Minni umferð en aðrar helgar 5. ágúst 2009 02:15
Umferð úr höfuðborginni var minni um verslunarmannahelgina en flestar aðrar helgar í sumar, samkvæmt tölum frá Vegagerðinni. Vegagerðin hefur tekið saman tölur um umferð frá höfuðborgarsvæðinu frá því síðustu helgina í júní, og var umferð um verslunarmannahelgina minni en um meðalhelgi. Umferðin var mest síðustu helgina í júní, en minnst síðustu helgina í júlí. „Mýtan um verslunarmannahelgina virðist ekki standast. Hún virðist ekki vera stærsta ferðahelgin ef marka má þessar tölur," segir Friðleifur Ingi Brynjarsson, verkefnastjóri hjá Vegagerðinni. Það sé í það minnsta tilfellið í ár frá höfuðborgarsvæðinu. Svo geti þetta verið misjafnt úti á landi. Umferðin var mæld á fimm stöðum nálægt höfuð-borgarsvæðinu. Til austurs var mælt á þremur stöðum, alls staðar var töluvert meiri umferð en um sömu helgi í fyrra. Undir Ingólfsfjalli jókst umferðin um tæp tíu prósent milli ára, um Hellisheiði um rúm ellefu prósent og um Sandskeið um tæp sjö prósent. Til norðurs var mælt á tveimur stöðum og var umferðin nokkru minni á þeim báðum en á sama tíma í fyrra. Mælt var á Árvöllum á Kjalarnesi, þar sem umferðin var rúmum sex prósentum minni, og um Hvalfjarðargöng, þar sem umferðin minnkaði um níu prósent milli ára. - þeb
Mest lesið Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Fleiri fréttir Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Sjá meira