Fleiri fréttir

Telur ofbeldi að hjóla á mann

Ríkissaksóknari telur að sú túlkun héraðsdóms, að það að hjóla á mann vísvitandi teljist ekki endilega líkamsárás, sé í andstöðu við viðurkennd sjónarmið. Hann áfrýjar því sýknudómi um þetta til Hæstaréttar.

Ólíklegt að Finnar verði með

Ólíklegt er að finnskar orrustuþotur muni taka þátt í að sinna loftrýmiseftirliti yfir Íslandi. Að því er finnska dagblaðið Helsingin Sanomat hefur eftir heimildarmönnum í finnska stjórnarráðinu eru efnahagslegar, pólitískar og lagalegar hindranir fyrir slíkri þátttöku. Upp á henni var stungið í tillögum sem Thorvald Stoltenberg, fyrrverandi utanríkisráðherra Noregs, vann fyrir Norrænu ráðherranefndina og kynntar voru í febrúar.

Barnabarnið beið í bílnum

Talið er að þrjár konur hafi beðið í bíl fyrir utan hús eldri hjóna á Arnarnesinu á laugar-dagskvöld á meðan tveir karlmenn fóru inn og rændu fólkið með vopnavaldi. Ein kvennanna er barnabarn fólksins, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Hún hefur verið í óreglu.

Breytingum frestað til hausts

Samkomulag hefur náðst í kjaradeilu lögreglumanna og Lögreglu höfuðborgarsvæðisins. Fyrirhuguðum breytingum á vinnufyrirkomulagi lögreglumanna á vöktum hefur að mestu verið frestað til hausts.

Lögreglumenn náðu samkomulagi við Stefán

Lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu hafa náð sátt við Stefán Eiríksson, lögreglustjóra, vegna fyrirhugaðar breytingar á vaktafyrirkomulagi. Lögreglumenn fjölmenntu á fund vegna málsins sem stóð fram eftir kvöldi.

Tilkynnt á leiðinni á Bessastaði að hún fengi ekki fálkaorðuna

Carol Van Voorst, fráfarandi sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, var tilkynnt þegar hún var á leið á fund Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, á föstudaginn þar sem sæma átti hana heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu að ekkert yrði af orðuveitingunni. Fjallað var um málið í Kastljósi í kvöld og þar kom fram að sendiherrann hafi verið afar ósátt með uppákomuna. Mistök áttu sér stað hjá embætti forseta Íslands.

Ekki hægt að bólusetja fólk gegn svínaflensu

Ekki er hægt að bólusetja sig til að koma í veg fyrir að fá svínaflensu. Þegar er þó byrjað að þróa bóluefni en það getur tekið vikur og jafnvel mánuði. Íslendingar hafa tryggt sér ákveðinn forgagn að því lyfi þegar það verður til.

Rúmlega 27% strikuðu yfir nafn Guðlaugs Þórs

Um það bil 27% kjósenda Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður strikuðu yfir nafn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, oddvita flokksins í kjördæminu. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins og þar var því jafnframt haldið fram að allar líkur séu á því að Guðlaugur Þór færist niður um eitt sæti.

Guðlaugur Þór himinlifandi

Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, segist himinlifandi yfir niðurstöðu innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar, sem telur ekki tilefni til að taka út störf hans, þann tíma sem hann var stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur.

Þokast hefur í samkomulagsátt í Evrópumálum

Þokast hefur í samkomulagsátt milli stjórnarflokkanna í Evrópumálum. Leiðtogar þeirra lofa því ekki að nýr stjórnarsáttmáli verði til fyrir fyrsta maí, en að minnsta kosti verði um maístjórn að ræða.

Barnabarn hjónanna aðstoðaði Arnarnesræningjana

Tveir karlmenn sem rændu eldri hjón á Arnarnesi um helgina hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald fram í maí. Barnabarn hjónanna veitti ræningjunum upplýsingar sem leiddi til ránsins.

Engar breytingar - 1443 strikuðu yfir nafn Steinunnar Valdísar

Útstrikanir kjósenda í Reykjavíkurkjördæmi norður höfðu ekki áhrif á röð frambjóðenda, að sögn Erlu S. Árnadóttur formanns kjörstjórnar. Alls strikuðu 1443 kjósendur yfir nafn Samfylkingarkonunnar Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur. Samfylkingin fékk 11.568 atkvæði og fjóra þingmenn kjörna í kjördæminu og var Steinunn í fjórða sæti.

Fyrrum þingmaður verður skólastjóri

„Ég þekki býsna vel til í þessum geira og ég held að það sé ágætt að hefja endurhæfinguna þarna,“ segir Einar Már Sigurðarson, fyrrum þingmaður Samfylkingarinnar, en hann verður að öllum líkindum næsti skólastjóri Valsárskóla á Svalbarðseyri í Eyjafirði. Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps hefur ákveðið að ganga til samninga við þingmanninn fyrrverandi.

Vörubíll valt á Vesturlandsvegi - vegurinn lokaður

Vesturlandsvegur undir Hafnarfjalli er lokaður um óákveðin tíma eftir að vörubifreið valt á fimmta tímanum í dag við Hafnará. Ökumaður bifreiðarinnar mun ekki vera slasaður. Ekki fengust upplýsingar hjá lögreglu um tildrög slyssins.

Tveir Íslendingar rannsakaðir vegna gruns um svínaflensu

Tveir Íslendingar hafa verið rannsakaðir vegna gruns um að þeir hafi smitast af svínaflensu. Einstaklingarnir eru báðir nýkomnir frá Bandaríkjunum. Þetta kom fram á blaðamannafundi með Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra sem nú stendur yfir. Tekið var fram að ekki þykir líklegt að mennirnir séu smitaðir af svínaflensunni og er þeim ekki haldið í einangrun.

Lögreglumenn fjölmenna á fund

Fjöldi lögreglumanna er samankominn á fundi Lögreglufélags Reykjavíkur, sem haldinn er í Kiwanishúsinu að Engjateigi. Þar er rætt um fyrirhugaðar breytingar á vinnutíma sem eiga að taka gildi 1.maí, eftir því sem fram kemur á vef lögreglumanna.

Evrópumálin skýrast á morgun

Það ætti að skýrast á morgun hvort Samfylkingin og VG ná sameiginlegri niðurstöðu í Evrópumálum. Mikið er í húfi því að einstakir þingmenn Samfylkingarinnar hafa fullyrt að samkomulag um Evrópumálin sé forsenda fyrir áframhaldandi stjórnarsamstarfi.

Ekki mælt með ferðatakmörkunum vegna svínaflensunnar

Ekki hafa borist fréttir um alvarleg svínaflensutilvik annarsstaðar en í Mexíkó. Í Bandaríkjunum þar sem flest tilfelli hafa verið staðfest er um vægan sjúkdóm að ræða. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra.

Fórnarlömb á Arnarnesi: Rólegri eftir handtökurnar

„Ég er ótrúlega hress miðað við það sem á hefur gengið," segir kona á áttræðisaldri sem varð fyrir óhugnalegri árás á heimili sínu við Mávanes um helgina þegar fjórir einstaklingar tóku hana og eiginmann hennar til fanga á heimili þeirra. Búið er að handtaka þá sem tengdust málinu og hefur lögreglan farið fram á gæsluvarðhald yfir þeim. Íbúar í hverfinu eru óttaslegnir vegna fréttanna.

Gæsluvarðhalds krafist yfir Arnarnesárásarmönnum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu krefst gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir tveimur karlmönnum sem hafa játað á sig húsbrot og líkamsárás á eldri hjón á Arnarnesi. Mennirnir játuðu aðild sína að málinu í gær. Árásin var mjög gróf og var hjónunum meðal annars hótað lífláti. Þá var klippt á símasnúrur til að varna því að þau gætu hringt á hjálp.

Kolbrún Halldórsdóttir: Tilbúin að gegna ráðherraembætti áfram

Kolbrún Halldórsdóttir er tilbúin að gegna embætti umhverfisráðherra áfram en segir að það sé annarra en hennar að ákveða framtíð hennar í ráðherrastóli. Hún segir að vel megi vera að ummæli hennar um olíunýtingu á Drekasvæðinu hafi ráðið því að hún náði ekki kjöri á Alþingi í kosningunum á laugardag.

Með lyfjatöflur í leggöngunum

Tuttugu og sjö ára kona var dæmd í 75 daga fangelsi fyrir tilraun til þess að smygla fíkniefnum inn á Litla Hraun í desember á síðasta ári. Þá ók hún einnig undir áhrifum vímuefna að fangelsinu.

Þingmenn í tvöfaldri vinnu

Þingmennirnir Kristján Þór Júlíusson og Birkir Jón Jónsson starfa báðir sem sveitarstjórnarmenn auk þess sem þeir sinna þingmennsku. Kristján Þór situr fyrir Sjálfstæðisflokkinn í bæjarstjórn Akureyrar en Birkir Jón sinnir sveitastjórnarmálum í Snæfellsbæ auk þess sem hann er þingmaður. Þá voru sex sveitastjórnarmenn kosnir inn á þing nú á laugardaginn. Þar á meðal Svandís Svavarsdóttir, oddviti Vinstri grænna í Reykjavík.

Grunur um gasleka á Hverfisgötu

Hverfisgatan lokaðist um tíma í morgun þegar að lögregla og sjúkralið voru kölluð að húsi númer 49. Vegfarendur höfðu fundið gaslykt í nálægð við húsið og þótti rétt að kanna hvað ylli því. Að sögn lögreglu fannst engin skýring á gaslekanum en umferð er komin aftur á um götuna.

Leikskólabörn hafa aldrei verið fleiri

Alls sóttu 18.278 börn leikskóla á Íslandi í desember síðastliðnum og hafa leikskólabörn aldrei verið fleiri hér á landi. Þeim fjölgaði um 717 frá desember 2007 eða um 4,1%.

Lögreglan leitar að „útlendingslegum“ þjófum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar þriggja manna sem reynt hafa að brjótast inn í hraðbanka og verslanir undanfarna daga. Í tilkynningu frá lögreglu segir að þeir séu líklega um þrítugt og að þeir séu „útlendingslegir" á að líta, eins og það er orðað.

Fylgjast grannt með flensunni

Landlæknisembættið og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra fylgjast grannt með framvindu mála og eru í nánu sambandi við erlendar stofnanir beggja vegna Atlantshafsins.

Kolmunnakvótinn að klárast

Íslensku kolmunnaskipin eru nú á lokaspretti kolmunnavertíðarinnar í ár, því kvótinn er að verða búinn. Búið er að landa um það bil 85 þúsund tonnum og því aðeins ellefu þúsund tonn eftir.

Skrítið að vera með grímu

Fjölmargir hafa sett sig í samband við landlæknisembættið til að kanna hvort óhætt og heimilt sé að fara til Mexíkó og hvort og þá hvernig eigi að bregðast við svínainflúensunni sem geisar þar. Ekki hefur verið gripið til ferðatakmarkana en heilbrigðisyfirvöld fylgjast náið með þróuninni.

Spilarar að verða jafnmargir og íslenska þjóðin

„Við stefnum að því hröðum skrefum að Eve-félagar verði fleiri en Íslendingar," segir Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP. Eve online er veruleikatölvuleikur og eru þeir sem spila hann, sem Hilmar kallar EVE-félaga, orðnir 295 þúsund en Íslendingar eru um 319 þúsund.

Getur ekki greitt skuldirnar að sinni

Fjárhagsstaða Frjálslynda flokksins er slæm og þarf flokkurinn að semja við lánardrottna um greiðslufrest á skuldum. Flokkurinn náði ekki því 2,5 prósenta marki í kosningunum á laugardag sem tryggir framboðum ríkisframlög. Magnús Reynir Guðmundsson, framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins, telur að þar með hafi flokkurinn orðið af 12-14 milljóna króna árlegum ríkisframlögum út kjörtímabilið.

Borgin sker niður afturvirkt

Reykjavíkurborg ætlar að skera niður framlög til tónlistarskóla í Reykjavík, aftur í tímann, um tólf prósent. Þetta kom fram á fundi Sigurðar Sævarssonar, formanns Samtaka tónlistarskóla í Reykjavík, með formanni menntaráðs á föstudag.

Eitt A4 bréf dugar til ESB

Til að sækja um aðild að Evrópusambandinu nægir að ákvörðunin um að gera það hafi verið samþykkt af einföldum meirihluta þings og ríkisstjórnin sendi í framhaldinu bréf til Brussel þar sem óskað er eftir aðildarviðræðum.

Sjá næstu 50 fréttir