Innlent

Flestum finnst lögreglan skila góðu starfi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglan hefur verið mikið í umræðunni undanfarið. Almenningur er ánægður með störf lögreglumanna þótt þeir kvarti sjálfir undan aðbúnaði sínum.
Lögreglan hefur verið mikið í umræðunni undanfarið. Almenningur er ánægður með störf lögreglumanna þótt þeir kvarti sjálfir undan aðbúnaði sínum.
Um 92% Íslendinga finnst lögreglan skila góðu starfi í sínu hverfi eða byggðarlagi við að stemma stigu við afbrotum, en um 8% finnst lögreglan ekki skila góðu starfi. Þetta sýnir könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir ríkislögreglustjóra í aprílmánuði. Könnunin var kynnt fjölmiðlum í dag. Þá kemur fram að um 76,5% finnst aðgengi þeirra að lögreglunni í sínu hverfi eða byggðarlagi vera gott en 33,5% finnst það vera slæmt. Alls voru 3881 manns spurðir í könnuninni og var svarhlutfall 62,9%.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×