Innlent

Ekið á tvö börn í Reykjavík í dag

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ekið var á dreng á Baldursgötu í Reykjavík í hádeginu í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni slapp drengurinn vel og þurfti hann ekki að leita aðstoðar á slysadeild. Þá var ekið á barn við Landakot nú rétt fyrir klukkan þrjú. Ekki hafa fengist nánari upplýsingar um málsatvik eða líðan drengsins að öðru leyti en því að hann er með meðvitund.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×