Innlent

Guðlaugur Þór himinlifandi

Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, segist himinlifandi yfir niðurstöðu innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar, sem telur ekki tilefni til að taka út störf hans, þann tíma sem hann var stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur.

Guðlaugur Þór óskaði eftir úttektinni í kjölfar umræðu um styrkjamál stjórnmálamanna, en hann þáði tveggja milljóna króna styrk frá FL Group á sama tíma og hann var stjórnarformaður í OR. FL Group varð síðar einn stærsti hluthafi í Geysi Green Energy, sem sameina átti REI sem var í eigu OR.

Guðlaugur Þór lét af embætti stjórnarformanns OR nokkrum mánuðum áður en þær sameiningarviðræður áttu sér stað og fullyrðir hann að niðurstaða innri endurskoðunar sé staðfesting á því að hann sé flekklaus.

Umboðsmaður Alþingis er að gera úttekt á því hvernig meðferð valds og eftirlits var háttað í svonefndu REI-máli. Stefnt er að því að henni ljúki á næstu vikum, en tekið skal fram að úttekt umboðsmanns Alþingis nær ekki til starfa Guðlaugs Þórs meðan hann var stjórnarformaður Orkuveitunnar.


Tengdar fréttir

Ekki tilefni til rannsóknar á störfum Guðlaugs Þórs hjá OR

Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar hefur tilkynnt Guðlaugi Þór Þórðarsyni að ekki verði orðið við beiðni hans um að störf hans fyrir Orkuveitu Reykjavíkur verði tekin út þann tíma sem hann var stjórnarformaður Orkuveitunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×