Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ekið á tvö börn í Reykjavík í dag Ekið var á dreng á Baldursgötu í Reykjavík í hádeginu í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni slapp drengurinn vel og þurfti hann ekki að leita aðstoðar á slysadeild. Þá var ekið á barn við Landakot nú rétt fyrir fjögur. Ekki hafa fengist nánari upplýsingar um málsatvik eða líðan drengsins að öðru leyti en því að hann er með meðvitund. 5.8.2009 14:48
Tilgangur lánanna var Svíum fullljós „Þeim var vel ljóst að þessi lántaka var hugsuð til þess að byggja upp öflugan gjaldeyrisvarasjóð en ekki til útgjalda," segir Jón Sigurðsson, formaður samninganefndar Íslendinga gagnvart Norðurlöndunum. 5.8.2009 14:11
Flestum finnst lögreglan skila góðu starfi Um 92% finnst lögreglan skila góðu starfi í sínu hverfi eða byggðarlagi við að stemma stigu við afbrotum, en um 8% finnst lögreglan ekki skila góðu starfi. Þetta sýnir könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir ríkislögreglustjóra í aprílmánuði. Könnunin var kynnt fjölmiðlum í dag. 5.8.2009 12:44
Ekkert um Al Thani í lánayfirliti Kaupþings Ekkert finnst um lán Kaupþings til sjeiksins Al Thanis frá Katar í lányfirliti bankans sem lekið var á netið fyrir skömmu. Eignarhaldsfélag hans keypti hlut í bankanum undir lok september í fyrra fyrir tuttugu og fimm milljarða króna. Þar með varð hann þriðji stærsti hluthafi Kaupþings. 5.8.2009 12:07
Lán SÍ til íslensku bankanna tvöfölduðust árið fyrir hrun Útistandandi lán seðlabankans til íslenskra banka meira en tvöfölduðust á árinu fyrir hrun. Í reikningum bankans sést að frá því í júlí 2007 til september 2008 hækkuðu lán til innlánsstofnana úr tæpum 158 milljörðum í tæpa 455 milljarða. Í júlí, ágúst og september 2008 voru útlán seðlabankans til íslensku bankanna tvöfalt hærri en í sömu mánuðum árið áður. 5.8.2009 11:58
Kruzenshtern verður í Reykjavík næstu daga Hið fræga rússneska skip Kruzenshtern mun liggja við höfnina í Reykjavík dagana 6. - 9. ágúst næstkomandi. Skipið mun koma til Íslands, meðal annars til að fagna því að 65 ár eru liðin frá lokum Seinni heimstyrjaldarinnar. 5.8.2009 11:28
Þvingunaraðgerðir ESB ræddar í utanríkismálanefnd Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir eru á dagskrá utanríkismálanefndar í dag. Það mun þó vera um praktíska umfjöllun að ræða, þ.e. hvernig þátttöku Íslands í slíkum aðgerðum verði háttað. 5.8.2009 11:07
Efnahagsástandið mun versna áður en það batnar Það versnar áður en það batnar. Íslendingar fá nú fyrst fyrir alvöru að finna fyrir efnahagskreppunni, hefur danska blaðið borsen.dk eftir Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra. „Það bíður okkur erfiður vetur, þar sem atvinnuleysið getur aukist á ný, en eftir það ættum við að hafa séð það versta," segir Steingrímur. 5.8.2009 11:06
Forgangur krafna skiptir miklu - myndrænt „Ég held að margir hafi haldið að ef eignir Landsbankans dygðu fyrir þessum 670 milljörðum, þá væri íslenska ríkið stikkfrí í Icesave. Sú er ekki raunin," segir Hjálmar Gíslason, framkvæmdastjóri gagnavinnslufyrirtækisins Datamarket. 5.8.2009 10:37
Skvettu málningu á hús Rannveigar Rist Skemmdarvargar skvettu málningu á hús Rannveigar Rist, forstjóra álversins í Straumsvík, en verknaðarins varð vart í morgun. Skemmdarvargar virðast herja á heimili stjórnenda í stóriðjufyrirtækja þessa dagana því að fyrir rúmri viku var málningu skvett á hús Friðriks Sophussonar, forstjóra Landsvirkjunar. 5.8.2009 10:28
Bændur hvattir til að virða útivistartíma kúa Matvælastofnun hefur hrundið af stað átaksverkefni til að tryggja að kýr fái notið eðlilegrar útivistar yfir sumarið reglum samkvæmt, sem kveða á um að kýr eigi að njóta útivistar í átta vikur yfir sumarið. 5.8.2009 09:41
Gistinóttum fækkar Gistinætur á hótelum í júní síðastliðnum voru 147.900 en voru 155.800 í sama mánuði árið 2008. Þetta kemur fram hjá Hagstofunni og segir einnig að gistinóttum hafi fækkað í öllum landshlutum nema á Suðurlandi. Á Norðurlandi voru gistinætur svipaðar milli ára. 5.8.2009 09:35
Mikill meirihluti andvígur Icesave samningunum Nærri 68% landsmanna er andvígur frumvarpi ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð á Icesave samningum, en 19,6% landsmanna eru hlynntir. Þetta sýna niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar sem Capacent-Gallup gerði fyrir útgáfufélagið Andríki, sem gefur út Vef-þjóðviljann. 5.8.2009 09:28
Stútur tekinn úr umferð á Selfossi Mikið ölvuð kona var tekin úr umferð á Selfossi í nótt eftir að lögreglumenn tóku eftir undarlegu ökulagi hennar. 5.8.2009 08:13
Vel græjaður þjófur handtekinn við iðju sína Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók á sjöunda tímanum í morgun mann, sem var að reyna að brjótast inn í íbúðarhús í austurborginni. 5.8.2009 07:57
Átta kálfar drápust í árekstri Sjö kálfar drápust samstundis og dýralæknir þurfti að aflífa einn til viðbótar, eftir að amerískum jeppa af stærstu gerð var ekið inn í hóp kálfa, sem sloppið höfðu úr girðingu við þjóveginn, rétt austan við Selfoss laust eftir miðnætti. 5.8.2009 07:29
Leðurjökkum og fjórhjóli stolið í nótt Lögreglu var tilkynnt um fjögur innbrot á höfuðborgarsvæðinu í nótt og komust þjófarnir undan í öllum tilvikum. Brotist var inn á heimili, í pylsuvagn og tvö fyrirtæki. Annað þeira var herrafataverslun, þar sem stolið var mörgum dýrum leðurjökkum. Hitt fyrirtækið var bílasala og þaðan var stolið fjórhjóli, sem þjófarnir óku burt, að sögn vitnis, en ekki er talið að þeir hafi stolið lyklum að bílum, sem eru á sölunni. 5.8.2009 07:27
Verjendur skila greinargerðum Mál Jónasar Inga Ragnarssonar og Tinds Jónssonar, sem ákærðir eru fyrir að ætla að framleiða amfetamín í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði, var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Þar skiluðu verjendur greinargerðum þar sem afstaða sakborninganna tveggja til sakarefnisins var skýrð. 5.8.2009 06:00
Handritin á heimslista Unesco Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, hefur frá 1997 haldið skrá yfir minjar sem þykja hafa sérstakt varðveislugildi fyrir andlegan menningararf mannkyns og nefnist „Memory of the World“, eða „Minni heimsins“. Nú eru 193 minjar í skránni. Handritasafn Árna Magnússonar er fyrstu íslensku minjarnar til að komast í varðveisluskrána. 5.8.2009 06:00
Össur á undanþágu Össur er eina fyrirtækið á lista Seðlabanka Íslands sem hefur undanþágu frá reglum um gjaldeyrismál og hefur stundað viðskipti með krónur erlendis. Fréttablaðið sendi eftirfarandi fyrirspurn til allra fyrirtækja á lista Seðlabankans: Hafið þið verið þátttakendur á markaði með krónur á erlendum mörkuðum? 5.8.2009 06:00
Færri fá bætur yfir sumarið Vinnumálastofnun greiddi rúmlega fimmtán þúsund einstaklingum rúmlega 1,7 milljarða króna í atvinnuleysisbætur nú um mánaðamótin að sögn Líneyjar Árnadóttur, forstöðumanns greiðslustofu Vinnumálastofnunar. 5.8.2009 05:30
Fyrrum forstjórar í framboði Alls gefa níu kost á sér til setu í aðalstjórn Icelandair Group á hluthafafundi sem verður haldinn á morgun, 6. ágúst. 5.8.2009 05:00
Spretta í túnum góð þrátt fyrir þurrk „Í rauninni má segja að þessi þurrkur hafi haft merkilega lítil áhrif því sprettan í túnunum er almennt mjög góð,“ segir Valdimar Guðjónsson, bóndi á Gaulverjabæ í Flóahreppi. Nýafstaðinn júlímánuður var óvenju þurr víða um vestan- og suðvestanvert landið. Fara þarf aftur til ársins 1889 til að finna jafn litla úrkomu í júlí, eftir því sem kemur fram á vef Veðurstofu Íslands. 5.8.2009 04:45
Fólksflótti er hættulegastur Efnahagsmál Mesta hættan við Icesave-samningana liggur í því hversu mjög skuldabyrði landsmanna mun þyngjast ef fólk flýr land í stórum stíl. Þetta er meðal þess sem fram kemur í áliti Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um Icesave-skuldbindingarnar, sem kynnt var fjárlaganefnd í gær. 5.8.2009 04:30
Fleiri andvígir aðild að ESB Fleiri landsmenn eru andvígir aðild Íslands að Evrópusambandinu en eru hlynntir því, samkvæmt könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir vefsíðuna Andríki. 5.8.2009 04:00
Vöruskipti jákvæð í júní Vöruskiptin í júní voru hagstæð um 8,7 milljarða króna. Fluttar voru inn vörur fyrir 32 milljarða en út fyrir 40,7 milljarða. Fyrstu sex mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 212 milljarða króna en inn fyrir 179 milljarða króna. 5.8.2009 04:00
Fjórir árekstrar á stuttum tíma Fjórir harðir árekstrar urðu á tveggja og hálfs klukkustundar löngu tímabili í Reykjavík í gær. 5.8.2009 03:30
Óskiljanlegt að verja lögbrot Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir ljóst að fara þurfi yfir þær reglur sem gilda um aðgang að upplýsingum sem tengjast bankahruninu, í ljósi frétta síðustu daga af lánamálum Kaupþings. Í þeim efnum hafi stjórnvöld brugðist algjörlega. 5.8.2009 03:15
Eyðsla ferðamanna hefur tvöfaldast í ár Ferðamenn eyddu um 90 prósentum meira að meðal-tali á Íslandi frá janúar til júlí, en á sama tímabili í fyrra. Mest er aukningin hjá Dönum, um 150 prósent, og skipa þeir sér nú í efsta sæti listans sem Bandaríkjamenn hafa lengst af verið í. 5.8.2009 03:00
Töldu að lögbannið yrði ekki staðfest Skilanefnd Kaupþings mat það sem svo að lögbann á fréttaflutning Ríkissjónvarpsins fengist ekki staðfest þar sem aðrir fjölmiðlar höfðu fjallað ítarlega um málið. Því var ákveðið að falla frá lögbannskröfu á fréttaflutninginn í gær. Þetta kemur fram í upplýsingum frá skilanefnd Kaupþings. 5.8.2009 03:00
Bankaleynd á ekki að veraskjól markaðsmisnotkunar efnahagsmál Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að það hafi komið sér gjörsamlega í opna skjöldu hve miklar fjárhæðir voru lánaðar til fárra aðila og hugsanlega án nægilegra veða. Það sé hins vegar ánægjulegt að Kaupþing skuli hafa fallið frá fráleitu lögbanni á fréttaflutning Ríkissjónvarpsins um lánabók Kaupþings sem lekið var á vefsíðuna Wikileaks.org í síðustu viku. Hún segir að ekki sé hægt að nota bankaleynd til að fela markaðsmisnotkun í samfélagi þar sem krafist er gegnsæis. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Stjórnarráðinu í gær. 5.8.2009 02:30
Bóluefni kostar 380 milljónir Íslenska ríkið mun greiða rúmar 380 milljónir króna fyrir 300 þúsund skammta af bóluefni gegn svínaflensunni H1N1, þar sem hver skammtur kostar 7 evrur. Bóluefnið mun duga til að bólusetja um helming þjóðarinnar. 5.8.2009 02:30
Minni umferð en aðrar helgar Umferð úr höfuðborginni var minni um verslunarmannahelgina en flestar aðrar helgar í sumar, samkvæmt tölum frá Vegagerðinni. Vegagerðin hefur tekið saman tölur um umferð frá höfuðborgarsvæðinu frá því síðustu helgina í júní, og var umferð um verslunarmannahelgina minni en um meðalhelgi. Umferðin var mest síðustu helgina í júní, en minnst síðustu helgina í júlí. 5.8.2009 02:15
Á fimmta tug innbrota kærð Á fimmta tug innbrota og þjófnaða voru kærð til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Er það talsvert meira en undanfarnar verslunarmannahelgar. Meðal annars var brotist inn í fyrirtæki, íbúðarhúsnæði, sumarhús og bíla. 5.8.2009 02:00
Þriðjungur aldrei notað internetið Einn af hverjum þremur hefur aldrei notað internetið, samkvæmt könnun sem gerð var á vegum Evrópusambandsins. Frá þessu er greint á fréttavef BBC. 5.8.2009 02:00
Handrit Árna Magnússonar með merkustu minjum heims Handrit Árna Magnússonar hafa verið skráð á heimslista UNESCO yfir verðmætustu menningarminjar heims. Forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar segir þetta staðfesta mikilvægi safnsins og vekja á því athygli um allan heim. 5.8.2009 01:45
Talibanar skjóta á Kabúl Flugskeytaárás var gerð á Kabúl Höfuðborg Afganistans í gærmorgun. Talibanar eru taldir standa á bakvið árásirnar en að minnsta kosti níu flugskeytum var skotið á höfuðborgina rétt fyrir dögun að sögn lögreglu í Kabúl. 5.8.2009 01:15
Hefðu mátt seljast fleiri miðar „Þetta er í fyrsta skipti sem íslenskt landslið kemst í lokakeppni stórmóts og því hefðu nú fleiri miðar mátt seljast. En svona er þetta bara, það er auðvitað kreppa og margir sem halda að sér höndum. Leikirnir verða líka sýndir í sjónvarpinu hér heima,“ segir Ragnheiður Elíasdóttir, ritari hjá Knattspyrnusambandi Íslands (KSÍ). 5.8.2009 01:15
100 útlendingar læra íslensku Rúmlega 100 manns eru nú á Vestfjörðum til að taka þátt í íslenskunámskeiði á vegum Háskólaseturs Vestfjarða. Nemendurnir á námskeiðinu eru flestir á leið í skiptinám hér á landi, en þó eru um þrjátíu þeirra einfaldlega áhugafólk um íslensku. Íslenskunámskeiðið hófst á mánudag og stendur í þrjár vikur. 5.8.2009 01:00
Eldur í efnalauginni rakinn til elds í þurrkara Mikil eyðilegging varð á efnalauginni við Háaleitisbraut vegna elds sem þar kviknaði. Orsök eldsvoðans er rakin til þurrkara. Inn í honum var þvottur frá veitingahúsi. 4.8.2009 20:48
Frönsk umræða: Stökkvið í sjóinn - Neyðum Ísland til að borga Viðtalið við Evu Joly sem birtist um helgina í nokkrum blöðum í nokkrum löndum á sama tíma hefur vakið athygli. Á vefsíðu Le Monde má finna viðtalið við Evu en þar má einnig finna sex blaðsíður af athugasemdum Frakka vegna greinarinnar og stöðu Íslands í alþjóðlegu tilliti. 4.8.2009 20:25
Indefence lýsa eftir tvítyngdum sjálfboðaliðum „Nú þurfum við virkilega að sýna samstöðu og nýta öll okkar tengsl við útlenda kunningja og samstarfsaðila til þess að vekja athygli á málstað íslendinga,“ segir Ólafur Elíasson, einn forsprakka Indefence hópsins en þeir leita nú logandi ljósi að tungukunnáttumönnum til þess að leggja hreyfingunni lið. 4.8.2009 20:54
Ölvaður ökufantur og lyfjaður bílstjóri stöðvaðir Einn ökumaður var tekinn grunaður um ölvun við akstur í morgun á Reykjanesinu. Þá stöðvaði lögreglan á Suðurnesjum annan ökumann seinni partinn. Hann var grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. 4.8.2009 20:40
Hagfræðistofnun: Íslendingar munu flýja Ljóst er að með Icesave samningunum skerðast lífskjör vegna aukinna skulda. Þetta segir í mati Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands. Formaður fjárlaganefndar segir að nefndin verði að meta hvort nauðsynlegt sé að ganga frá Icesave samningunum eða hvort eigi að hafna þeim. 4.8.2009 19:06
Vegfarendur við Þingvallavatn handtóku ölvaðan ökumann Fjórtán ökumenn voru teknir í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í liðinni viku vegna gruns um fíkniefna- og ölvunarakstur. Einn þeirra ók bifreið sinni út af vegi við Hestvík við Þingvallavatn og var handtekinn af vegfarendum sem höfðu forðað sér naumlega undan því að verða fyrir bifreið þess ölvaða. Annar velti bíl sínum aðfaranótt annars ágúst út fyrir veg við Villingavatn í Grafningi en slapp við meiðsli líkt og sá er lenti út af vegi við Hestvík. 4.8.2009 14:07
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent