Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kristinn nýr formaður VR Kristinn Örn Jóhannesson, vaktstjóri í flugrekstrareftirliti, sigraði í formannskjöri VR. Hann hlaut 41,9% atkvæða. 11.3.2009 14:33
Jón Gerald: Dapurleg endalok Baugs „Mín fyrstu viðbrögð eru að það er mjög dapurt að þetta skuli enda svona," segir Jón Gerald Sullenberger athafnamaður, um úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem Baugi var synjað um áframhaldandi greiðslustöðvun. Jóni þykir örlög Baugs sorgleg, þá sérstaklega í ljósi þess að þeir fóru vel af stað í upphafi að hans mati. 11.3.2009 13:45
Brotist inn á kosningaskrifstofu sjálfstæðismanns Haukur Þór Hauksson frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi varð fyrir því óláni í nótt að brotist var inn á kosningaskrifstofu hans við Hlíðarsmára í Kópavogi. Þjófarnir voru allt annað en snyrtirlegir í umgengni því risastór grjóthnullungur fékk að fljúga inn um glugga skrifstofunnar. Einni fartölvu var stolið. 11.3.2009 13:08
Baugur vildi bíða betri tíðar Baugur, sem var hafnað um áframhaldandi greiðslustöðvun í hádeginu, skuldar 148 milljarði umfram eignir samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. Þá segir í dómsorði að þeir hafi viljað áframhaldandi greiðslustöðvun til þess að bíða betri tíðar. Þar kemur einnig fram að ekki hafi verið raunhæfur möguleiki hjá Baugi að koma nýrri skipan á fjármál sín. 11.3.2009 12:52
Ljúka umræðu um stjórnskipunarlagafrumvarpið á tveimur klukkustundum Samkomulag náðist milli stjórnar og stjórnarandstöðu í gærkvöldi um að ljúka fyrstu umræðu um stjórnskipunarlagafrumvarpið á tveimur klukkustundum í dag. Umræður stóðu um málið til rúmlega ellefu í gærkvöldi. 11.3.2009 12:32
Stendur fyrir blysför að heimili Jóhönnu Þórhallur Vilhjálmsson markaðsfræðingur stendur fyrir blysför að heimili Jóhönnu Sigurðardóttur í kvöld. Tilgangurinn er að þrýsta á forsætisráðherra að bjóða sig fram til formanns Samfylkingarinnar. Jóhanna íhugar nú áskoranir samfylkingarfólks og minnir Þórhallur á að hún hafi aldrei sagt nei við fólkið. 11.3.2009 10:19
Þrisvar brotist inn í Miðvang í nótt Þrisvar sinnum var brotist inn í verslanamiðstöðina Miðvang í Hafnarfirði í nótt og höfðu þjófarnir einn flatskjá upp úr krafsinu. Fyrst brutust þeir inn í hársnyrtistofu um miðnætti. Tveimur klukkustundum síðar reyndu þeir að brjótast inn í skrifstofu, en það mistókst. 11.3.2009 07:24
Tveir af átta ölvuðum réttindalausir að auki Tveir af átta ökumönnum, sem stöðvaðir voru fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um síðustu helgi, voru réttindalausir. Þrír til viðbótar lentu í umferðaróhöppum, þar sem þeir áttu alfarið sökina. Svo vel vildi þó til að enginn slasaðist í þeim óhöppum, sem ekki er þeim að þakka, að sögn lögreglu. 11.3.2009 07:22
Vinnutími styttri hjá Vinnuskólanum í sumar Allir unglingar úr áttunda, níunda og tíunda bekk fá vinnu hjá Vinnuskóla borgarinnar í sumar, en vinnutíminn verður styttri en verið hefur. 11.3.2009 07:16
Þrálát bræla tefur kolmunnaveiðar Þrálát bræla hefur tafið kolmunnaveiðar íslenskra fiskiskipa vestur af Skotlandi, en þokkalegur afli hefur fengist þær stundir sem veður leyfir. Þar eru nú tíu íslensk fjölveiðiskip og er hluti aflans frystur um borð í sumum þeirra, en afgangurinn fer í bræðslu. 11.3.2009 07:14
Þakplötur losnuðu í veðurhamnum Þakplötur tóku að losna af nýbyggingu í Hnoðraholti í Garðabæ upp úr klukkan þrjú í nótt. Lögregla hafði samband við eigandann, sem gat hamið járnið áður en það olli tjóni í grenndinni. Víða var hvasst suðvestanlands í nótt en ekki er vitað af tjóni vegna veðursins. 11.3.2009 07:11
Vill þyngri refsingu yfir föðurnum Ríkissaksóknari hefur áfrýjað til Hæstaréttar dómi yfir manni, sem dæmdur var fyrir kynferðisbrot gegn barnungri dóttur sinni. Dómnum er áfrýjað til refsiþyngingar. 11.3.2009 06:30
Skuldir kúabúa gríðarlega þungar Íslensk kúabú skulda um 30 milljarða króna. 700 kúabú eru á Íslandi. Þrjú af hverjum tíu eru talin eiga í verulegum vanda. Ungir bændur eru helst í vanda og er það litið alvarlegum augum þar sem bú og heimili bænda eru eitt. 11.3.2009 06:15
Allir sem fylgst var með fái miskabætur Lögmaður telur að ríkinu beri skylda til að hafa samband við og greiða öllum þeim bætur sem lögreglan fylgdist með á ólögmætan hátt síðustu tíu ár. Héraðsdómur er ósammála mati á búnaðinum sem fram kemur í skýrslu frá 1999. 11.3.2009 06:00
Tónlistararfur Íslands í hættu Slökkviliðsmennirnir eru búnir að fullvissa mig um að handritin hafi sloppið,“ sagði Sigfríður Björnsdóttir, starfsmaður Íslensku tónverkamiðstöðvarinnar, sem var við störf í Síðumúla 34 þegar eldur braust út í húsinu í gær. Grátandi tjáði hún blaðamanni á vettvangi að hún hafi verið viss um að um 80.00 þúsund handrit af íslenskum tónverkum væru orðin eldi að bráð. „Ef illa hefði farið hefði þetta verið óbætanlegur skaði fyrir íslenska menningarsögu. Þetta er fyrir tónlist þjóðarinnar eins og það væri fyrir sögu listmálunar að kviknaði í Listasafni Íslands. Þarna eru til dæmis handrit Jóns Leifs.“ 11.3.2009 05:45
Miklir erfiðleikar á 30 þúsund heimilum Eiginfjárstaða 30 þúsund heimila er neikvæð eða við það að verða neikvæð. Bílalán og yfirdráttarlán eru ekki tekin með í reikninginn. Forsætisráðherra segir hugsanlegt að afskrifa þurfi 40 prósent af skuldum þeirra verst settu. 11.3.2009 05:15
Beit í fingur lögreglu og braut Ríkissaksóknari hefur ákært tvo menn fyrir brot gegn valdstjórninni. Annar þeirra beit í fingur lögreglumanns með þeim afleiðingum að fingurinn brotnaði um liðamót. 11.3.2009 05:00
Laxarnir verða færri í sumar Guðni Guðbergsson, sviðsstjóri Auðlindasviðs Veiðimálastofnunar, býst ekki við að fiskgengd í íslenskum laxveiðiám verði eins mikil í sumar og hún var í fyrrasumar. 11.3.2009 05:00
Skattaskjólin eru ein mesta meinsemdin Eva Joly, sem var rannsóknardómari í Frakklandi og verður ráðgjafi íslensku stjórnarinnar, segir skattaskjól vera meinsemd í fjármálakerfinu. Hana grunar að íslenskir auðmenn feli fé og segir starfsmannafæð sérstaks saksóknara „brandara“. 11.3.2009 04:45
Íslendingar hlaupa í Sahara Tveir íslenskir ofurhlauparar taka þátt í Sahara eyðimerkurmaraþoninu sem fram fer í Marokkó um næstu mánaðamót og verða þeir fyrstir íslenskra hlaupara til að taka þátt í þessu hlaupi. Þetta eru þeir Ágúst Kvaran og Justin Bjarnason. 11.3.2009 04:30
ÍAV áttu lægsta boðið í virkjun Íslenskir aðalverktakar (ÍAV) og samstarfsfyrirtæki áttu hagstæðasta boðið í 1.000 megavatta vatnsaflsvirkjun sem verður reist í Sviss. Tilboðið hljóðar upp á 70 milljarða króna. 11.3.2009 04:30
Stjórnin pukrast að mati Geirs Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði ríkisstjórnina hafa pukrast með breytingar á stjórnarskránni. 11.3.2009 04:15
Átján mánuðir fyrir hnífaárás Karlmaður um tvítugt, Ari Dagur Sigurðsson, hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir lífshættulega hnífaárás, svo og til greiðslu 350 þúsund króna í miskabætur. Hann réðst að morgni nýársdags 2009 með hnífi á annan mann og stakk hann í andlit og bak. Árásin átti sér stað í verslun 10-11 við Lágmúla í Reykjavík. 11.3.2009 04:15
Frestur til að sækja um forstjórastöðu FME rennur út Nú fer hver að verða síðastur til að sækja um forstjórastöðu Fjármálaeftirlitsins en umsóknarfrestur rennur út á morgun. Staðan var auglýst til umsóknar 11. febrúar og var fresturinn í fyrstu til 25. febrúar en hann var framlengdur til 11. mars. 10.3.2009 22:08
Nokkuð um mistök í kosningabaráttu Ástu Ragnheiðar Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, segir að það eigi ekki af henni að ganga þessa dagana. Þrívegis hafi verið gerð mannleg mistök í prófkjörsbaráttu hennar. 10.3.2009 21:34
Reykjanesbraut opnuð á ný eftir alvarlegt slys Opnað hefur verið aftur fyrir umferð norður Reykjanesbraut á gatnamótunum við Breiðholtsbraut eftir að jeppabifreið var ekið á miklum hraða á brúarstólpa á sjöunda tímanum í kvöld. Að sögn lögreglu var um alvarlegt umferðarslys að ræða. 10.3.2009 20:04
Umtalaðri VR kosningu lýkur á morgun Kosningu um formann, stjórn og trúnaðarráð VR lýkur á hádegi á morgun. Ríflega fimmtungur félagsmanna í félaginu höfðu greitt atkvæði í hádeginu í dag en kosningin er rafræn og fer fram á heimasíðu VR. 10.3.2009 20:47
Uppbygging húsanna við Lækjargötu kostar 1,6 milljarð Stefnt er að því að framkvæmdum við uppbyggingu húsanna á brunareitnum í miðbæ Reykjavíkur verði lokið haustið 2010. Húsin verða reist í sinni upprunalegu mynd með örlitlum breytingum. Uppbyggingin er talin kosta 1,6 milljarð króna. 10.3.2009 20:32
Ingibjörgu þakkað fyrir störf í þágu jafnaðarstefnunnar Ungir jafnaðarmenn senda Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur sínar allra bestu og hlýjustu kveðjur fyrir störf í þágu jafnaðarstefnunnar. Í tilkynningu frá félaginu segir að Ingibjörg hafi hvergi dregið af sér í fjölda ára og framlag hennar til íslensks samfélags sé ómetanlegt. Hún hafi sameinað félagshyggjufólk við stjórn Reykjavíkurborgar við að gjörbreyta þar stjórnarháttum og innleitt fagleg vinnubrögð í áður úreltu og gamaldags bittlingakerfi. 10.3.2009 22:03
Allir unglingar í Reykjavík fá vinnu í Vinnuskólanum Allir unglingar í Reykjavík fá vinnu í Vinnuskólanum í sumar. Áfram verður tekið á móti öllum nemendum sem skrá sig í Vinnuskólann en að vinnutími nemenda verðiur styttur. 10.3.2009 21:58
Björn: Stjórnlagaþing kostar allt að 1,5 milljarð Björn Bjarnason segir að frumvarp til stjórnarskipunarlaga sé skrýtið frumvarp því það geri ráð fyrir breytingum á stjórnarskránni en boði jafnframt til stjórnlagaþings sem eigi að gera ennfrekari breytingar á stjórnarskránni. Björn segir í pistli á heimasíðu sinni að kostnaður við stjórnlagaþing geta numið allt að 1,5 milljarði króna. 10.3.2009 20:18
Raforku Sunnlendinga ekki hleypt til Suðurnesja Sveitarfélagið Ölfus hefur óvænt sett áform um Helguvíkurálver í uppnám og leggst nú alfarið gegn því að háspennulína verði lögð frá Hellisheiðarvirkjun til Suðurnesja. Sveitarfélagið vill frekar að orkan verði notuð til uppbyggingar í Þorlákshöfn. 10.3.2009 19:45
Joly: Brandari að fjórir starfi við rannsókn á bankahruninu Það er brandari að einungis fjórir starfsmenn séu við störf hjá embætti sérstaks saksóknara efnahagshrunsins, segir Eva Joly, einn fremsti rannsakandi efnahagsbrota okkar tíma. Hún hefur verið ráðin til að aðstoða ríkistjórnina við rannsókn á hruninu. 10.3.2009 19:04
Geir stendur við svarið um Icesave Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, stendur við svar sem hann gaf Alþingi um Icesave reikningana. Siv Friðleifsdóttir spurði hann hvort hann hefði vitað um tilboð breska fjármálaeftirlitsins um að Icesave reikningar yrðu færðir í breska lögsögu gegn 200 milljóna punda fyrirgreiðslu. 10.3.2009 18:58
Frændur storma inn á tryggingamarkaðinn Stærsta tryggingafélag Færeyja lýsti þeim áformum sínum í dag að komast inn á íslenska tryggingamarkaðinn fyrir áramót. Færeyingarnir vilja helst kaupa eitt þriggja stærstu tryggingafélaga landsins en takist það ekki segjast þeir staðráðnir í að hefja eigin starfsemi hérlendis. 10.3.2009 18:54
Eftirför lauk með alvarlegu slysi - Reykjanesbraut lokað Alvarlegt umferðarslys varð rétt fyrir klukkan hálf sjö þegar jeppabifreið var ekið á miklum hraða á brúarstólpa á mótum Breiðholtsbrautar og Reykjanesbrautar í Reykjavík. 10.3.2009 18:33
Íbúa varð ekki meint af eldinum Slökkviliðsmenn voru í mikilli hættu þegar gaskútar sprungu í eldsvoða sem varð í Síðumúla í dag. Eldurinn kom upp þegar verið var að leggja tjörudúk á þak hússins. Íbúa á efstu hæð varð ekki meint af eldinum. 10.3.2009 18:29
Starfar algjörlega einn og óháður Að marggefnu tilefni vill Hörður Torfason taka fram að allt starf hans við mótmælin á Austurvelli í vetur hafi verið ólaunað og sjálfsprottin. Hann starfar einn og óháður sem listamaður með þá fullvissu að sýna verði jafnt veraldlegum sem andlegum yfirvöldum strangt aðhald. 10.3.2009 18:02
Yfirtakan á Straumi hefur ekki áhrif á Íbúðalánasjóð Yfirtaka Fjármálaeftirlitsins á Straumi í gær hefur ekki áhrif á fjárhagslega stöðu Íbúðalánasjóðs. Laust fé sjóðsins hefur einvörðungu verið ávaxtað á innlendum innlánsreikningum og með ríkisverðbréfum frá hruni bankanna í október síðastliðnum, að fram kemur í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði. 10.3.2009 17:48
Þorsteinn stýrir viðræðum við kröfuhafa gömlu bankanna Þorsteinn Þorsteinsson, rekstrarhagfræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjór við Norræna fjárfestingarbankann, hefur verið ráðin til að leiða samningaviðræður milli nýju bankana sem stofnaðir voru eftir hrun gömlu bankanna og kröfuhafa þeirra. 10.3.2009 17:14
Átta stútar teknir um helgina Átta ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Einn var stöðvaður á föstudagskvöld, tveir á laugardag, fjórir á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Fjórir voru teknir í Reykjavík, tveir í Kópavogi og einn Hafnarfirði og Mosfellsbæ. 10.3.2009 17:05
Gassprenging á þakinu - Myndband Gríðarleg gassprenging varð á þaki hússins við Síðumúla 34 en töluvert af gaskútum eru á þakinu samkvæmt vettvangsstjóra slökkviliðsins. Þegar slökkviðið kom fyrst á vettvang fyrir um klukkustund síðan þá var fólk á þaki hússins. Þeim var öllum bjargað niður af þakinu með körfubíl. 10.3.2009 16:21
Stórbruni í Síðumúla 34 - Bein útsending Mikill eldur braust út í Síðumúla 34 í Reykjavík. Slökkviliðið sendi allt tiltækt lið á vettvang. Í húsinu eru meðal annars fyrirtækin Ferskar kjötvörur, Adagio hárstofa og Mótorsport. 10.3.2009 16:02
Segir NTC borið röngum sökum Svava Johansen eigandi tískukeðjunnar NTC segir að eigendur E-Label beri fyrirtæki sitt röngum sökum þegar því hefur verið haldið fram að NTC hafi látið stoppa framleiðslu E-Label. 10.3.2009 15:59
Ábyrgir foreldrar kæra Blátt áfram Félag ábyrgra foreldra á Akureyri hafa lagt inn kæru til sýslumanns á Akureyri á hendur forsvarmanni Blátt áfram, Sigríði Björnsdóttur, þar sem hún er sökum um lögbrot við fjársöfnun. Að auki kærir félagið Önnu Hermínu Gunnarsdóttur fyrir sama brot, en hún er ótengd Blátt áfram. 10.3.2009 15:25
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent