Innlent

Talibanar skjóta á Kabúl

Flugskeytaárás var gerð á Kabúl Höfuðborg Afganistans í gærmorgun. Talibanar eru taldir standa á bakvið árásirnar en að minnsta kosti níu flugskeytum var skotið á höfuðborgina rétt fyrir dögun að sögn lögreglu í Kabúl.

Að minnsta kosti eitt barn slasaðist í árásinni og tjónið er töluvert. Þetta er umfangsmesta árás sem gerð hefur verið á borgina í nokkur ár en talibanar hafa heitið því að spilla forsetakosningum sem fyrirhugaðar eru í Afganistan þann tuttugasta ágúst næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×