur Elías ákvörðun ríkisstjórnarinnar bakslag, „en við látum engan bilbug á okkur finna. Álver í landi Bakka við Húsavík mun rísa," segir hann. - bþs 12.10.2009 03:00
Nítján manns missa vinnuna „Þetta er sársaukafullt fyrir fólkið sem lendir í uppsögnunum en einnig fyrir okkur sem eftir eru. Það er erfitt að standa í svona löguðu en þetta var því miður nauðsynleg aðgerð,“ segir Páll Á. Jónsson, framkvæmdastjóri Mílu. Nítján starfsmönnum fyrirtækisins, sem rekur fjarskiptanet landsmanna, hefur verið sagt upp störfum, tíu á höfuðborgarsvæðinu og níu á landsbyggðinni. 12.10.2009 02:30
Hægt að semja um flýtimeðferð Sérfræðingur í Evrópumálum hér á landi telur möguleika á því að semja við seðlabanka Evrópu um flýtimeðferð til að festa gengi íslensku krónunnar gagnvart evrunni. Slíkt gæti komið í veg fyrir frekara fall krónunnar og spákaupmenn gætu síður tekið stöðu gegn henni. 11.10.2009 19:18
Minni skömm en áður Nærri 170 fasteignir hafa verið seldar nauðungarsölu hjá Sýslumanninum í Reykjavík það sem af er þessu ári. Það eru fleiri nauðungarsölur en allt árið í fyrra. 11.10.2009 19:01
Reyna að fjölga ferðmönnum Á Suðausturlandi eru ferðaþjónustuaðilar farnir að þróa verkefni sem lýtur að því að selja sjálfan veturinn. Markmið verkefnisins er að fjölga verulega í hópi þeirra ferðamanna sem leggja land undir fót inn í vetrarríki landshlutans í framtíðinni. 11.10.2009 18:56
Gagnrýnir tímabundnar ráðningar ráðherra Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, gagnrýnir hvernig ráðherrar standa að tímabundnum ráðningum. Hún segir gegnsæi skorta og að ráðherrar hafi ráðið pólitíska aðstoðarmenn í stöður sem hafi ekki verið auglýstar. 11.10.2009 16:23
Útskrifaður eftir skoðun Maðurinn sem þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í morgun eftir slys í Jökulheimum reyndist ekki alvarlega slasaður. Áverkar hans reyndust minniháttar og að sögn vakthafandi læknis á slysadeild var maðurinn útskrifaður eftir skoðun. 11.10.2009 16:14
Fara fram á að jafnræðis sé gætt milli landshluta Framsóknarmenn í Skagafirði undrast þær áherslur sem fram hafa komið í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem lúta að landsbyggðinni og sérstaklega að Norðurlandi vestra. Þeir gerir þá kröfu að ríkisstjórnin hafi það að leiðarljós að jafnræðis sé gætt milli landshluta. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar Framsóknarfélags Skagafjarðar. 11.10.2009 15:01
Úrskurðurinn veldur ekki stórkostlegum töfum „Ég áttaði mig á því að þessi ákvörðun mín myndi valda titringi,“ segir Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, um úrskurð sinn um Suðvesturlínu. Hún segir óeðlilegt að halda því fram að úrskurðurinn komi til með að valda stórkostlegum töfum á iðnaðarframkvæmdum á Suðurnesjum. 11.10.2009 14:47
Kallar forystu sjálfstæðismanna og Steingrím umskiptinga „Umskiptingar eru gjarnan á ferðinni á stjórnmálasviðinu. Sjaldan hefur það verið jafn bersýnilegt og eftir þingkosningarnar í vor,“ segir Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður, í pistli á heimasíðu sinni. Þar beinir hann spjótum sínum að forystumönnum Sjálfstæðisflokksins og formanni Vinstri grænna. 11.10.2009 14:06
Engar breytingar fyrirhugaðar á losunarheimildum Formaður samninganefndar Íslands um loftslagsmál segir að engar breytingar séu framundan á losunarheimildum íslenskra stóriðjufyrirtækja fram til ársins 2012. Árið 2013 muni íslensk stóriðja hins vegar fá allar sínar heimildir í gegnum evrópska kerfið og standa jafnfætis evrópskum fyrirtækjum í orkufrekum iðnaði. 11.10.2009 13:30
Þyrlan lent Þyrla Landhelgisgæslunnar sem var kölluð út í morgun til að sækja slasaðan mann í Jökulheima við rætur Vatnajökuls lenti við Borgarspítalann klukkan rúmlega hálf eitt. 11.10.2009 13:02
Jóhanna: Var ekki að setja þrýsting á Vinstri græna Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segist ekki hafa verið að setja þrýsting á Vinstri græna með því að birta greinagerð Seðlabankans og viðskiptaráðuneytisins um hvaða afleiðingar frekari tafir á endurskoðun Alþjóðgjaldeyrisjóðsins kann að hafa fyrir íslenskt efnahagslíf. 11.10.2009 12:30
Öryrkjabandalagið óskar eftir frestun Stjórn Öryrkjabandalags Íslands ætlar óska eftir því að fyrirhuguðum skerðingum á örorkulífeyri sem taka eiga gildi um næstu mánaðamót verði frestað. 11.10.2009 12:12