Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Slökkvilið kallað að húsnæði Odda Fjölmennt slökkvilið var sent að prentsmiðjunni Odda við Höfðabakka í Reykjavík í nótt eftir að eldvarnarkerfi nam reyk í húsinu og sendi boð um það til slökkviliðsins. 11.2.2009 07:09
Sumarbústaður stórskemmdur eftir innbrot Sumarbústaður í Vaðneslandi í Grímsnesi er stórskemmdur, ef ekki ónýtur, eftir að innbrotsþjófur skildi bústaðinn eftir opinn, þannig að vatnsleiðslur frostsprungu og vatn flæddi um allt. 11.2.2009 07:04
Selt ríkisland verður ekki síðar þjóðlenda Ríkið getur ekki selt jarðir og síðar tekið þær aftur sem þjóðlendur, segir í dómi í máli Orkuveitunnar sem stefndi ríkinu vegna landadeilu á Hellisheiði. Annar úrskurður óbyggðanefndar um þjóðlendur á svæðinu var hins vegar staðfestur. 11.2.2009 05:30
Segir mjólkina hollari og kýrnar kátari Hyggst reisa sláturhús, fjárhús og hænsnabú og hefja lífrænan búskap. Bóndi sem það hefur gert í áratugi segir afurðina hollari og kýrnar fari leiðar sinnar „skellihlæjandi“. Ráðunautur segir Íslendinga eftirbáta annarra þjóða í þessari þróun. 11.2.2009 04:30
Búið að slökkva eld á Litla-Hrauni Margrét Frímannsdóttir, forstöðumaður fangelsisins á Litla-Hrauni, segir að búið sé að slökkva eld sem kom upp í fangaklefa fyrr í kvöld. Slökkviliðsmenn eru nú að reykræsta klefann. Ekki var um mikinn reyk að ræða. Hún segir að hvorki fanga né starfsfólk hafi sakað vegna málsins. Eldsupptök eru að óljós, að sögn Margrétar. 10.2.2009 21:52
Krefja Kolbrúnu um svör vegna álversuppbyggingar Þingmenn Sjálfstæðisflokksins ætla að krefja Kolbrúnu Halldórsdóttur, nýjan umhverfisráðherra, svara á Alþingi á morgun um álversuppbyggingu á Bakka við Húsavík og í Helguvík á Suðurnesjum. 10.2.2009 21:15
Forsjárdeilur skaða börn til langs tíma Deilur milli foreldra um forsjá skaða börn oft alvarlega og til langs tíma. Tengslarof barna við feður eftir skilnað er ein alvarlegasta atlaga sem unnin er á barni. Þetta er meðal þeirra sem kemur fram í skýrslu Stefaníu Katrínar Karlsdóttur, um aðskilnað barna frá öðru foreldri. 10.2.2009 20:45
Sjálfstæðismenn með prófkjör í Kraganum Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, Kraganum, sem haldinn var í dag samþykkti að viðhaft skuli prófkjör í vegna uppröðunar á lista flokksins við þingiskosningarnar vorið 2009. Prófkjörið fer fram 14. mars. 10.2.2009 21:00
Gagnrýnir sjálfstæðismenn fyrir sögusagnir um hreinsanir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður Vinstri grænna, gagnrýnir þingmenn Sjálfstæðisflokksins fyrir að hafa komið af stað sögusögnum um meintar pólitískar hreinsanir nýrrar ríkisstjórnar. 10.2.2009 20:11
Eldur á Litla-Hrauni Eldur kom upp í fangaklefa á Litla-Hrauni í kvöld og fóru slökkviliðsmenn Brunavarna Árnessýslu á staðinn. Að sögn lögreglunnar á Selfossi var um minniháttar eld að ræða og er nú verið að reykræsta fangaklefann. 10.2.2009 21:33
ASÍ kynnir skýrslu um efnahagshorfur Alþýðusamband Íslands hyggst kynna á morgun nýja skýrslu hagdeildar sambandsins um horfur í efnhagsmálum þjóðarinnar 2009 til 2001. Ólafur Darri Andrason, deildarstjóri hagdeildar, mun kynna skýrsluna. Í október sagði hagdeildin að atvinnuleysi hér á landi gæti orðið 4 til 5% á árunum 2008 til 2010. 10.2.2009 20:44
Amnesty hvetja til vopnahlés á Srí Lanka Átökin á Sri Lanka halda áfram. Aðstæður almennings á átakasvæðunum fara versnandi. „Æ fleiri raddir krefjast þess nú að ríkisstjórn Sri Lanka og Tamílsku tígrarnir semji um vopnahlé,“ segir í tilkynningu frá Íslandsdeild Amnesty International. 10.2.2009 20:20
Kafara bjargað úr sjónum við Garð Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út klukkan 18:30 í kvöld vegna kafara sem lenti í vandræðum rétt fyrir utan höfnina í Garði á Suðurnesjum. Kafarinn var að koma að landi þegar mikill straumur greip hann og bar frá landi. Maður sem var á bryggjunni í Garði að fylgjast með köfuninni kallaði eftir aðstoð. 10.2.2009 19:48
Árni: Stjórnin verður að hugsa sinn gang Árni Mathiesen, telur að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir þurfi að hugsa sinn gang þegar kemur að mannabreytingum. Formenn bankaráða Nýja Glitnis og Nýja Kaupþings tilkynntu fyrr í dag um afsögn sína. 10.2.2009 19:44
Hlini vill 2. sætið í Suðvesturkjördæmi Hlini Melsteð Jóngeirsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í annað sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi. Flokkurinn hefur í dag einn þingmann í kjördæminu, Siv Friðleifsdóttur. 10.2.2009 19:27
Býður milljón þeim sem tekur að sér afborganir Fjölskyldufaðir á Akranesi hefur auglýst einbýlishús sitt til sölu og býður eina milljón í peningum þeim sem er reiðubúinn að yfirtaka skuldirnar á húsinu. Hann segir gjaldþrot blasa við ef ekki selst og er illur út í þá sem stýrðu þjóðarbúinu í þrot. 10.2.2009 19:01
Vændishús á Hverfisgötu Lögreglan hefur til skoðunar meinta vændisstarfsemi sem fram fer í húsi við Hverfisgötu í Reykjavík. Íbúar í húsinu eru orðnir langþreyttir á á starfseminni og segja hana hafa valdið þeim vökunætum í þrjár vikur. 10.2.2009 18:48
Fjölþættar aðgerðir til að rétta fjármálakerfið við Ríkisstjórnin kynnti í morgun fjölþættar aðgerðir til að rétta við fjármálakerfið í landinu og sem eiga að auðvelda einstaklingum of fyrirtækjum að standa undir aukinni skuldabyrði. Forsætisráðherra viðurkennir að margt sé sótt í smiðju síðustu ríkisstjórnar, sem hins vegar hafi þjáðst af ákvarðanafælni. 10.2.2009 18:40
Þorgerður Katrín vill vera varaformaður áfram Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ætlar ekki að bjóða sig fram til formennsku í Sjálfstæðisflokknum á landsfundi flokksins í mars. Hún sækist hins vegar eftir endurkjöri sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins. 10.2.2009 17:55
Tólf líkamsárásir Tólf líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar um nýliðna helgi. Meirihluti þeirra, eða sjö, átti sér stað í miðborginni aðfaranótt laugardags. Flestar líkamsárásanna voru minniháttar en tveir eða þrír karlar fóru þó nefbrotnir heim eftir skemmtanir næturinnar. 10.2.2009 17:32
Fylgst með áhrifum efnahagsþrenginga á stöðu kynjanna Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að settur verði á fót vinnuhópur til að meta áhrif efnahagsástandsins á stöðu kynjanna. Hópurinn verður skipaður af Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, félags- og tryggingamálaráðherra. 10.2.2009 17:24
Steingrímur vill að Magnús og Valur sitji áfram Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hefur óskað eftir því að formenn bankastjórna Nýja Glitnis, Valur Valsson, og Nýja Kaupþings, Magnús Gunnarsson, gegni störfum áfram. Í dag óskuðu þeir eftir að verða leystir frá störfum í stjórnum bankanna. Steingrímur vill að þeir endurskoði ákvarðanir sínar og gegni störfum áfram að minnsta kosti fram að aðalfundum bankanna í apríl. 10.2.2009 17:17
Áætlun um endurreisn fjármálakerfisins kynnt Starfsáætlun samráðsnefndar um endurreisn fjármálakerfisins verður kynnt í fyrrmálið. Formaður nefndarinnar, Svíinn Mats Josefsson, mun kynna áætlunina á fundi með blaðamönnum í Þjóðmenningarhúsinu. Hann var ráðinn til tímabundinna starfa 1. desember. 10.2.2009 17:06
Þuríður vill 2.sætið Þuríður Backman, alþingismaður, hefur ákveðið að bjóða sig fram í 2. sæti í forvali Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðausturkjördæmi vegna Alþingiskosninganna í vor. Í síðustu alþingiskosningum var Þuríður í 2. sæti. 10.2.2009 16:45
Stjórnarformenn Glitnis og Kaupþings segja af sér Formenn bankastjórna Nýja Kaupþings og Nýja Glitnis, þeir Valur Valsson hjá Glitni og Magnús Gunnarsson hjá Kaupþingi hafa sagt af sér. Í bréfi sem þeir hafa sent til Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra segja þeir að samstarfið í stjórnum bankanna hafi gengið vel en í ljósi þess að ný ríkisstjórn hafi tekið við völdum hafi orðið „eðlilegar pólitískar áherslubreytingar og mannabreytingar,“ eins og þeir orða það. 10.2.2009 15:32
Bróðir barnaníðings dæmdur fyrir misnotkun á barnungri dóttur sinni Karlmaður var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að misnota dóttur sína ítrekað frá árunum 2006 til nóvember 2008. Dóttir hans er þriggja og hálfs árs gömul í dag. Þá var amma barnsins einnig grunuð um verknaðinn til að byrja með en síðan var fallið frá þeim gruni. Hálfbróðir mannsins er sjálfur dæmdur barnaníðingur samkvæmt dómsorði en hann er núna búsettur í Taílandi. 10.2.2009 14:59
Marsibil skráði sig í Samfylkinguna Marsibil Sæmundardóttir sem starfað hefur sem óháður varaborgarfulltrúi síðan í ágúst þegar hún sagði sig úr Framsóknarflokknum er gengin til liðs við Samfylkinguna. Marsibil segist ekki hafa getið skráð sig í stjórnmálaflokk fyrr en hún væri fullviss og sannfærð um að þar ætti hún heima. Hún hefur nú fundið sinn flokk. 10.2.2009 14:44
Ásdís Halla ætlar ekki á þing Ásdís Halla Bragadóttir, fyrrverandi bæjarstjóri í Garðabæ, hefur ákveðið að bjóða sig ekki fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins vegna þingkosninga í vor. „Fyrir fjórum árum ákvað ég að snúa mér að fyrirtækjarekstri og hætta í stjórnmálum. 10.2.2009 14:41
Misskilinn forseti Ólafur Ragnar Grímsson forseti hefur þrisvar sinnum þurft að leiðrétta erlendar fréttir um sjálfan sig síðan bankarnir hrundu. Ólafur hefur verið duglegur að ræða við erlenda fjölmiðla sem margir hverjir virðast misskilja orð forsetans. Nýjasta dæmið eru ummæli er varða innistæður sparifjáreigenda í Þýskalandi en áður hafði BBC misskilið forsetann sem og norskur sendiherra sem sat með honum hádegisverðarfund. 10.2.2009 14:34
Velferðarvakt hleypt af stokkunum Ríkisstjórnin samþykkti á fundi í morgun að stofnuð verði velferðarvakt í samvinnu ríkis, sveitarfélaga, aðila vinnumarkaðarins og fleiri aðila til að fylgjast með félagslegum og fjárhagslegum afleiðingum bankahrunsins á einstaklinga og fjölskyldur og gera tillögur um viðbrögð. Í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu segir að Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, muni skipa hóp til að stýra verkefninu, samhæfa upplýsingaöflun og gera tillögur um viðbrögð. 10.2.2009 14:34
Móðir segir son sinn ekki ofbeldisfullan „Hann er ekki ofbeldisfullur, hann hefur aldrei ráðist á neinn eða gert neinum neitt," segir móðir mannsins sem situr í gæsluvarðaldi, grunaður um aðild að andláti konu sem fannst látin í dúfnakofa í Hafnarfirði á fimmtudaginn. Maðurinn, sem er 37 ára og jafngamall konunni, bjó með henni í tvo mánuði. Hann var handtekinn aðfaranótt föstudagsins og úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í kjölfarið. 10.2.2009 14:21
Loftmengun yfir heilsuverndarmörkum í borginni Líklegt er að loftmengun verði yfir heilsuverndarmörkum í dag. Kalt er í lofti, lítill raki og logn og götur þurrar. Í tilkynningu frá Umhverfis- og samgöngusviði borgarinnar segir að bæði svifryk (PM10) og köfnunarefnisdíoxíð (NO2) gæti því farið yfir mörkin við helstu umferðargötur á höfuðborgarsvæðinu. 10.2.2009 13:32
Frjálslyndir velja sér þingflokksformann á morgun Jón Magnússon þingmaður hefur sagt sig úr Frjálslynda flokknum en hann hefur verið þingflokksformaður síðan Kristinn H. Gunnarsson lét af því embætti. Nýr formaður verður skipaður á þingflokksfundi á morgun klukkan 16:00. Vísir tók púlsinn á þingflokknum, ræddi við alla þingmenn hans og spurði hver væri líklegastur. 10.2.2009 13:26
Fékk bíl í bakaríið Lilja Bjarnadóttir starfsstúlka í Sveinsbakarí við Engihjalla í Kópavogi var að afgreiða mann í morgun þegar jeppi kom keyrandi inn í anddyrið. Lilju var brugðið en segir mestu máli skipta að enginn hafi slasast. Eigandi bílsins var umræddur maður en bíllinn er sjálfskiptur. 10.2.2009 12:47
Ólafur Ragnar: Þýski blaðamaðurinn dregur upp villandi mynd Ólafur Ragnar Grímsson segir að blaðamaður þýsku útgáfunnar af Financial Times hafi dregið upp mjög villandi frásögn af löngu samtali sem hann átti við forsetann á Bessastöðum. Haft er eftir Ólafi í blaðinu að Ísland eigi ekki að greiða þeim sem töpuðu á innlánum Kaupþings í Þýskalandi og hafa ummælin vakið töluverða athygli í Þýskalandi. 10.2.2009 12:20
Lundey NS er farin til loðnuleitar Lundey NS, skip HB Granda, er farin til loðnuleitar í samráði við Hafrannsóknastofnun. Að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar, deildarstjóra uppsjávarveiðisviðs HB Granda, mun skipið fyrst kanna svæði djúpt fyrir austan landið. 10.2.2009 10:54
Davíð forðaði sér á stökki Mótmælendur eltu Davíð Oddsson, Seðlabankastjóra, fyrir utan bankann í morgun en Davíð komst undan þeim með naumindum. Lögreglan stöðvaði mótmælendur þegar þeir ætluðu að fara inn um innganginn á eftir Davíð. 10.2.2009 10:02
Bubbi og Egó rokka fyrir framan Seðlabankann - myndband Bubbi Morthens og félagar hans í Egó tóku lagið fyrir framan Seðlabankann í morgun. Mótmælendur komu saman í morgun rétt eins og í gær og segir Hörður Torfason forsvarsmaður Radda fólksins að um hundrað manns séu á svæðinu. Lögregla segir að allt fari fram með ró og spekt en segist ekki hafa upplýsingar um mannfjölda. 10.2.2009 09:32
Fjörutíu prósent færri út í janúar Fjörutíu prósent færri Íslendingar fóru frá Leifsstöð til útlanda í janúar síðastliðnum, samanborið við sama mánuð í fyrra. Þeir voru 16 þúsund í ár en 31 þúsund í fyrra þannig að samdrátturinn nemur 15 þúsund manns. 10.2.2009 07:22
Leita loðnu sem aldrei fyrr Tvö skip eru byrjuð loðnuleit út af Suðurströndinni ásamt hafrannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni og tvö til viðbótar eru á leið til leitar. 10.2.2009 07:19
Nýr meirihluti í bæjarstjórn Blönduóss Nýr meirihluti var myndaður í bæjarstjórn Blönduóss í gærkvöldi eftir að fyrrverandi meirihluti sprakk vegna ágreinings um laun bæjarstjórans. 10.2.2009 07:16
Fiskibátur í vandræðum vegna rafmagnstruflana Tveir menn á litlum fiskibáti lentu í erfiðleikum í nótt vegna rafmagnstruflana um borð. Þeir voru í stöðugu sambandi við land en ekki þótti tilefni til að senda björgunarskip til móts við þá. Í stað þess að fara til Dalvíkur, eins og til stóð, fóru þeir skemmstu leið til Siglufjarðar, þar sem gert verður við rafkerfið. 10.2.2009 07:10
Innbrot í Ölduselsskóla Brotist var inn í Ölduselsskóla í nótt og þaðan stolið skjávarpa. Þjófurinn er ófundinn. Þá var gerð tilraun til að brjótast inn í Breiðholtsskóla undir morgun en þjófurinn virðist hafa lagt á flótta áður en hann hafði ráðrúm til að taka eitthvað til handargagns. Hann er líka ófundinn. 10.2.2009 07:08
AGS benti á brotalamir í seðlabankafrumvarpi Forsætisráðuneytinu hafa borist tæknilegar ábendingar frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum um frumvarp um breytingar á yfirstjórn Seðlabankans, sem liggur nú fyrir viðskiptanefnd Alþingis. Ekki liggur fyrir hvers kyns athugasemdirnar eru. 10.2.2009 04:00
Norðurlöndin sjái um íslenskt loftrýmiseftirlit Utanríkisráðherra segir það áhugaverða hugmynd í nýrri norrænni skýrslu að Norðurlöndin taki saman við loftrýmiseftirliti Atlantshafsbandalagsins yfir Íslandi. Eftir sé þó að ræða hana nánar. 9.2.2009 22:15