Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kærir RÚV til lögreglunnar Ástþór Magnússon hefur kært fréttastofu og yfirstjórn Ríkisútvarpsins til lögreglunnar fyrir kosningaspjöll gegn Lýðræðishreyfingunni, stjórnmálaflokki Ástþórs. Segir Ástþór að RÚV hafi logið um og afskræmt svar Lýðræðishreyfingarinnar með vísvitandi og meiðandi hætti þegar flutt var frétt undir fyrirsögninni „Skattahækkanir líklegar". 5.4.2009 16:49
Harðar deilur um hagsmunatengsl í Framsóknarflokknum Hart var deilt um tengsl Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar við fyrirtækið Kögun í þættinum Sprengisandi í morgun. Þar ræddu þau Sigmundur Davíð, Tryggvi Þór Herbertsson og Ólína Þorvarðardóttir um 20% flata niðurfellingu á skuldum. Ólína sagði að tortryggni gætti í samfélaginu vegna 5.4.2009 16:25
Árás í Lækjargötu: Maðurinn úr öndunarvél Maðurinn sem ráðist var á í Lækjargötu á fimmta tímanum í nótt er kominn úr öndunarvél en er ennþá til eftirlits á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. 5.4.2009 13:43
Eignaumsýslufélag gæti skaðað íslenskt atvinnulíf Stofnun sérstaks eignaumsýslufélags á vegum ríkisins gæti skaðað íslenskt atvinnulíf að mati aðila vinnumarkaðarins. Samkvæmt frumvarpi fjármálaráðherra er félaginu ætlað að kaupa og endurskipuleggja þjóðhagslega mikilvæg fyriræki sem bankarnir hafa tekið yfir vegna greiðsluerfiðleika. Sjálfstæðismenn óttast að þetta bjóði upp á spillingu. 5.4.2009 12:02
Par braust inn í Þelamerkurskóla Lögreglan á Akureyri handtók rétt fyrir klukkan fimm í nótt par sem hafði brotist inn í Þelamerkurskóla. Karlinn er á fertugsaldri en konan á þrítugsaldri en þau voru bæði í annarlegu ástandi að sögn lögreglu og verða yfirheyrð síðar í dag. Það voru starfsmenn skólans sem gerðu lögreglunni viðvart eftir að þeir urður varir við mannaferðir. 5.4.2009 09:52
Haldið sofandi í öndunarvél eftir líkamsárás Maður á þrítugsaldri liggur sofandi í öndunarvél eftir að ráðist var á hann í Lækjargötunni á fimmta tímanum í nótt. 5.4.2009 09:07
Vill berjast fyrir aðildarsamningi við ESB „Ég ákvað að taka sæti á lista Samfylkingarinnar til þess að berjast fyrir aðildarsamningi við Evrópusambandið," segir Baldur Þórhallsson. Baldur skipar sjötta sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður. Hann hefur hingað til verið betur þekktur sem fræðimaður á sviði stjórnmála fremur en þátttakandi. 4.4.2009 19:00
TF - EIR aðstoðar skíðamann Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-EIR var kölluð út til að aðstoða mann í gönguskíðahópi sem fékk aðsvif og sjóntruflanir. Hópurinn var 4.4.2009 18:49
Drekinn þarf 70-80 dollara olíuverð Olíuverð þyrfti að vera milli sjötíu og áttatíu dollarar tunnan og mikil olía að finnast til að menn ráðist í uppbyggingu á Drekasvæðinu, að mati sérfræðinga í Noregi. Minnst átta ár eru í að olíuvinnsla geti verið komin þar á fullt. 4.4.2009 18:51
Kristbjörg komin í lag Kristbjörg HF-177 er farin að draga net að nýju, en eins og fréttastofa greindi frá fyrr í dag varð skipið aflvana og voru því þyrlur Landhelgisgæslunnar og bátur frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu send til aðstoðar. Fimmtán manns eru í skipinu. 4.4.2009 16:55
Össuri líst vel á nýjan framkvæmdastjóra NATO Barack Obama, Bandaríkjaforseti, vill koma til Íslands. Þetta sagði hann í samtali við Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra en þeir eru báðir staddir á leiðtogafundi NATO í Strassborg. Össur segir að Obama verði boðið formlega í heimsókn. 4.4.2009 15:44
Kosið verði til stjórnlagaþings og sveitastjórna á sama tíma Gert er ráð fyrir að kosningar til stjórnlagaþings fari fram samhliða sveitastjórnarkosningum 2010. Þingið starfi frá 17 júní 2010 til 17 júní 2011. 4.4.2009 15:00
Viðamikil björgunaraðgerð vegna aflvana báts Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Oddur V. Gíslason úr Grindavík, var kallað út rétt eftir klukkan eitt vegna aflvana skips sem rak í átt að Krísuvíkurbjargi. Um fimm mínútum síðar lét björgunarskipið úr höfn 4.4.2009 14:01
Kenna atvinnulausum iðnaðarmönnum að varðveita gömul hús Reykjavíkurborg mun leita samstarfs við ríkisvaldið, Vinnumálastofnun, Samtök iðnaðarins og aðra vegna sérstaks atvinnuátaksverkefnis til að hefja uppbyggingu og endurgerð sögufrægra eldri húsa í Reykjavík. 4.4.2009 13:14
Blaðamannafélagið undrast afstöðu FME gagnvart blaðamönnum Blaðamannafélag Íslands undrast að Fjármálaeftirlitið skuli telja það til forgangsverkefna að beina spjótum sínum að blaðamönnum sem eru að reyna að varpa ljósi á bankahrunið. Þetta kemur fram í ályktun sem félagið hefur sent frá sér. 4.4.2009 12:38
Þurfa að brúa allt að 55 milljarða gat Ríkisstjórnin þarf brúa 35 til 55 milljarða króna fjárlagagat á næsta ári til að standast áætlanir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Fjármálaráðherra boðar skattahækkanir og niðurskurð. 4.4.2009 12:30
Háskólinn þarf meira fjármagn fyrir sumarnám Háskóli Íslands getur ekki orðið við óskum stúdenta um sumarnám að verulegu leyti nema til komi auknar fjárveitingar til Háskólans. Málið var rætt á fundi háskólaráðs á fimmtudag og þar lýstu fulltrúar í háskólaráði ríkum vilja til þess að finna farsæla og skjóta lausn á málinu. 4.4.2009 11:04
Breska skýrslan gæti hjálpað í samningum vegna Icesave „Það er gott ef Bretar játa upp á sig skömmina að einhverju leyti. Jafnvel þótt seint sé er það betra en ekkert," segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um skýrslu breskrar þingnefndar sem kynnt var í gær. 4.4.2009 10:25
Opið í Hlíðarfjalli í dag Skíðasvæði Akureyringa í Hlíðarfjalli verður opnað nú klukkan tíu og þar verður hægt að renna sér til klukkan fjögur í dag. 4.4.2009 10:07
Eldur í plasthúsgögnum í Hafnarfirði Slökkviliðið var kallað að húsi við Austurgötu í Hafnarfirði i gær þegar eldur kviknaði í plasthúsgögnum við skúr sem þar stendur. Að sögn slökkviliðsmanna tók skamma stund að slökkva eldinn. Lítið tjón hlaust af. Lögreglan segir að nóttin hafi verið erilsöm í gær. Tilkynnt hafi verið um nokkrar líkamsárásir í miðborginni en enginn hafi meiðst alvarlega í þeim. 4.4.2009 09:56
Enn karpað um stjórnskipunarfrumvarp Umræður um stjórnskipunarlög hafa nú staðið yfir í tvo daga á Alþingi. Tuttugu og tveir voru enn á mælendaskrá þegar þingfundi var frestað klukkan eitt í nótt. 4.4.2009 09:49
Darling rangtúlkaði orð Árna segir bresk þingnefnd Beiting hryðjuverkalaga gegn íslenskum fyrirtækjum er mjög gagnrýniverð aðgerð, segir rannsóknarnefnd breska þingsins. Alistair Darling er sagður hafa rangtúlkað orð Árna Mathiesen í frægu símtali 7. október. 4.4.2009 08:00
Sakar skilanefndina um að vinna fyrir MP Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri Kaupþings segir skilanefnd SPRON starfa eins og markaðsdeild fyrir MP Banka. Fyrrverandi viðskiptavinur fékk tölvupóst frá SPRON með hvatningu um að skrá sig í viðskipti á vefsíðu 4.4.2009 07:00
Funduðu án foreldra fórnarlambsins Skólastjóri Hamraskóla í Grafarvogi fundaði í gær með foreldrum bekkjarsystkina drengs sem orðið hefur fyrir alvarlegu einelti í skólanum frá áramótum. Á fundinum var einnig yfirkennari skólans og fulltrúi menntasviðs Reykjavíkurborgar. Foreldrum drengsins var hins vegar ekki boðið á fundinn. Faðir drengsins, sem ekki vill láta nafns síns getið sonar síns vegna, segir að sér þyki afar undarlegt að hafa ekki fengið að sitja fundinn. Hann hafi rætt við fulltrúa menntasviðs, sem var á fundinum, og hann hafi tekið í sama streng. 4.4.2009 06:45
Léttskýjað og létt lund um páska Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur segir von á hæglátu páskaveðri en þó ekki sérlega hlýju þar sem við siglum í næstu viku í kaldara loft eftir að hafa notið vorviðrisdaga. 4.4.2009 06:30
Engir enn sótt um aðlögun Enn hefur enginn sótt um greiðsluaðlögun til Héraðsdóms Reykjavíkur á grundvelli nýrra laga sem Alþingi samþykkti á þriðjudag. Eins og komið hefur fram telur dómsmálaráðuneytið að umsækjendur um greiðsluaðlögun byggða á þessum tilteknum lögum verði á bilinu 100 til 200. 4.4.2009 06:30
Sleppa við að taka samræmdu prófin Samræmd próf verða ekki haldin í tíunda bekk í vor og sleppur því árgangurinn sem nú er í tíunda bekk alfarið við samræmd próf. Framhaldsskólarnir hafa ekki lengur samræmdar einkunnir til að fara eftir við val inn í skólana. 4.4.2009 06:30
Félög mega kaupa einbýlishúsalóðir Þrátt fyrir að nýjar reglur um lóðaúthlutanir séu ekki enn tilbúnar verður komið til móts við lóðaumsækjendur í Reykjavík með gildistöku nokkurra undantekningaákvæða frá núverandi úthlutunarreglum. 4.4.2009 06:15
Krónan rúin trausti Viðskiptaráð segir gjaldeyrishöftin stefna þjóðinni inn á braut einangrunar. Sársaukafullt getur reynst að brjótast undan þeim, segir framkvæmdastjórinn. Ráðið telur haftastefnuna ekki duga til að koma í veg fyrir fjármagnsflótta. 4.4.2009 06:00
Byggingarlóð fyrir landskika Hjón sem eiga 1.750 fermetra spildu í Úlfarsárdal fá henni skipt í byggingarlóð fyrir einbýlishús. Spilda hjónanna er nokkuð austan við íbúðarbyggðina sem Reykjavíkurborg hefur skipulagt og geta þau því ekki reist einbýlishús á sinni lóð. 4.4.2009 06:00
Kynning með plokkfisksveislu „Það ber að hneigja sig og beygja fyrir fyrirtækjum sem gleyma ekki mikilvægi menningarstarfsemi á tímum sem þessum,“ segir Jón Þór Þorleifsson, skipuleggjandi tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður sem verður haldin á Ísafirði í sjötta sinn um næstu helgi. 4.4.2009 05:30
Tveir hafa sagt sig úr stjórninni Veruleg uppstokkun á sér stað á stjórn Íslenskrar ættleiðingar þessa dagana. Formaður félagsins náði ekki endurkjöri á aðalfundi sem haldinn var nýlega. Þá hafa tveir stjórnarmenn sagt sig úr stjórn og öllum trúnaðarstörfum fyrir félagið. Annar stjórnarmaðurinn segir af sér þar sem hún sér sér ekki fært að starfa innan hinnar nýju stjórnar, samkvæmt fundargerð félagsins, og telur sig ekki njóta trausts félagsmanna, hinn segir af sér af persónulegum ástæðum. 4.4.2009 05:00
Langholtskirkju gefnar 17 milljónir króna Langholtssöfnuði verða gefnar eftir 16,7 milljónir af 49,8 milljóna eftirstöðvum skuldar við Reykjavíkurborg. Borgarráð staðfesti samkomulag þess efnis á fimmtudaginn. 4.4.2009 05:00
Samræmd úrræði í greiðsluerfiðleikum Hætt hefur verið við að koma fasteignaveðlánum í skjól hjá Íbúðalánasjóði. Í staðinn er búið að samræma úrræði fyrir fólk í greiðsluerfiðleikum. Unnið er að samræmingu vegna myntkörfulána og verður hún kynnt á næstu dögum. 4.4.2009 04:45
Gæludýrin fá nýtt heimili Í Garðheimum geta dýravinir orðið sér úti um gæludýr um helgina en Dýrahjálp Íslands stendur þar fyrir Ættleiðingardögum. 4.4.2009 04:45
Fáir fengu þúsundir milljarða Útlán til hundrað stærstu skuldara föllnu viðskiptabankanna var um helmingur heildarútlána þeirra. Því er ljóst að um 300 aðilar hafa fengið að láni þúsundir milljarða í því ljósi að heildareignir bankanna, sem að stórum hluta eru útlán, námu tífaldri landsframleiðslu þegar mest var. Rannsóknarnefnd Alþingis vinnur nú að frekari greiningu á útlánum bankanna og þróun þessara lána með tilliti til trygginga og í hvað verið var að lána. 4.4.2009 04:30
Málningu skvett á hús Hannesar Rauðri málningu var í gær skvett á hús Hannesar Smárasonar á Fjölnisvegi. Sjálfur var Hannes ekki heima þegar spjöllin voru unnin en starfslið hans kallaði skjótt til málara til að lagfæra skemmdirnar. 4.4.2009 04:30
LÍÚ mun bregðast við með aðgerðum Framkvæmdastjóri LÍÚ trúir ekki að stjórnarflokkarnir láti verða af hugmyndum sínum um afturköllun aflaheimilda. Geri þeir það grípi útvegsmenn til aðgerða. Samfylkingin hefur ekki útfært hugmyndir sínar en vill ná sátt um kerfið. 4.4.2009 04:30
700 fleiri konur á kjörskránni Á kjörskrá vegna alþingiskosninganna í apríl eru 227.896 kjósendur, þar af eru konur 114.295 en karlar 113.601. Konur eru því 694 eða 0,6 prósentum fleiri en karlar, að því er fram kemur í tölum frá Hagstofunni. Í kosningunum 2007 voru 221.330 á kjörskrá. Fjölgunin nemur 3,0 prósentum. 4.4.2009 04:15
Brennuvargarnir í Eyjum játuðu Þrír menn sem hafa verið í haldi lögreglunnar í Vestmannaeyjum vegna rútubruna í fyrrinótt hafa allir játað aðild að íkveikjunni. Einn mannanna er í Slökkviliði Vestmannaeyja og annar hefur sótt um inngöngu þar. Frá þessu var greint í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 3.4.2009 22:34
Nagladekk óleyfileg eftir 15. apríl Nagladekk eru óleyfileg undir bifreiðum eftir 15. apríl 2009. Nagladekk spæna upp malbik hundrað sinnum hraðar en önnur dekk og eru áhrifamikill valdur að svifryksmengun í Reykjavík, að fram kemur í tilkynningu frá Umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar. 3.4.2009 22:13
21 sjálfstæðismaður vill ræða stjórnarskrárfrumvarpið Frumvarp um breytingar á stjórnarskránni er enn til umræðu á Alþingi en þingfundur hófst klukkan 11 í morgun. Málið var rætt fram yfir miðnætti í gær og lauk þingfundi ekki fyrir enn á þriðja tímanum í nótt. 21 sjálfstæðismaður auk Kristins H. Gunnarssonar eru nú á mælendaskrá og bíða þess að taka til máls. 3.4.2009 21:35
Ástþór: Rifist um plástra sem passa á meiddið „Ég verð að segja það í fyrsta lagi þá líður mér hérna eins og ég sé kominn á Borgarspítala og nýbúið sé að draga mig úr einhverjum rústum eftir stóran jarðskjálfta og hjúkkurnar á sjúkrastofunni eru að rífast um það um það hvaða plástrar passi á meiddið,“ sagði Ástþór Magnússon, talsmaður Lýðræðishreyfingarinnar. 3.4.2009 21:11
„Bíðið bara þangað til græningjarnir koma líka til Íslands“ Olíuútboð Íslendinga eykur þrýsting á ríkisstjórn Noregs að leyfa olíuleit á norska hluta Jan Mayen-svæðisins. Andstaða er innan norsku stjórnarflokkanna gegn nýjum vinnslusvæðum á norðurslóðum. 3.4.2009 19:30
300 aðilar fengur 4000 milljarða að láni Um 300 hundruð aðilar fengu yfir 4000 milljarða króna að láni hjá stóru bönkunum þremur. Lán til þessara aðila nema gervöllum skatttekjum ríkisins í meira en áratug. 3.4.2009 18:33