Innlent

Bændur hvattir til að virða útivistartíma kúa

Grunur leikur á að sumar kýr fái ekki að njóta frelsisins í samræmi við reglur.
Grunur leikur á að sumar kýr fái ekki að njóta frelsisins í samræmi við reglur.

Matvælastofnun hefur hrundið af stað átaksverkefni til að tryggja að kýr fái notið eðlilegrar útivistar yfir sumarið reglum samkvæmt, sem kveða á um að kýr eigi að njóta útivistar í átta vikur yfir sumarið.

Grunur leikur á að misbrestur sé á þessu, einkum í nýjum stórum fjósum þar sem sjálfvirkir mjaltaþjónar eru notaðir. Héraðsdýralæknum hefur nú verið falið að kanna málið á sínum svæðum og fylgja því eftir að bændur virði þessar reglur, kúnum til hagsbóta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×