Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ökuníðingur veittist að lögreglumönnum Lögreglan handtók mann í Hraunbænum skömmu eftir hádegið í dag. Hann hafði ekið undir áhrifum áfengis og keyrt á tvo bíla. Þegar lögreglumenn hugðust ræða við manninn veittist hann að þeim. Hann var handtekinn og er nú í haldi lögreglunnar. 26.9.2009 17:27
Veðrið lék ekki við Skagfirðinga Laufskálaréttir í Skagafirði hófust í dag en smölun á rúmlega fimm hundruð hrossum hófst klukkan tíu í morgun og hófust réttirnar svo um eittleytið. Búist er við að hátt á annað þúsund manns fylgist með réttunum sem eru vinsæll árlegur viðburður í Skagafirðinum. 26.9.2009 17:17
Formaður utanríkismálanefndar yfirgaf Moggabloggið Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, er hættur að blogga á vef Morgunblaðsins. Á vef sínum segir Árni Þór ekki hvað valdi vistaskiptunum en ákvörðunina tók hann eftir að gerð var breyting á ritstjórn Morgunblaðsins. 26.9.2009 17:44
Bæta aðgengið fyrir fatlaða Framkvæmdir standa nú yfir við Egilshöll í Grafarvogi, sem miða að því að auka nýtingu hússins og bæta íþróttaaðstöðu þar. 26.9.2009 14:40
Illt að þjóðin gangi í ábyrgð fyrir fjárglæframenn Lausn Icesave málsins myndi ekki breyta því að það er illt að þjóðin skuli þurfa að ganga í ábyrgð fyrir fjárglæframenn sem nýttu sér hið sér hið góða nafn hennar á óábyrgan hátt, sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag. 26.9.2009 15:16
Fjallvegir ófærir en Arnkötludalur hafður lokaður Þorskafjarðar-, Tröllatungu- og Steinadalsheiði eru nú allar ófærar vegna snjóa, sem og Hrafnseyrarheiði, og neyðast vegfarendur á leið milli Ísafjarðar og Reykjavíkur því til að aka um Hrútafjörð, sem er yfir 40 kílómetrum lengri leið. Nýja veginum um Arnkötludal er ætlað leysa þrjá fyrstnefndu fjallvegina af hólmi en Vegagerðin sá ástæðu til þess í gær að tilkynna sérstaklega að Arnkötludalsvegur væri lokaður, en ökumenn voru byrjaðir að aka veginn framhjá skiltum sem sögðu hann lokaðan. 26.9.2009 14:44
Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar hafinn Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar hófst í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ eftir hádegi með ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur formanns flokksins og forsætisráðherra. Dagskráin gerir svo ráð fyrir að Árni Páll Árnason félags- og tryggingamálaráðherra og Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra taki við. 26.9.2009 13:28
Grunur um að rafmagn hafi valdið eldinum Grunur leikur á að eldurinn í Höfða í gær hafi kviknað út frá rafmagni en tildrög brunans eru nú til rannsóknar hjá lögreglunni. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri segir brunatryggingu greiða allt tjón sem varð í gær. Blessunarlega hafi öllum menningarverðmætum hússins verið bjargað en brýnt sé að koma húsinu aftur í notkun sem fyrst. 26.9.2009 12:16
Höskuldur gagnrýnir orð seðlabankastjóra „Ég geri alvarlegar athugasemdir við þennan málflutning seðlabankastjóra,“ segir Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins. 26.9.2009 12:01
Lögregla óskar upplýsinga vegna stolins vélsleða Lögreglan á Akureyri óskar eftir upplýsingum vegna vélsleða sem stolið var á tímabilinu 9 september til 12 september síðastliðinn. Vélsleðinn var inni í 26.9.2009 10:54
Einn gistir fangageymslur á Sauðárkróki Einn gistir fangageymslur á Sauðárkróki eftir að hafa verið fjarlægður af heimili sínu vegna ölvunar og óspekta. 26.9.2009 10:00
Lögreglan lýsir eftir 14 ára gamalli stúlku Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, að beiðni barnaverndarnefndar Kópavogs, lýsir eftir Karen Lind Sigurpálsdóttur, fædd árið 1995. Karen Lind var vistuð norður í landi en mun hafa strokið þaðan í gær. Ekkert er vitað hvar hún er niðurkomin. Hún er meðalhá, með ljóst sítt hár. Ef einhver getur veitt upplýsingar um ferðir Karenar, eða hvar hana er að finna, vinsamlegast hafið samband í síma 444 1000. 26.9.2009 09:58
Um 100 manns stóðu vaktina vegna brunans í Höfða Um 100 manna lið á vegum Slökkviliðs Reykjavíkur stóð vaktina í gær þegar eldur kviknaði í Höfða við Borgartún. 26.9.2009 09:34
Fundaði með utanríkisráðherrum Breta og Hollendinga Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, David Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, og Maxime Verhagen, utanríkisráðherra Hollands, áttu í gær formlegan fund í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York. 26.9.2009 09:05
Var eitt sinn híbýli róna „Þetta er nú sennilega það hús í Reykjavík sem er frægast allra húsa,“ segir Guðjón Friðriksson sagnfræðingur sem fylgdist með slökkvistarfinu. 26.9.2009 06:00
Yfirgáfu bílinn eftir að hann festist Tveir menn sem leitað var að við Hvalfell inni af Botnsdal í Hvalfirði í fyrrinótt fundust heilir á húfi eftir nokkurra klukkustunda leit áttíu björgunarsveitarmanna í slagviðri í fyrrinótt. 26.9.2009 06:00
Ég myrti móður mína hlaut Gyllta lundann á RIFF: Djúpt samband mæðgina menning Kanadíska kvikmyndin Ég myrti móður mína (J"ai Tué Ma Mère), frumraun leikstjórans Xaviers Dolan, hlaut Gyllta lundann á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík (RIFF) sem lauk í gær. 26.9.2009 06:00
Sala lambakjöts dregst saman Sala lambakjöts hefur dregist mikið saman á síðastliðnu ári og er efnahagsástandinu kennt um. Salan er þúsund tonnum minni en á sama tíma í fyrra. Á fyrstu átta mánuðum ársins seldust 3.155 tonn en sömu mánuði í fyrra seldust 4.164 tonn. 26.9.2009 06:00
Ráðið aftur ef verkefnum fjölgar vinnumarkaður Þrjátíu starfsmönnum Jarðborana hf. var sagt upp störfum í gær. Uppsagnirnar eru sagðar liður í nauðsynlegum samdráttaraðgerðum. Verkefnum Jarðborana hf. hafi fækkað verulega og tafir á boðuðum stórframkvæmdum hafi neikvæð áhrif á stöðu fyrirtækisins. 26.9.2009 05:00
Ráðherra hvatti til brota á samkeppnislögum „Ég gat ekki betur heyrt en Jón Bjarnason væri að hvetja til brota á samkeppnislögum,“ segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. 26.9.2009 04:00
Óstöðugleiki Akkilesarhællinn Efnahagsmál Ísland dettur niður um sex sæti í árlegri könnun Alþjóðaefnahagsráðsins, World Economic Forum (WEF), á samkeppnishæfni landa. Ísland er í 26. sæti af 133 ríkjum, en var í 20. sæti á síðasta ári. Óstöðugleiki í efnahagslífinu er helsti veikleiki Íslands. 26.9.2009 04:00
Ný Seðlabankalög ef vextirnir lækka ekki efnahagsmál Stjórnvöld verða að taka ráðin af Seðlabankanum og setja ný lög um bankann ef stýrivextir verða ekki lækkaðir verulega á næstu vikum. Þessa skoðun setti Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fram á aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva. Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra setti fram sömu skoðun í júní. 26.9.2009 03:00
Herjólfur heim eftir slippinn samgöngur Vestmannaeyjaferjan Herjólfur er á heimleið eftir slipptöku á Akureyri. Hún fer fyrstu ferð sína á milli lands og Eyja nú í morgunsárið. Ferjan Baldur, sem leysti Herjólf af, snýr til baka og hefur á ný siglingar yfir Breiðafjörð. 26.9.2009 03:00
Áfram þokast í viðræðum um Icesave efnahagsmál Vonir stóðu til að hægt yrði að ljúka Icesave-málinu í þessari viku, en þær vonir eru nú brostnar. Viðræður hafa staðið yfir milli fulltrúa ríkjanna þriggja og hefur málið þokast áfram. 26.9.2009 02:00
Enn rætt við kröfuhafana viðskipti Magnús Jónsson, forstjóri Atorku Group, lét af störfum í gær í tengslum við fjárhagslega endurskipulagningu félagsins. Atorka fékk greiðslustöðvun til þriggja mánaða í júní og sótti í gær eftir framlengingu til októberloka. 26.9.2009 02:00
Allir fái að fjárfesta í orkunni stjórnmál Skúli Helgason, formaður iðnaðarnefndar Alþingis, vill breyta lögum um fjárfestingu útlendinga í orkugeiranum en samkvæmt þeim mega aðeins aðilar innan EES eiga í íslenskum orkufyrirtækjum. 26.9.2009 01:00
Frjálslyndir ekki af baki dottnir Frjálslyndi flokkurinn ætlar að bjóða fram í næstu sveitastjórnarkosningum samkvæmt tilkynningu á heimasíðu þeirra. Þar kemur fram að flokkurinn hyggst bjóða sig fram í Grindavík, Kópavogi, Ísafirði, Skagafirði og Reykjavík. 25.9.2009 23:35
Rafmagnslaust í Breiðholti Fyrir stundu varð háspennubilun í Breiðholti sem olli því að rafmagnslaust er í Hóla- og Fellahverfi. Rafmagnið fór af upp úr klukkan átta í kvöld. 25.9.2009 20:42
Mun ekki brjóta trúnað og birta í Morgunblaðinu Davíð Oddsson, nýr ritstjóri Morgunblaðsins, sagði í viðtali við Sölva Tryggvason á Skjá Einum nú í kvöld að hann myndi ekki rjúfa trúnað við rannsóknarnefnd Alþingis vegna bankahrunsins. 25.9.2009 19:36
Bíóferðir kostuðu rúma milljón Ferð Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra og aðstoðarmanns hennar, á kvikmyndahátið í Kanada nú í september, kostaði ríkið eina komma tvær milljónir króna. Tæp hálf milljón fór í að greiða tvemenningunum dagpeninga. 25.9.2009 19:27
Borgarstjórn ber út menningaverðmæti Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri og Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, bera út málverk og sófasett úr Höfða. 25.9.2009 18:22
Búið að ráða niðurlögum eldsins - myndir Búið er að ná tökum á eldinum í Höfða. Mikill eldur blossaði upp í þessu sögufræga húsi rétt fyrir sex í kvöld. 25.9.2009 19:21
Slökkviliðsmenn rífa þakið af Höfða Slökkviliðsmenn reyna í þessum töluðu orðum að slökkva eldinn bæði inn í Höfða og úti samkvæmt fréttaritara. Þá er verið að rífa hluta af þakinu af til þess að komast að eldinu svo það sé auðveldara að slökkva hann. 25.9.2009 18:03
Eldur í Höfða Eldur kviknaði í Höfða fyrir stundu. Nokkrir slökkviliðsbílar eru mættir á vettvang ásamt lögreglu og sjúkrabílum. Ekki er vitað hversu mikill eldur er í húsinu en slökkvistarf er hafið. 25.9.2009 17:43
Sendiráð Íslands í Washington flytur í nýtt húsnæði Sendiráð Íslands í Washington flytur um mánaðarmótin í nýtt húsnæði. Fjárlög gera ráð yfir 100 milljón krónum í kostnaði vegna starfsemi sendiráðsins í ár. 25.9.2009 16:39
Banaslys í Jökulsárhlíð Banaslys varð um klukkan ellefu í morgun á Hlíðarvegi í Jökulsárhlíð skammt norðan við bæinn Sleðbrjót á Austurlandi. Í tilkynningu frá lögreglu varð slysið með þeim hætti að jeppabifreið á norðurleið valt á veginum. 25.9.2009 16:07
Borgarfulltrúar vilja flestir sitja áfram Meirihluti borgarfulltrúa ætlar að sækjast eftir endurkjöri í borgarstjórnarkosningunum næsta vor en Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson gefur ekkert upp um framtíðaráform sín. Dagur B. Eggertsson og Gísli Marteinn Baldursson svöruðu ekki ítrekuðum tölvupóstum né símtölum fréttastofu. 25.9.2009 15:34
Skarst á puttum og fékk skaðabætur Konu sem starfaði sem sendill hjá fyrirtækinu Íshlutum voru í dag dæmdar skaðabætur vegna vinnslyss sem hún lenti í árið 2007. Bæturnar eru upp á rúmar 1.100.000 krónur en hún fær einnig 4,5% ársvexti frá slysinu sem varð í október árið 2007. Konan hefur leitað til bæði bæklunarlæknis og tauglæknis en er enn með einkenni. 25.9.2009 15:34
Bíður með málsókn gegn Rúv og Daily Mail Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi, er ekki búinn að höfða mál gegn Ríkisútvarpinu líkt og hann lýsti yfir fyrir tæpum mánuði. Það muni hann gera um leið og tími gefst til. Hann segir fréttastofu RÚV vera með öllu óþarfa. 25.9.2009 14:19
Segist víst hafa verið áskrifandi Morgunblaðsins „Ef þetta er blaðamennskan sem á nú að fara að stunda á Morgunblaðinu þá hef ég nokkar áhyggjur," segir Sveinn Andri Sveinsson stjörnulögfræðingur um þær fullyrðingar Óskars Magnússonar útgefanda Morgunblaðsins í Kastljósi í gærkvöldi. Þar hélt Óskar því fram að Sveinn Andri væri ekki áskrifandi að blaðinu en Sveinn Andri sagði mogganum upp þegar Davíð Oddsson var ráðinn ritstjóri. 25.9.2009 14:07
Fimmti maðurinn í varðhald vegna amfetamínssmygls Fjórir karlmenn hafa að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald grunaðir um innflutning á rúmlega fjórum kílóum af amfetamíni. Fimmti maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins í gær. 25.9.2009 13:38
Enginn handtekinn í tengslum við brunann í Laugarásvideo Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar enn þegar kveikt var í Laugarásvideo í lok ágúst, að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirlögregluþjóns. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins en karlmaður var yfirheyrður í byrjun mánaðarins. Hann hafði réttarstöðu grunaðs manns en var að lokum sleppt. 25.9.2009 12:36
Bundið slitlag komið á milli Ísafjarðar og Reykjavíkur Bundið slitlag er nú komið á leiðina milli Ísafjarðar og Reykjavíkur en í gær var lokið við að klæða síðasta kaflann á veginum um Arnkötludal. Þótt ekki sé enn búið að opna veginn formlega eru ökumenn þegar byrjaðir að aka þar um. 25.9.2009 12:15
Gott að gagnrýnisraddir séu til staðar Davíð Oddsson og Haraldur Johannessen nýir ritstjórar Morgunblaðsins mættu til starfa í morgun og heilsuðu upp á starfsfólk blaðsins. Davíð sagði gott að gagnrýnisraddir vegna ráðningar hans sem ritstjóra væru til. 25.9.2009 12:06
Alþingi segir upp Morgunblaðinu Forsætisnefnd Alþingis ákvað á fundi sínum í fyrradag að hætta að greiða fyrir áskrift að Morgunblaðinu fyrir þingmenn. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir formaður nefndarinnar segir að þetta sé liður í hagræðingaraðgerðum þingsins og hafi ekkert með ráðningu Davíðs Oddssonar sem ritstjóra blaðsins að ræða. Áfram verður þó hægt að glugga í Moggann sem liggur niður í þingi. 25.9.2009 11:46