Innlent

Hefðu mátt seljast fleiri miðar

landsliðið Fjölskyldur landsliðskvennanna verða áberandi á áhorfendapöllunum í Finnlandi í lok mánaðarins.
fréttablaðið/daníel
landsliðið Fjölskyldur landsliðskvennanna verða áberandi á áhorfendapöllunum í Finnlandi í lok mánaðarins. fréttablaðið/daníel

„Þetta er í fyrsta skipti sem íslenskt landslið kemst í lokakeppni stórmóts og því hefðu nú fleiri miðar mátt seljast. En svona er þetta bara, það er auðvitað kreppa og margir sem halda að sér höndum. Leikirnir verða líka sýndir í sjónvarpinu hér heima,“ segir Ragnheiður Elíasdóttir, ritari hjá Knattspyrnusambandi Íslands (KSÍ).

Sambandið hefur selt á bilinu fjörutíu til sjötíu miða á hvern leik íslenska kvennalandsliðsins í riðlakeppni úrslitakeppni Evrópumótsins, sem hefst í Finnlandi hinn 24. ágúst næstkomandi.

Að sögn Ragnheiðar samanstendur hópurinn sem festi kaup á miðum á leikina í riðlakeppninni mikið til af fjölskyldum landsliðskvennanna. „En það er líka nokkuð um að fyrrverandi landsliðskonur ætla að skella sér til Finnlands með dætrum sínum, og það er gaman að því. Svo er auðvitað alltaf einn og einn sem ætlar að fara vegna einskærs áhuga, en þeir mættu vera fleiri.“

Ef svo fer að landsliðið komist upp úr riðli sínum á mótinu mun KSÍ bjóða upp á miða á leiki í útsláttarkeppninni. „Ég er viss um að þeir miðar muni rjúka út. Við Íslendingar erum svolítið þannig að við lifnum við þegar vel gengur,“ segir Ragnheiður.

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari kvennalandsliðsins, tilkynnir 22 manna leikhópinn fyrir Evrópumótið á blaðamannafundi í hádeginu í dag.- kg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×