Innlent

Ölvaður ökufantur og lyfjaður bílstjóri stöðvaðir

Einn ökumaður var tekinn grunaður um ölvun við akstur í morgun á Reykjanesinu. Þá stöðvaði lögreglan á Suðurnesjum annan ökumann seinni partinn. Hann var grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

Tveir aðilar voru teknir grunaðir um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna í Reykjanesbæ í dag. Annar þeirra reyndist einnig aka sviptur ökuréttindum.

Einn ökumaður var tekinn fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni. Hann mældist á 123 kílómetra hraða en þar er hámarkshraði 90 kílómetrar á klukustund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×