Innlent

Á fimmta tug innbrota kærð

Á fimmta tug innbrota og þjófnaða voru kærð til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Er það talsvert meira en undanfarnar verslunarmannahelgar. Meðal annars var brotist inn í fyrirtæki, íbúðarhúsnæði, sumarhús og bíla.

Ekki liggur fyrir hversu miklum verðmætum var stolið né hversu miklu tjóni þjófar ollu við að brjótast inn. Lögregla var fáliðaðri á höfuðborgarsvæðinu en verið hefur um verslunarmannahelgar undanfarin ár.

Nokkrir hafa verið handteknir, grunaðir um aðild að innbrotum.- kg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×