Ekki tilefni til rannsóknar á störfum Guðlaugs Þórs hjá OR 28. apríl 2009 12:20 Guðlaugur Þór Þórðarson. MYND/GVA
Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar hefur tilkynnt Guðlaugi Þór Þórðarsyni að ekki verði orðið við beiðni hans um að störf hans fyrir Orkuveitu Reykjavíkur verði tekin út þann tíma sem hann var stjórnarformaður Orkuveitunnar. Guðlaugur Þór óskaði eftir úttektinni í kjölfar mikillar umræðu um styrkjamál stjórnmálamanna en hann þáði tveggja milljóna króna styrk frá FL Group á sama tíma og hann var stjórnarformaður í OR. FL Group varð síðar einn stærsti hluthafi í Geysi Green Energy sem sameina átti REI sem var í eigu OR. Guðlaugur Þór lét af embætti stjórnarformanns OR nokkrum mánuðum áður en þær sameiningarviðræður áttu sér stað. Þessi ákvörðun Innri endurskoðunnar er tekin í því ljósi að ítarlega hefur verið fjallað um málefni OR og REI, meðal annars á vettvangi stýrihóps borgarráðs um málefni REI og OR, auk þess sem þrír lykilgerendur í málinu hafi skrifað greinargerð um atburðarrásina í aðdraganda sameiningar REI og GGE. Þá hafi Innri endurskoðun gert stjórnsýsluúttekt á Orkuveitunni sem birt var í ágúst á síðasta ári. Í bréfinu til Guðlaugs er bent á að Umboðsmaður Alþingis hafi með bréfi í október 2007 óskað eftir upplýsingum frá eigendum OR sem kynnu að varpa ljósi á meðferð valds og eftirlits sem sveitarstjórnir hafa með höndum sem eigendur OR. Sú rannsókn mun enn vera í vinnslu hjá Umboðsmanni. „Á grundvelli ofangreinds er það niðurstaða undirritaðs að ekki sé tilefni til úttektar IE á störfum þínum fyrir OR þann tíma sem þú varst stjórnarformaður fyrirtækisins," segir í niðurlagi bréfsins sem undirritað er af Halli Símonarsyni, innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar.
Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira