Innlent

Átta kálfar drápust í árekstri

Sjö kálfar drápust samstundis og dýralæknir þurfti að aflífa einn til viðbótar, eftir að amerískum jeppa af stærstu gerð var ekið inn í hóp kálfa, sem sloppið höfðu úr girðingu við þjóveginn, rétt austan við Selfoss laust eftir miðnætti.

Tveir menn voru í jeppanum, og sakaði þá ekki. Talið er að alls hafi 26 kálfar sloppið út úr girðingunni og hófu eigendur og lögreglan þegar að smala þeim, sem eftir lifðu saman, en sex eru enn ófundnir. Lögreglan segir að ekki sé hraðakstri um að kenna, en myrkur hafi verið skollið á og skygni hafi verið slæmt vegna rigningar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×