Móðir segir son sinn ekki ofbeldisfullan Valur Grettisson skrifar 10. febrúar 2009 14:21 Móðir manns, sem situr í gæsluvarðhaldi grunaður um aðild að andláti konu í dúfnakofa, segir son sinn ekki ofbeldisfullan. „
Hann er ekki ofbeldisfullur, hann hefur aldrei ráðist á neinn eða gert neinum neitt," segir móðir mannsins sem situr í gæsluvarðaldi, grunaður um aðild að andláti konu sem fannst látin í dúfnakofa í Hafnarfirði á fimmtudaginn. Maðurinn, sem er 37 ára og jafngamall konunni, bjó með henni í tvo mánuði. Hann var handtekinn aðfaranótt föstudagsins og úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í kjölfarið. Það var á fimmtudaginn síðasta sem konan fannst látin í kofa skrautdúfnafélags Hafnarfjarðar. Það var eigandi kofans sem kom að henni. Konan var fáklædd þegar hún fannst en með lambhúsettu. Ekki er ljóst hversu lengi hún hafði legið í kofanum en eigandi kofans sagðist fóðra dúfurnar annan hvern dag. Gluggi hafði verið brotinn og er líklegt að konan hafi komist inn í kofann í gegnum hann. Dánarorsök konunnar er óljós en krufning fór fram í gær. Bráðabirgðarniðurstöður leiddu ekki dánarorsök konunnar í ljós. Í viðtali fyrir helgi sagði Friðrik Smári Björgvinsson hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, að maðurinn væri grunaður um aðild að andláti konunnar. „Ég skil þetta ekki. Hann er svo góður í sér að hann gæti ekki hafa gert neitt við hana," segir móðir mannsins en handtaka sonar hennar hefur reynt mikið á sálarþrek hennar að eigin sögn. Hún segir fregnirnar hafa komið sér verulega á óvart enda hafi sonur hennar, að eigin sögn, aldrei orðið uppvís af ofbeldisbrotum. Hún staðfestir að sonur hennar hafi átt við fíkniefnavanda að stríða. Hann hafi hinsvegar leitað sér hjálpar fyrir um ári síðan og haldið sér frá vímuefnum síðan þá. Í fréttum RÚV kom fram að hann hefði verið undir áhrifum vímuefna þegar hann var handtekinn. „Ég er titrandi núna bara af því að tala um þetta," segir móðir mannsins sem er verulega brugðið vegna handtöku sonar síns. Hún segist trúa því besta upp á hann en aðspurð segist hún ekki hafa fengið að ræða við hann eftir að hann var hnepptur í gæsluvarðhald. Hún segist lítið sem ekkert vita um rannsóknina eða hvernig sonur hennar eigi að hafa tengst andláti konunnar. Spurð hvort hún hafi haft samband við fjölskyldu hinnar látnu, segir móðir mannsins: „Ég þori ekki að hringja í hana, mér líður sjálfri svo illa yfir þessu."
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Sjá meira