Innlent

Stakk 5 ára gamla stelpu með eggvopni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Tuttugu og tveggja ára gömul kona var handtekin í Keflavík í dag grunuð um að hafa veitt 5 ára gamalli stelpu áverka með eggvopni.

Mikil lögregluaðgerð stóð yfir í Keflavík í morgun vegna málsins. Ekki er vitað hvort konan hafi þekkt eitthvað til stelpunnar eða hvað vakti fyrir henni.

Litla stelpan var flutt með sjúkrabíl á slysadeild í Fossvogi. Hún mun hafa verið með stungusár á brjósti. Þaðan var hún flutt á gjörgæsludeild á Hringbraut. Stúlkan er í stöðugu ástandi og verður undir eftirliti á gjörgæslunni fram til morguns, samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni þar.










Tengdar fréttir

Rannsóknarlögreglan fór inn í hús á Suðurnesjum

Lögreglan á Suðurnesjum hefur girt af hús í Keflavík vegna aðgerða sem þar fer fram. Varðstjóri hjá lögreglunni sem Vísir náði tali af sagðist ekki geta gefið upplýsingar um málið að öðru leyti en því að um væri að ræða vettvangsstörf af hálfu rannsóknarlögreglunnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×