Bóluefni kostar 380 milljónir 5. ágúst 2009 02:30 Ögmundur Jónasson.
Íslenska ríkið mun greiða rúmar 380 milljónir króna fyrir 300 þúsund skammta af bóluefni gegn svínaflensunni H1N1, þar sem hver skammtur kostar 7 evrur. Bóluefnið mun duga til að bólusetja um helming þjóðarinnar. Ögmundur Jónasson heilbrigðis-ráðherra kynnti aðgerðir gegn flensunni og greindi frá stöðu mála á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun. „Í maí ákváðum við að halda því opnu að festa kaup á 150.000 til 300.000 skömmtum. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að fara í efri mörkin, sem kostar sitt. Það er mat heilbrigðisyfirvalda að sýna ítrustu varúð í þessum efnum. Þessi ákvörðun er því í samræmi við ráðleggingar sóttvarnalæknis og okkar færustu sérfræðinga," segir Ögmundur Jónasson. Bóluefnið hefur ekki enn borist til landsins. Ögmundur segir það væntanlegt á næstunni. Þrjú ný tilfelli af flensunni greindust um helgina en gera má ráð fyrir að þeim muni fjölga í dag og næstu daga. Fólkið sem greindist um helgina var á aldrinum 16 til 25 ára. Um er að ræða tvo Íslendinga og einn útlending. Alls hafa því 54 tilfelli af flensunni verið staðfest hér á landi. - þeb/kg
Mest lesið Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Fleiri fréttir Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Sjá meira