Innlent

Fjórir árekstrar á stuttum tíma

Fjórir harðir árekstrar urðu á tveggja og hálfs klukkustundar löngu tímabili í Reykjavík í gær.

Þrír bílar rákust saman á gatnamótum Háleitisbrautar og Miklubrautar laust fyrir klukkan 17. Talið var að einn ökumaður hefði rifbeinsbrotnað og var hann fluttur á slysadeild. Um svipað leyti varð umferðarslys á mótum Laugavegs og Kringlumýrarbrautar. Ekki var tilkynnt um slys á fólki.

Aftanákeyrsla varð á umferðarljósum á Sæbraut um sexleytið. Farþegi í bílnum sem keyrt var á var fluttur á slysadeild. Þá rákust tveir bílar saman í Mjóddinni laust fyrir klukkan hálf átta. Ökumenn beggja bílanna voru fluttir á slysadeild. Ekki var vitað um alvarleika meiðsla í gærkvöldi.- kg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×