Innlent

100 útlendingar læra íslensku

Rúmlega 100 manns eru nú á Vestfjörðum til að taka þátt í íslenskunámskeiði á vegum Háskólaseturs Vestfjarða. Nemendurnir á námskeiðinu eru flestir á leið í skiptinám hér á landi, en þó eru um þrjátíu þeirra einfaldlega áhugafólk um íslensku. Íslenskunámskeiðið hófst á mánudag og stendur í þrjár vikur.

Íslenskukennslunni er blandað saman við kynningar á íslenskri menningu og sögu. Flestir nemendurnir gista að Núpi í Dýrafirði en nokkrir eru á Ísafirði.

Háskólasetrið hefur hvatt Vestfirðinga til að tala íslensku við nemendurna, og hjálpa þannig til við kennsluna.

- þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×