Fleiri fréttir

Landlæknir segir aðgengi að geðdeildum vera gott

„Það er engin geðdeild á sjúkrahúsinu á Akranesi, en geðdeildarmóttakan í Reykjavík er einnig ætluð öðrum landsmönnum. Hér á landi er aðgengi að geðdeild betra en gengur og gerist í nálægum löndum, að minnsta kosti fyrir þá sem búa í Reykjavík og nágrenni " segir Matthías Halldórsson landlæknir.

Slökkvitæki stolið af Þingvöllum

Brotist var inn í fræðslumiðstöð þjóðgarðsins á Þingvöllum í fyrrinótt. Þaðan var stolið tölvu og búnaði henni tengdum og 6 kílógramma slökkvitæki. Í dagbók lögreglunnar á Selfossi kemur fram að nokkuð tjón hafi orðið af þessu en farið var inn með því að brjóta stóra rúðu í húsinu.

Fíkniefnaverksmiðjumálið tekið fyrir í Héraðsdómi

Mál ríkissaksókanra gegn Jónasi Inga Ragnarssyni og Tindi Jónssyni var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Þeir eru grunaðir um að hafa staðið að framleiðslu á umtalsverðu magni af amfetamíni í húsnæði við Rauðhellu í Hafnarfirði, en lögregla stöðvaði starfsemina í húsinu í október í fyrra.

Þrjú ný tilfelli af inflúensu A greindust um helgina

Alls hafa verið staðfest þrjú tilfelli af nýrri inflúensu A (H1N1)v yfir verslunarmannahelgina og er því heildarfjöldi staðfestra tilfella samtals 54. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum og ennfremur er þess getið að enginn hafi orðið fyrir alvarlegum veikindum.

Álit Hagfræðistofnunar rætt á fundi fjárlaganefndar í dag

Álit Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands á greiðslubyrði vegna Icesave verður tekið fyrir á fundi fjárlaganefndar klukkan tvö í dag. Mikil gagnrýni hefur komið fram um álit Seðlabankans á sama máli, en Seðlabankinn telur að þjóðarbúið sé fyllilega fært um að standa undir greiðslubyrði Icesave samninganna.

Fleiri andvígir aðild að ESB en hlynntir

Alls eru 48,5% landsmanna andvígir aðild Íslands að Evrópusambandinu en 34,7% eru hlynntir aðild samkvæmt skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir útgáfufélagið Andríki, sem heldur úti Vef-Þjóðviljanum.

Um 25 fíkniefnamál í Eyjum

Alls komu um 25 fíkniefnamál upp á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þessa helgina. Í flestum tilfellum var lagt hald á amfetamín í þessum málum.

Tveir menn handteknir vegna ráns í 11-11

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið tvo menn sem grunur leikur á að séu þeir sem réðust inn í 11-11 verslun í Skipholti í gær. Mennirnir ógnuðu starfsmönnum með hnífum og höfðu á brott með sér eitthvað þýfi. Ræningjarnir komust svo á brott á bláum fólksbíl.

Slökkvilið kallað í Herjólfsdal

Slökkviliðið í Vestmannaeyjum var kallað inn í Herjólfsdal undir morgun til að slökkva eld, sem hafði læst sig í mannvirki við stórt útigrill þar. Yfirgefin tjöld höfðu verið borin þar að og kveikt í þeim.

Ræningja enn leitað

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn tveggja manna, líklega um tvitugt, sem frömdu vopnað rán í verslun 10-11 í Skipholti í Reykjavík laust fyrir hádegi í gær. Þeir ógnuðu tveimur afgreiðslumönnum með hnífum, stungu á sig verðmætum og komust undan á bláum smábíl.

Umferðin gekk vel í gær

Umferð gekk vel til höfuðborgarinnar í gær, þrátt fyrir talsverðan þunga lengst af deginum. Strax upp úr kvöldmat tók verulega að draga úr umfeðrinni, sem var heldur meiri um Suðurlandsveg en Vesturlandsveg.

Innbrotaalda í Reykjavík um helgina

Á fimmta tug innbrota og þjófnaða hafa verið kærðir til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina, sem er talsvert meira en undanfarnar verslunarmannahelgar. Meðal annars var brotist inn í fyrirtæki, íbúðarhúsnæði, sumarhús og bíla.

Tveir slösuðust á Hringbraut

Tveir menn slösuðust þegar bíll þeirra hafnaði uppi á hringtorgi fyrir framan JL húsið vestast á Hringbraut í Reykjavík á þriðja tímanum í nótt. Þeir voru fluttir á Slysadeild til aðhlynningar og er ökumaðurinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.

14 ára á stolnum bíl

Lögreglan á Seofossi handtók tvo fjórtán ára pilta laust eftir miðnætti, eftir að hafa stöðvað þá á stolnum bíl rétt utan við bæinn. Þeir voru að sjálfsögðu réttindalausir líka, auk þess sem bíllinn var bremsulaus þannig að lögregla lét flytja hann brott með kranabíl.

Forkastanlegt og heimskulegt lögbann

Lögbann Kaupþings á fréttaflutning Ríkisútvarpsins um lánamál stærstu viðskiptavina bankans er forkastanlegt og heimskulegt segir formaður viðskiptanefndar Alþlingis. Hún segir að ef breyta þurfi lögunum um bankaleynd til að koma í veg fyrir svona vitleysisgang þá sé það brýnt.

Hundur drapst í vélhjólaslysi

Umferð er farin að þyngjast verulega bæði á Suðurlandsvegi og Vesturlandsvegi, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Umferð hefur þó gengið mjög vel og er ekki vitað til þess að nein alvarleg slys hafi orðið.

Umferð gengur vel

Umferð til Reykjavíkur hefur gengið vel það sem af er degi og hefur lögreglunni ekki borist tilkynning um nein slys. Lögreglumenn í Borgarnesi segja að umferðin hafi verið róleg í morgun. Upp úr eitt hafi hún tekið að þyngjast örlítið. Lögreglumenn á Selfossi segja að umferð um Suðurlandsveg sé ekki enn tekin að þyngjast og geta þeir sér þess til að fólk fresti heimkomum úr helgarferðum vegna góðs veðurs.

Mótmæla lögbanni á fréttir Ríkisútvarpsins

Blaðamannafélag Íslands og Félag fréttamanna á Ríkisútvarpinu mótmæla lögbanni á fréttir Ríkisútvarpsins sem byggja á gögnum frá lánanefnd Kaupþings í aðdraganda efnahagshrunsins.

Kaupþing friðþægir fyrir stjórnvöld

Markmiðið með greiðsluaðlögunúrræði Kaupþings er að tryggja greiðsluvilja lántakenda og þar með rekstrargrundvöll bankans. Jafnvel virðist sem markmiðið sé einnig að fría stjórnvöld frá þeirri ábyrgð að tefla fram raunverulegum og sanngjörnum kerfisbundnum lausnum fyrir heimilin í landinu. Þannig skapi þetta úrræði ákveðna friðþægingu fyrir stjórnvöld.

Vopnað rán í 11-11

Tveir menn réðust vopnaðir hníf inn í 11-11 verslun í Skipholti um ellefuleytið í morgun. Mennirnir eru taldir vera um tvítugt. Þeir ógnuðu starfsfólki verslunarinnar, tóku með sér eitthvað þýfi og óku svo á brott á bláleitum smábíl. Lögreglumaður sem fréttastofa náði tali af sagðist ekki vita hversu mikið þýfi hefði verið tekið úr versluninni.

Tvö umferðaróhöpp á Akureyri

Bíll keyrði útaf við Fagraskóg á Ólafsfjarðarvegi á milli Akureyrar og Dalvíkur undir morgun. Engin slys urðu á fólki.

Tvö kynferðisbrotamál í Vestmannaeyjum

Tvö kynferðisbrotamál voru tilkynnt til lögreglunnar í Vestmannaeyjum í morgun. Brotin beindust í báðum tilfellum gegn ungum konum. Annað málið er enn í rannsókn en lögreglan segir að í hinu tilfellinu hafi hugsanlega verið um tilraun til nauðgunar að ræða. Þá var lögreglu tilkynnt um líkamsárás þegar karlmaður var sleginn í andlitið undir morgun.

Brotist inn í fjögur hús í Reykjavík

Brotist var inn í fjögur hús í Reykjavík í nótt. Eitt þeirra var við Keilufell í Breiðholti. Þar vöknuðu húsráðendur við þrusk um sexleytið í morgun. Þegar fólkið gáði að hvað um var að vera sá það að búið var að róta í öllu þeirra dóti og tveir bíllyklar höfðu verið teknir.

Segir Kaupþingslán bera keim af markaðsmisnotkun

Miklar líkur eru á að lán Kaupþings til stærstu lántakenda séu ólögmæt og bera þau keim af markaðsmiðsnotkun. Þetta segir framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta og jafnframt að stór hluti útlána bankans hafi verið til að kaupa hlutabréf í Kaupþingi og Existu til að halda uppi verði í félögunum tveimur.

Nýfundin verk eftir Mozart leikin á hans eigin píanó

Mozart var undrabarn. Hann byrjaði að spila tónlist aðeins þriggja ára gamall og að semja tónverk fimm ára. Talið er að hann hafi verið sjö eða átta ára gamall þegar hann samdi verkin sem kynnt voru í dag.

Fleiri en tíu þúsund í Fjölskyldugarðinum

Mikill mannfjöldi sótti Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í dag en þar var sannkölluð rjómablíða. Meðal þeirra sem stigu á stokk voru Skoppa og Skrítla, Glanni glæpur úr Latabæ og hljómsveitin Stuðmenn.

Falsaður Kjarval í umferð

Falsaðir tvöþúsund krónaseðlar hafa fundist í nokkrum verslunum á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan rannsakar málið.

Smábátaeigendur efast um lögmæti tvöföldunar vaxta

Smábátaeigendur, sem vilja láta frysta lán sín áfram, eru ósáttir við að frystingin hafi það í för með sér að vextir lánanna hækki um allt að hundrað prósent og að myntbreyting verði gerð á lánunum. Framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda efast um lögmæti aðgerðanna.

Segir mörg félög á lánalistanum ekkert til saka unnið

Bankastjóri Nýja Kaupþings segir brýnt að vernda trúnaðarupplýsingar um viðskiptavini bankans og því hafi verið krafist lögbanns á birtingu gagna um lánafyrirgreiðslur til þeirra. Formaður Blaðamannafélagsins segir ljóst að breyta þurfi lögum um bankaleynd hyggist bankinn beita þessum rökum áfram.

Slapp furðuvel eftir mótorhjólaslys

Mótorhjólamaður sem fór út af Þingvallaveginum um þrjú leytið í dag virðist hafa sloppið furðuvel, að því er vakthafandi læknir á slysadeild segir.

Laminn illa í Eyjum

24 ára gamall þjóðhátíðargestur hefur kært líkamsárás til lögreglu. Hann bar skarðan hlut frá borði eftir átök við annan mann í morgun og hlaut brotna tönn, nefbrot og skurð í andliti.

Sjá næstu 50 fréttir