Innlent

Vel græjaður þjófur handtekinn við iðju sína

Myndin er sviðsett.
Myndin er sviðsett. MYNF/Hilmar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók á sjöunda tímanum í morgun mann, sem var að reyna að brjótast inn í íbúðarhús í austurborginni.

Í poka sem hann hafði meðferðis voru ýmis áhöld til innbrota eins og til dæmis kúbein, og auk þess gríma til að hylja andlitið og gúmíhanskar til að fingraför fyndust ekki. Maðurinn var í annarlegu ástandi og gistir nú fangageymslur og mun þetta ekki vera í fyrsta skipti sem hann hallar höfði sínu þar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×