Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Orra dæmd 300 þúsund frá 365-miðlum Orra Haukssyni voru dæmdar 300 þúsund króna skaðabætur frá 365-miðlum ehf. í héraðsdómi Reykjavíkur í dag vegna ummæla sem birtust um hann í DV þann 29. september 2006. DV var þá í eigu 365-miðla. Auk þess voru ummæli um einkalíf Orra dæmd dauð og ómerk. 2.7.2009 12:22
Atli Gíslason: Kannski betra að lýsa yfir þjóðargjaldþroti Geti Íslendingar ekki staðið undir erlendum skuldbindingum blasir við þjóðargjaldþrot. Þetta er mat stjórnarþingmannsins Atla Gíslasonar. Hann segist ekki munu samþykkja Icesave samninginn reynist það rétt að erlendar skuldir nemi 250 prósentum af landsframleiðslu. 2.7.2009 12:13
Málningu slett á hús Hannesar og Björgólfs Rauðri málningu var slett á heimili þeirra Björgólfs Guðmundssonar og Hannesar Smárasonar í nótt eða í morgun. Heimili þeirra eru við Vesturbrún annars vegar og Fjölnisveg hinsvegar. Þegar myndatökumann fréttastofu bar að garði var verið að þrífa málninguna af húsunum. Að sögn lögreglu er ekki vitað hverjir standi á bakvið sletturnar og er málið því í rannsókn. 2.7.2009 12:03
Steingrímur: Samkomulagið hluti af herkostnaðinum „Þetta er hluti af herkostnaðinum sem við sitjum uppi með," sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, um ríkisábyrgð vegna Icesave-samkomulagsins á Alþingi í dag. Ráðherrann sagði skítt að Íslendingar sitji uppi með afleiðingar andvaraleysis stjórnvalda undanfarinna ára. Þá fullyrti Steingrímur að milljarðarnir sem fengust fyrir Landsbankann þegar hann var einkavæddur á sínum tími hafi verið þeir dýrustu í sögu Íslands. 2.7.2009 11:49
Vildu fresta umræðu um Icesave Pétur H. Blöndal og Birgir Ármansson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, fóru fram á það við Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, í dag að öllum umræðum um Icesave-samkomulagið yrði fram frestað fram yfir helgi. Hún varð ekki við þeirri bón. 2.7.2009 11:37
Ráðherra hugnast þjóðaratkvæði um Icesave Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, segist vel geta sætt sig við að kosið verði um Icesave-samkomulagið í þjóðaratkvæðagreiðslu. 2.7.2009 11:07
Höldum okkur á hægri um helgina Mikil umferðarteppa skapaðist á Suðurlandsvegi um síðustu helgi, sem leiddi til þess að langar bílaraðir mynduðust. Teppan skapaðist helst þar sem tvær akreinar verða að einni við lok 2+1 kaflans á veginum, að því er kemur fram í tilkynningu frá Umferðarstofu. 2.7.2009 10:55
Breytingar í utanríkisráðuneytinu Skrifstofa upplýsingamála var sett á laggirnar í utanríkisráðuneytinu þann 8. júní í kjölfar skipulagsbreytinga. Kristín A. Árnadóttir, sem áður stýrði sameinaðri skrifstofu utanríkisráðherra og -ráðuneytisstjóra, hefur nú verið færð til í starfi og stýrir hinni nýju skrifstofu. Engin tilkynning var gefin út af hálfu ráðuneytisins um þessar skipulagsbreytingar. 2.7.2009 10:45
Ákvörðun peningastefnunefndar mikil vonbrigði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans að halda stýrivöxtum óbreyttum í 12%, og greint var frá í dag, vera mikil vonbrigði. Þetta kom fram í umræðum á Alþingi í morgun. 2.7.2009 10:34
Bilun hjá Seðlabanka og Kauphöll Bilun varð í ytri vef Seðlabankans í nótt og lá hann niðri þar til í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá þjónustuaðila vefsins, EJS, er þó búið að lagfæra bilunina. 2.7.2009 09:34
Icesave á dagskrá þingsins í dag Alþingi kemur til með að taka fyrstu umræðu um ríkisábyrgð á lántöku tryggingarsjóðs innistæðueigenda á þingfundi klukkan 10:30 í dag. Fer þar fram umræða um það hvort þingið „samþykki" Icesave samninginn. 2.7.2009 09:14
Brennið þið kamrar Slökkviliðið þurfti að sinna útköllum vegna skemmdarverka í nótt en eldur var borinn að ferðakömrum við Fellaskóla. Kamrarnir eru úr plasti og myndaðist mikill reykur í brunanum og var mikið hringt í Neyðarlínuna vegna þess. 2.7.2009 07:10
Innbrot í bíla og skóla Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og margt fólk á ferðinni eins og varðstjóri orðar það. Nokkuð var um innbrot en brotist var inn í tvo bíla auk þess sem þjófar brutu sér leið inn í Breiðholtsskóla. 2.7.2009 07:06
Ólafur Stefánsson stofnar barnaskóla „Draumurinn er að byrja í haust,“ segir Edda Huld Sigurðardóttir sem ásamt Ólafi Stefánssyni handboltamanni, Þorvaldi Þorsteinssyni listamanni og Jennýju Guðrúnu Jónsdóttur kennara ætlar að stofna nýjan grunnskóla í Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg. 2.7.2009 06:00
Mannekla heyrir sögunni til Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) gerði nýverið skyndikönnun varðandi manneklu í hjúkrun og kom í ljós að um 99,98 prósent stöðugilda hjúkrunarfræðinga eru nú setin. Svör komu frá hjúkrunarstjórnendum 50 stofnana, sem ráða yfir um 65 prósentum stöðugilda hjúkrunarfræðinga í landinu, eða rúmum 1.645 stöðugildum. Sambærileg könnun árið 2007 sýndi allt aðra mynd og var mannekla þá veruleg. 2.7.2009 05:45
Kostnaður falli á þrotabúin Verið er að kanna hvort hægt verði að fella kostnað við skilanefndir fjármálafyrirtækja á þrotabúin, í stað þess að hluti kostnaðarins falli á Fjármálaeftirlitið (FME), segir Gunnar Þ. Andersen, forstjóri eftirlitsins. 2.7.2009 05:15
Þurfti stífkrampasprautu og penisilín Tveir kettir réðust á Jóngeir Þórisson, eiganda skiltagerðarinnar Pamfíls, þegar hann var á gangi með smáhundinn sinn, fimm mánaða gamla hvolpinn Polla, við Hjallaveg fyrir ofan Kleppsveg um kvöldmatarleytið á þriðjudaginn í síðustu viku. 2.7.2009 05:15
Villa fella ályktun ríkisstjórnar „Við erum að glíma við gríðarstór verkefni, endurreisn fjármálakerfisins, skuldir heimila og fyrirtækja og þar fram eftir götunum, og það er mín skoðun að aðildarumsókn að Evrópusambandinu tengist ekki þeirri vegferð,“ segir Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Vinstri grænna. Í þinginu í gær hvatti Ásmundur til þess að þingsályktunartillaga ríkisstjórnarinnar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu yrði felld. 2.7.2009 05:15
Ferðuðust með ljósmyndir Íslandsdeild Amnesty International mótmælti í gær hjá nokkrum starfsstöðvum Shell í borginni í tilefni nýútkominnar skýrslu samtakanna. Í skýrslunni eru birtar niðurstöður rannsóknar á áhrifum olíuvinnslu á óseyrum Nígerfljóts í Nígeríu á mannréttindi íbúa svæðisins. 2.7.2009 05:15
115 milljarðar hvíla á bílum í erlendri mynt Efnahagsmál Íslendingar skulda 115 milljarða króna í erlend bílalán. Ríflega fjörutíu þúsund manns eru með bílalán í erlendri mynt, að hluta eða að fullu. Gera má ráð fyrir að um 4.400 manns séu í vandræðum með greiðslubyrði af bílalánum sínum, ef marka má orð Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra á Alþingi í gær. 2.7.2009 05:00
Kannast ekki við áhuga á Vaðlaheiði Kristján Möller samgönguráðherra segir það einfaldlega rangt að búið sé að forgangsraða samgöngumannvirkjum þannig að Vaðlaheiðargöng verði efst í forgangsröðinni. 2.7.2009 04:30
Stjórnarflokkar tapa miklu fylgi Ríkisstjórnarflokkarnir tveir fengju samtals aðeins 43 prósent atkvæða væri kosið til alþingiskosninga nú, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallup. Sjálfstæðisflokkurinn er aftur orðinn stærsti flokkurinn með 28 prósenta fylgi miðað við 24 prósent í kosningunum í apríl. Samfylkingin tapar 5 prósentustigum og fengi 25 prósent atkvæða. Vinstri grænir tapa sömuleiðis og mælast með 18 prósent miðað við 22 prósent í kosningunum. 2.7.2009 04:30
Maður myrtur við Kristjaníu Maður af írönskum uppruna var skotinn til bana í bíl sínum við Kristjaníusvæðið í Kaupmannahöfn í gærdag. Ekki er vitað hvort morðið tengist hörðum átökum innflytjendaklíka og Vítisengla, sem staðið hafa yfir síðan í ágúst á síðasta ári. 2.7.2009 04:30
Gjaldþrot standa oft yfir áratugum saman Eigendur fyrirtækja sem verða gjaldþrota hafa þann möguleika að stofna nýtt fyrirtæki á rústum þess gamla með nýrri kennitölu. Einstaklingar geta það trauðla og kunna að eiga í gjaldþroti svo áratugum skiptir. 2.7.2009 04:15
Herjólfur telst ekki þjóðvegur Eimskip má innheimta gjald af ferjusiglingum með Herjólfi, enda telst Herjólfur ekki þjóðvegur. Þetta er niðurstaða umboðsmanns Alþingis, en kvartað hafði verið til hans vegna gjaldtökunnar í ferjuna og nýlegrar hækkun á gjaldskránni. 2.7.2009 04:00
Framsókn situr enn í því græna Framsóknarflokkurinn fundar enn í græna herberginu svokallaða, þrátt fyrir að hafa átt að láta það eftir þingflokki VG í ljósi kosningaúrslita. VG þarf stærra herbergi en þingflokkur Framsóknar hefur minnkað nokkuð. Fram kom í fjölmiðlum í maí að Framsókn vildi ekki víkja úr herberginu og mun þetta vera tilfinningamál fyrir flokkinn, sem hefur verið í herberginu í áratugi. 2.7.2009 03:30
Verið 22 daga erlendis á árinu Forseti Íslands hefur alls verið 22 daga erlendis fyrstu sex mánuði ársins. Á sama tímabili á síðasta ári var forsetinn tvöfalt fleiri daga erlendis, og nærri þrefalt fleiri á sama tímabili árið 2007. 2.7.2009 03:30
Fleiri slasast alvarlega í umferðinni Alvarlega slösuðum í umferðarslysum hefur fjölgað töluvert á undanförnum árum. Þannig slösuðust 200 alvarlega í umferðinni í fyrra en aðeins 115 árið 2004. Hins vegar hefur látnum fækkað til muna og létust tólf á síðasta ári samanborið við 31 á árinu 2006. Þetta kemur fram í skýrslu um umferðaröryggisáætlun stjórnvalda árið 2008 sem var kynnt á blaðamannafundi á þriðjudag. Eitt af markmiðum áætlunarinnar er að látnum og alvarlega slösuðum fækki að jafnaði um fimm prósent á ári. Það hefur ekki tekist. 2.7.2009 03:00
Hringur hlaupinn í nafni friðar Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra setti Friðarhlaupið á Íslandi í Laugardal í gærmorgun. Friðarhlaupið er alþjóðlegt kyndilboðhlaup en tilgangur þess er að efla frið, vináttu og skilning. 2.7.2009 02:45
Tollar á landbúnaðarvörur lækki Landbúnaðarráðuneytið hefur nú auglýst innflutningskvóta á landbúnaðarvörur eftir að Samtök verslunar og þjónustu mótmæltu ákvörðun ráðuneytisins frá 19. júní um að auglýsa ekki kvótana til umsóknar. 2.7.2009 02:30
Sautján ára ferli í Kína Hörður Svavarsson, formaður Íslenskrar ættleiðingar, segir ættleiðingum hér hafa fækkað meira en í nágrannalöndunum. Úrræði séu fjölbreyttari ytra. 2.7.2009 02:30
Diana Ross fengi forræðið Michael Jackson vildi að söngkonan Diana Ross fengi forræði yfir þremur börnum sínum að sér látnum ef móðir söngvarans, Katherine, gæti af einhverjum orsökum ekki tekið hlutverkið að sér. Þetta kemur fram í erfðaskrá Jacksons sem var birt í gær. 2.7.2009 02:00
Skúta strandaði langt fyrir innan viðmiðunarbauju Skúta strandaði í kvöld á Engeyjarsundi. Skútan er í eigu Brokeyjar, Siglingafélags Reykjavíkur. Vanur maður sigldi skútunni en athygli vekur að hún er langt fyrir innan bauju sem siglingamenn miða sig við allajafna til að lenda ekki í grynningum. 1.7.2009 21:09
ASÍ spáir 9-10% atvinnuleysi næstu misseri Hagdeild Alþýðusambands Íslands hefur sent frá sér nýja hagspá um horfur í efnhagsmálum til ársins 2012. Hagdeildin spáir ríflega 10% samdrætti í landsframleiðslu í ár og áframhaldandi samdrætti á fyrri hluta næsta árs. Botninum verði hinsvegar náð á öðrum ársfjórðungi ársins 2010. Þá er útlit fyrir að atvinnuleysi verði milli 9-10% næstu misseri. 1.7.2009 18:08
Bróðir menntamálaráðherra fær hvatningarverðlaun Ármann Jakobsson, dósent í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands, hlaut hvatningaverðlaun Vísinda- og tæknisráðs sem afhent var á Rannsóknarþingi í dag. 1.7.2009 16:50
Rændi laskað heimili daginn eftir Suðurlandsskjálftann Maður var dæmdur í mánaðarlangt fangelsi fyrir að ræna heimili í Hveragerði daginn eftir Suðurlandsskjálftann í maí á síðasta ári. 1.7.2009 16:04
Áframhaldandi gæsluvarðhald í dularfulla fíkniefnamálinu Karl á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 17. júlí að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. 1.7.2009 15:34
Yfir 40 þúsund manns með erlend bílalán Alls eru 40.414 manns með bílalán í erlendri mynt að hluta eða í heild þar sem bifreið viðkomandi er sett að veði. Þetta kom fram í svari Gylfa Magnússonar, viðskiptaráðherra, við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar, þingmanns Framsóknar, á Alþingi rétt í þessu. 1.7.2009 14:31
Gagnrýnir langt gæsluvarðhald harðlega „Mér fannst ekki tilefni til þess að halda honum svona lengi í haldi," segir Brynjar Níelsson lögmaður Sigurðar Hilmars Ólasonar sem var handtekinn og hnepptur í gæsluvarðhald vegna gruns um peningaþvætti og aðild að risa fíkniefnamáli í Hollandi. 1.7.2009 14:14
Gylfi Magnússon og Sigmundur Davíð í Reykjavík síðdegis Sigmundur Davið Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, og Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, ræða Icesave málin í útvarpsþættinum Reykjavík síðegis á Bylgjunni núna klukkan hálf sex. 1.7.2009 17:11
TF-SIF lent TF-SIF, ný eftirlits- og björgunarflugvél Landhelgisgæslunnar lenti á Reykjavíkurflugvelli um klukkan þrjú í dag. 1.7.2009 15:41
Sextíu og sex ára vél aftur í farþegaflug Þristavinafélagið ætlar að breyta áburðardreifivélinni Páli Sveinssyni aftur í farþegaflugvél. 1.7.2009 16:42
Lífeyrissjóðir hafna hugmyndum Sjálfstæðisflokksins Landssamtök lífeyrissjóða eru andvíg hugmyndum um að inngreiðslur í lífeyrissjóði verði skattlagðar í stað þess að skatturinn sé innheimtur við greiðslu lífeyris eins og viðgengist hefur frá upphafi. 1.7.2009 15:11
Icesave: 400 milljörðum hærri ef ríkisstjórnin hefði ráðið fyrir áratug Ef Jóhanna Sigurðardóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Ögmundur Jónasson hefðu fengið að ráða fyrir tæpum 10 árum síðan væri skuld Íslendinga vegna Icesave líklega um 400 milljörðum krónum hærri en nú er. Í dag eru þau örugglega fegin því að tillaga þeirra var felld á Alþingi. Þetta kemur fram á heimasíðu Kristins H. Gunnarssonar, fyrrum Alþingismanns. 1.7.2009 14:25
Beit lögreglu í löngutöng Rétt rúmlega tvítugur maður var dæmdur fyrir að bíta lögregluþjón í löngutöng á vinstri hönd. Maðurinn beit lögreglumanninn í apríl á síðasta ári á Hverfisgötunni í miðborg Reykjavíkur. 1.7.2009 13:05