Innlent

Leðurjökkum og fjórhjóli stolið í nótt

Lögreglu var tilkynnt um fjögur innbrot á höfuðborgarsvæðinu í nótt og komust þjófarnir undan í öllum tilvikum. Brotist var inn á heimili, í pylsuvagn og tvö fyrirtæki. Annað þeira var herrafataverslun, þar sem stolið var mörgum dýrum leðurjökkum. Hitt fyrirtækið var bílasala og þaðan var stolið fjórhjóli, sem þjófarnir óku burt, að sögn vitnis, en ekki er talið að þeir hafi stolið lyklum að bílum, sem eru á sölunni.

Frá áramótum til júlíloka var að meðaltali tilkynnt um 250 innbort á höfuðborgarsvæðinu í hverjum mánuði, sem er hundrað innbrotum fleira á mánuði en í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×